Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
talað opinskátt um þetta mál. Þegar Guðrún
Andrea fæddist var pabbi viðstaddur fæðinguna
og mamma beið frammi. Um leið og barnið kom
í heiminn lét hann senda skeyti á barnsföður
minn sem hann þurfti að kvitta fyrir að fá til sín,
þar sem tilkynnt var um fæðingu barnsins og
upplýsingar um hana. Það var gert svo hún gæti
seinna leitað uppruna síns og svo hún eða annað
fólk fyndi aldrei neina skömm í tengslum við
það hvernig hún varð til á sínum tíma.“
Hvað viltu segja við konur á staðnum sem þú
varst á?
„Ég vil bara hvetja allar ungar konur til að
láta drauminn sinn rætast að prófa að búa er-
lendis og jafnvel fara í nám þar. Það er góður
grunnur sem nýtist manni inn í framtíðina.
Upplifunin við að búa erlendis er einstök, maður
verður sjálfstæður og kynnist annarri menn-
ingu. Við höfum gert það sama fyrir Guðrúnu
Andreu. Hún hefur fengið að ferðast og mennta
sig á erlendri grund. Hún var einmitt í Barce-
lona í tvö ár og bjó í götu þar sem húsið hennar
sneri að húsi afa hennar. Hún lagði þó aldrei í að
heimsækja hann því eins og hún sér málin þá á
hún eina mömmu, afa og ömmu og síðan fóstur-
föður sem er góður vinur hennar. Hún fann ekki
þörfina fyrir fleira fólk í kringum sig og hefur
ekki gert ennþá.
Dóttir mín er einstök og hin börnin mín líka.
Við gætum ekki verið stoltari af þeirri konu sem
hún er í dag. Hún er rúmlega þrítug að aldri og
á eiginmann og tvö börn sjálf. Er í flottri vinnu
og með góða menntun. Hún stendur sig mjög
vel.“
Sér núna hvað hún var rosalega ung
Yngri dóttir Sólveigar er á sama aldri í dag og
þegar hún átti Guðrún Andreu.
„Hekla mín er svo lítil að ég sé mig í öðru ljósi
í gegnum hana í dag. Ég horfi á hana og hugsa:
Guð minn góður. Hvernig fór ég að þessu? Ég
var varla farin að ferðast með strætó sjálf á
þessum aldri. Auðvitað hefði ég viljað eignast
Guðrúnu Andreu tíu árum seinna en þetta var
yfirstíganlegt og gekk allt saman upp. Þegar
hún varð tólf ára bjó ég rétt hjá mömmu og
pabba og hún ákvað að halda áfram að búa hjá
þeim. Enda höfðum við alla tíð búið hjá þeim og
hún hafði komið sér vel fyrir þar. Það var á þeim
tíma sem ég kynntist Hilmi manninum mínum.
Hún tilkynnti honum um leið og þau kynntust
að hann yrði aldrei pabbi hennar en að þau
gætu orðið bestu vinir sem þau eru jú einmitt í
dag.“
Þær mæðgur eru góðar vinkonur og Sólveig
er og verður alltaf mamman.
„Það er svo stutt á milli okkar að mér finnst
ég alltaf nýbúin að fara í gegnum hlutina þegar
hún tekst á við þá. Ég reyni eins og allir aðrir
foreldrar að leiðbeina henni eins vel og ég get
og auðvitað hlustar hún ekki alltaf en kemur svo
stuttu seinna og segir já, þú sagðir mér þetta.
Ég man samt ennþá daginn sem hún og
mamma og pabbi settust niður með mér og til-
kynntu að nú væri kominn tími á hana út í
tungumálaskóla. Hún var þá fimmtán ára og ég
ófrísk að öðru barninu mínu og ég fékk nánast
áfall. Ég hélt nú ekki. Mamma og pabbi stóðu
vel með henni þá og bentu mér á að ég hefði
fengið að fara út á þessum tíma. Ég man að ég
svaraði því snögg upp á lagið að ég hefði komið
ófrísk heim! Pabbi svaraði því til að þau ætluðu
að bjóða henni og þetta væri eitthvað sem allir
ættu að hafa tækifæri til að gera. Það var
greinilegt að mitt ferðalag á þessar fjarlægu
slóðir voru ekki áfall fyrir pabba. Ég þvertók
fyrir þetta og hann hélt bara áfram að minna
mig á að þetta hefði verið blessun fyrir alla og
það væri ekkert að óttast.
