Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 14
okkur sem búum á Íslandi til að gefa okkur smá lit og ferskleika á þessum árstíma.“ Augun aðalatriðið í dag Katrína bendir á að nú þegar við göngum mikið með grímur er mik- ilvægt að skyggja og gera augun meira áberandi ásamt því að fylla létt inn í augabrúnirnar. „Í raun má segja að augabrúnir hafi aldrei verið jafn mikilvægar og í dag þar sem þær ramma inn andlitið. Í uppáhaldi hjá mér núna er Brow Blade Ink Stain + Waterproof Pencil frá Ur- ban Decay sem nýtist vel til að gera lýtalausar augabrúnir án langvar- andi litunar.“ Hvaða fleiri förð- unarvörur eru í snyrtibuddunni þinni? „Ég er með varasalvann „Aloe Lips“ frá Forever Living. Hann er fullkominn að mínu mati. Síðan er ég með „Le Lip Liner“ frá Lan- côme og er Natural Mauve uppáhaldsliturinn minn í honum. Ég er einnig með augnahárakrullara frá Shiseido og „Le Volume Révolution“ maskarann frá Chanel. Í snyrtibuddunni er einnig að finna Parure Gold-fastan farða frá Guerlain sem baðar húðina í réttu ljósi yfir daginn.“ Vaknar fersk og ert tilbúin í daginn Hver eru tískutrendin núna þegar kemur að förðun? „Augun eru aðalatriðið og að gera sem mest úr augabrúnunum. Augabrúna „lamination“ gefur andlitinu fallega lyftingu og ferskara útlit. Einnig eru augnháralengingar mjög vinsælar þar sem þú vakn- ar fersk og tilbúin í daginn án þess að þurfa að farða þig mikið. Augun eru spegill sálarinnar og því á það vel við að hlúa vel að þeim.“ Hverju eiga konur að huga sérstaklega að með aldrinum þegar kemur að förðun? Hvað með varaliti? „Við erum ekki mikið að nota varaliti núna vegna veirunnar, þess vegna mæli ég með að nota varasalva og fallegan varablýant á var- irnar. Uppáhaldið mitt núna er „Cellular Perfomance Total lip Treatment“ frá Sensai. Þessi nýja og silkimjúka formúla gefur vörunum raka og næringu. Hún smýgur djúpt undir yfirborð varanna og beinir athyglinni að útlínum þeirra og veitir þeim náttúrulega fyllingu. Háþróuð formúlan er silkimjúk við- komu en helst jafnframt á sínum stað. Við eigum að njóta þess að vera með þrýstnar og fallegar varir.“ Ertu til í að deila með okkur góðu ráði til að gera augun fallegri? „Ég mæli með jarðlitum og ferskjulituðum tónum á augun sem fara öllum. Þannig drögum við fram fallega augnlitinn okkar. Í þessu samhengi get ég mælt með Hypnose-palettunni frá Lancôme eða Couture Clutch-augnskuggapallettunni frá Yves Saint Laurent.“ Hendurnar mesta leyndarmálið Hvert er besta trixið tengt förðun sem þú kannt? „Hendurnar mínar eru besta trixið. Það ættu allir að prófa förðun hjá mér. Síðan mæli ég með að setja farðann áður en maður notar hyljarann á andlitið. Síðan kann ég annað ráð sem er að setja hvíta línu með augn- línupensli yfir augnlokið áður en þú setur ljósan augnskugga sem mun auka dýpt ljósa litsins á aug- unum.“ Hverjar eru uppáhaldshárvörurnar þínar? „Ég nota mikið Balmain-vörurnar. Sem dæmi má nefna Argan Moisturizing Elixir frá Balmain sem gefur gljáa og raka í hárið og gerir allar greiðslur auðveldari þegar kemur að hárinu.“ ur en það sem við setjum á andlitið. Á morgnana hreinsa ég andlitið mitt með Chanel Cleanser sem er mjúkt krem. Það hreinsar húðina og tekur allt sem hefur komið upp úr húðinni yfir nóttina. Húðin verð- ur mjúk og hún djúphreinsast og verður undirbúin fyrir næsta skref húðumhirðunnar. Þá rúlla ég húð- ina með ísmolum sem hjálpar henni við að vakna og vera fersk yfir dag- inn. Það er einnig gott að taka kalda sturtu að morgni. Næsta skref felur í sér að næra húðina og þá nota ég Chanel Hydra Beauty Micro Créme sem liggur fallega á húðinni og gefur henni gljáa og þá næringu sem hún þarf. Ég nota einnig Guerlain’s Double R Renew & Repair-serumið sem þéttir húðina