Ég hélt ég myndi fara yfir um og kallaði á
fund þar sem mamma og pabbi mættu, dóttir
mín og vinkona hennar og foreldrar vinkon-
unnar. Ég fór yfir allt sem gæti farið úrskeiðis.
Talaði um kynlíf og mikilvægi þess að nota
varnir og allt það. Mamma og pabbi sem eru af
gamla skólanum stóðu hjá og hugsuðu án efa að
ég hefði tekið þetta aðeins of langt. Ferðin hjá
stelpunum gekk svo bara glimrandi vel og að
sjálfsögðu gerðist ekkert af því sem ég ótt-
aðist.“
Menntun og reynsla lykilatriði í velgengni
Þegar talið berst að vinnunni hennar Sól-
veigar segir hún að menntun sín og reynsla sé
algjört lykilatriði í velgengni hennar í dag.
„Eins höfðu þessi fjögur ár á Ítalíu mikil áhrif
á mig enda eru Ítalir alveg dásamlegir. Það eru
allir velkomnir þar og mikil gestrisni í gangi.
Þeir borða góðan mat og hafa gaman af lífinu.
Ég var í Flórens í eitt ár og síðan í Mílanó í þrjú
ár og það litaði aðeins reynslu mína af landinu.
Mílanó er sem dæmi mikil viðskiptaborg og
þar eru allir að keppast við að ná markmiðum
sínum. Konur ganga menntaveginn og eru að-
eins eldri þegar þær gifta sig. Það eru allir rosa-
lega fínt klæddir í Mílanó og þó það væri steikj-
andi hiti þá fór maður ekki á stuttbuxum í
skólann heldur fallega klæddur ítölskum fatn-
aði.
Það er hátt til lofts á Ítalíu og marmari út um
allt. Mér þótti svo gaman að vera þarna og
borgin er æðisleg þó ég hefði alls ekki viljað
vera þarna lengur. Það voru aðeins aðrir tímar
þegar ég var þarna úti sem var alveg einstakt
líka að upplifa. Alþjóðlegar keðjur voru ekki
komnar inn í landið í sama mæli og nú svo allt
sem maður upplifði var ítalskt.
Ég bjó á þessum tíma með Kjartani Ósk-
arssyni vini mínum sem var einnig í hönn-
unarnámi úti og okkur þótti ítalskur matur al-
veg æðislegur. Síðan langaði okkur að læra að
drekka ítölsk vín sem við og gerðum en við
kunnum ekki að kaupa okkur vín og drukkum
vínin sem fengust á eina evru úr fernu. Fag-
urfræðin, menntunin og gestrisnin hefur áhrif á
mig enn þá í dag.“
Málaði íbúðina í einum ríkislit
Það er nóg að gera hjá Sólveigu í vinnunni í
dag þó hún sakni þess að vera ekki lengur að
fljúga fyrir Icelandair á sumrin. Það hafi verið
óskastaðan hennar hvað vinnu varðar því hún
viti fátt skemmtilegra en að teikna, hanna og
ferðast.
„Kórónuveiran er þó ekki alslæm og eru
margir að nýta sér tímann núna í endurbætur á
húsunum sínum. Við rekum okkar heimili eins
og fyrirtæki og er alltaf nóg að gera hjá öllum.
Svo þegar veiran skall á þá hægðist á öllu. Börn-
in þurftu um tíma að halda sig frá íþróttum svo
við nýttum tækifærið hér heima um helgar og
ákváðum að mála húsið öll saman. Það var mjög
gaman og bara alveg einstök samvera. Ég
ákvað að velja einn svona „ríkislit“ á allt, bæði
loft og veggi.
Við höfum ekki breytt miklu hér heima síðan
við fluttum inn og erum mjög ánægð með hús-
eignina okkar. Eldhúsið er æðislegt, opið og
skemmtilegt. Við höfum komið okkur notalega
fyrir hér heima. Ég er með skrifstofuna heima
sem mér finnst alveg hreint dásamlegt. Her-
bergin eru stór í húsinu og gott pláss fyrir okk-
ur öll, vini og vandamenn.“
Eftir fráfall föður síns hefur Sólveig tekið við
fjölskyldukeflinu.