og minnkar hrukkurnar. Ég kann vel við að nota augnkremið frá BIOEFFECT EGF sem er frísk- andi augnserum sem vinnur gegn öldrun húðarinnar og er sér- staklega hannað fyrir viðkvæmu húðina í kringum augun. Það dregur úr fínum línum og hrukkum. Minnkar þrota við augun og stuðlar að réttu rakajafnvægi og gerir húðina þétta og ljómandi. Auðvelt að bera serumið á húðina en flaskan er með kælandi stálkúlu sem tryggir jafna dreifingu. Einnig mæli ég með augnkremi frá Guerlain sem heitir „The Abeille Royale Eye Cream sem tekur bólgur og augnpoka og nærir húðina á einstakan hátt. Þessar tvær vörur eru það sem ég þarf á augnsvæðið mitt í dag. Ég mæli með að gera snögga æfingu á morgn- ana í fimmtán til þrjátíu mínútur hvort heldur sem er jóga, hugleiðslu eða að ganga utandyra á meðan kremin eru að setjast inn og vinna í húðinni. Við þurfum öll góðan svefn og ég mæli með að vakna aðeins fyrr til að geta undirbúið sig fyrir daginn. Góð hvíld og undirbúningur er allt sem við þurfum til að líta glæsilega út og líða vel í eigin skinni.“ Farðinn skiptir miklu máli Það er mikilvægt að nota góðan farða sem jafnar húðina og passar vel við húðlitinn að hennar sögn. „Eins er gott að nota hyljara á þau svæði sem við viljum hylja að- eins betur eins og til dæmis und- ir augun. Þá mæli ég með „Wa- terproof Protective Undereye Concealer frá Lancôme. Hann jafnar húðlitinn og hylur dökka bauga og minnkar fínar línur í kringum augun. Ég á nokkra uppáhaldsfarða sem eru: It Cosmetics sem er þróaður af leiðandi lýtalæknum og margir í skemmtanaiðnaðinum nota. Farðinn er leyndarmál stjarn- anna sem hylur vel og nær fram dásamlegu útliti þar sem hann er með lita leiðréttingu og er mjög nærandi og gerir húðina full- komna ásýndar. Hann er einnig með SPF 50 vörn í sér. Svo er ég hrifin af „Skin Self-Refreshing- farðanum frá Shiseido sem inniheldur litla kristalla og mandarínubörk. Hann gefur ein- stakt útlit. „ĹEssentiel Natural 16 H Wear- farðinn frá Guerlain er einnig silkimjúkur og gefur óaðfinnanlegt útlit og ferskleika.“ Það sem Katrína notar til að fá sólkysst útlit á þessum árstíma er Terracotta Bronzing Powder frá Guerlain. „Eins nota ég púðurkinnalitinn „Joues Cont- raste“ frá Chanel. Sem gefur unglegt og frísk- legt útlit. Gott er að bera kinnalit undir kjálk- ann, á gagnaugað og á ennið. Sér í lagi fyrir 14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 Brown Blade Ink Stein + Waterproff-auga- brúnapensillinn frá Urbandecay er góður í að draga fram fegurð augabrúnanna. Hypnôse-augnskuggapallettan frá Lancôme er smart fyrir augun í dag. Le Volume Révolution De Chanel- maskarinn lengir augn- hárin svo um munar. Það er ekki nóg að vera með fallega förðun. Hárið verður að vera glansandi líka. Argan Moisturizing Elixir frá Balmain gefur gljáa sem tekið er eftir. Katrina segir mestu máli skipta að hafa hæfileikana til að farða í höndunum á sér. „Eyebrow Lamination“ er aðferð til að gera sem mest úr augabrúnunum. La Mousse- kremið/froðan frá Chanel gefur húðinni góða og djúpa hreinsun bæði kvölds og morgna. Ljósmynd/Alisa Elíasson Katrína rúllar andlitið með klaka á morgnana til að vekja húðina. Ljósmynd/Colourbox Katrina farðaði fyrir þessa ljós- myndatöku þar sem náttúrulegt útlit og ferskleiki er í fyrirrúmi. Vegna kórónuveirunnar og grímunnar er mikið lagt upp úr augnförðun um þessar mundir. Ljósmynd/Instagram Ljósmynd/Igor Bulgak Sublimage Le Teint-farðinn frá Chanel er góður fyrir þroskaða húð. Fyrir náttúrulegt útlit á daginn er gott að nota ĹEssentiel Natural-farðann frá Guerlain. Ljósmynd/Igor Bulgak Aloe Lips varasalvinn frá Forever er með jojoba sem nærir varirnar. Ómissandi undir grím- una í dag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.