„Við vorum vön að fara alltaf til mömmu og
pabba á sunnudögum í mat. Nú förum við eftir
öllum reglum í samfélaginu en heimili mitt er
orðið sú miðstöð sem hús foreldra minna var
hér áður fyrr.
Mér finnst það einstakt enda rek ég heimilið í
ítölskum stíl. Ég er gestrisin og elska að fá fólk í
mat. Mér finnst notalegt að vera með mann-
inum mínum og börnum og svo ótrúlega gaman
að hittast öll reglulega ekki síst fyrir börnin sem
eignast dýrmætar rætur og minningar inn í
framtíðina.“
Hvernig lýsir þú viðskiptavinum þínum í dag?
„Það er sem betur fer bara allskonar fólk,
bæði ungt fólk og aðeins eldra. Ég elska að
koma inn á ný heimili og að kynnast fólki. Ég vil
hlusta vel á þarfir heimilisfólksins og reyna eins
vel og ég get að verða við óskum þeirra. Fólkið
sem ég vinn fyrir ræður ferðinni. Ég les í að-
stæður og legg svo upp úr fallegri hönnun sem
hentar öllum á heimilinu. Styrkleikar mínir sem
arkitekt eru þeir að ég er ákveðin og hreinskilin
og það er mikill drifkraftur í mér. Ég er mjög
dugleg að vinna og vinn stundum fram á nótt.
Ég er þessi mikli orkubolti og mjög útsjónasöm
líka. Ég hef alltaf elskað hönnun og hef unnið
lengi við fagið. Ég vann hjá Pennanum og síðan
hjá arkitektastofu áður en ég ákvað að stofna
mitt eigið fyrirtæki árið 2014.“
Er engin kvenréttindakona
Þó að Sólveig sé hörkudugleg kona þá er hún
engin kvenréttindakona að eigin sögn.
,,Vinkonur mínar kölluðu mig Solla (Solli) um
tíma þegar ég bjó ein og var alltaf með pensilinn
í annarri hendinni og borvélina í hinni. Það er
ekki staðan í dag. Maðurinn minn má gera fullt
af hlutum hér heima. Ég vil sem dæmi sjá alveg
um þvottinn á heimilinu og fær hann helst ekki
að koma inn í þvottahúsið. Ég er algjör dama og
vil vera það. Það er mjög margt sem maðurinn
minn gerir sem mig langar ekki til að gera. Þó
að heimilið geti oft verið eins og fyrirtæki þar
sem allt þarf að ganga upp og allir að gera eitt-
hvað, þá eru nokkrir hlutir sem skipta mig
meira máli en annað. Sem dæmi þá ætlast ég til
þess að allir borði saman á kvöldin. Það tekur
ekki margar mínútur að setjast niður við borðið
saman og ég hef gaman af því að elda góðan og
hollan mat. Síðan finnst mér skipta máli að
heimilið haldi vel utan um alla sem búa hérna og
að það sé hægt að halda hugguleg fjölskylduboð
og matarboð fyrir vini. Síðan skiptir sambandið
mitt við Hilmi mjög miklu máli. Ætli það megi
ekki segja að ég hafi fengið nef fyrir góðum
mönnum í gegnum pabba og að Hilmir falli al-
gjörlega inn í hugmyndir mínar um hvernig
góður maður eigi að vera. Við erum mjög sam-
stiga í öllu og miklir vinir og hann styður mig í
öllu sem er mér ákaflega dýrmætt. Enda hefur
lífið kennt mér að það er ekki alltaf auðvelt en
maður stígur ölduna og tekst á við hindranirnar
þegar þær koma. En við gerum það ekki ein.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Guðrún Andrea Sólveigardóttir ásamt eig-
inmanni sínum Þorbirni Þór Sigurðarsyni
ásamt börnum sínum tveimur.
Foreldrar Sólveigar þau Jón Rafns Antonsson
og Guðrún Clausen voru náin hjón. Jón lést
skyndilega fyrir tveimur árum.
Guðrún Andrea, Guðrún
Clausen og Sólveig eru nánar
mæðgur sem standa saman í
verkefnum lífsins.
Sólveig er vinsæll
arkitekt enda
hefur hún unnið
við fagið sitt lengi.