Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 H vað getur þú sagt mér um þinn fatastíl? „Ferðalag mitt um völundarhús tískunnar er nú að verða nokkuð langt og strembið, því ég var mjög ungur þegar ég fór að fylgjast mjög vel með helstu straumum. En svo stiklað sé á stóru þá var leðurjakkinn nánast límdur á mig þegar ég var rokkstjarna í Kátum piltum. Á há- skólaárunum og fyrri part blaðamennskuferilsins var ég í öllu svörtu; gallabuxum, biker boots og kálfasíðum frakka; hékk á Hressó, reykti pípu og þambaði svart kaffi þangað til mér var orðið flök- urt og neyddist þá til að fá mér einn viskí. Já og las Camus. Alltaf stutt í þennan stíl, hann er grunnurinn en í seinni tíð hef ég verið að færa mig meira yfir í einhvers konar Kormák og Skjöld; þægilegt og hallærislegt afa-tvíd. Þeim verslunar- undrum hjá K&S tókst að ljúga því í hipsterana að þessi fatastíll væri kúl og það verður nú að teljast harla vel af sér vikið,“ segir Jakob Bjarnar. Hver er þín tískufyrirmynd? „Clint Eastwood.“ Hvaða föt myndir þú taka með þér á eyðieyju? „Baðsloppinn minn.“ Hefur veiran haft áhrif á fatastílinn? „Já, óneitanlega. Þótt ég klæði mig alltaf upp fyrir morgunfundi; skyrtu, bindi og jakka, þá ríf ég mig úr að ofan og fer beint í sloppinn þegar ég slekk á teams-inu. Að neðanverðu er ég bara á nærbuxunum á þessum fundum, til að vera fljótari í sloppinn. Vinnugallann. Þau eru orðin afar sjald- gæf tilefnin sem gefast til að stríla sig almenni- lega upp. Já, það má eiginlega segja að þessi hel- vítis veira sé að drepa í manni allan tískumetnað.“ Uppáhaldsflíkin? „Erfitt að velja úr en til að segja eitt- hvað nefni ég Michael Kors-jakka sem ég keypti síðast þegar ég fór til New York til að dressa mig upp. Ég fer reglu- lega þangað, tek inn götutískuna og fer svo í fatabúðir og sjoppa hraustlega.“ Hvað dreymir þig um að eignast í fata- skápinn? „Skápurinn er nú býsna traustur en ég væri til í að eignast góð kjólföt og pípuhatt við. Og kannski, fyrst þú ert að bjóða, hvítan smóking upp á grínið, ég á svartan.“ Hefur þú einhvern tímann hent flík sem þú hefur séð eftir? „Hef ég einhvern tím- ann … Ég sé eftir hverri ein- ustu flík sem ég læt frá mér. Jafnvel þeirri sem er orðin allt of lítil. Ég sé fyrir mér að ég muni með tíð og tíma missa þessi 20 kíló sem ég hef bætt á mig jafnt og þétt undanfarin 20 árin. Sem svo riðlar öllu skipulagi í skápnum. Passað er upp á það, þegar þörf þykir að grisja í fataskápnum mínum, að ég sé fjarver- andi. Hitt hefur verið reynt og ég hendi mér grát- andi á eftir hverri flík. Hvernig er morgunrútínan þín? „Morgunrútínan mín virka daga er nokkurn veginn þannig að ég sprett á fætur eins og fjöður klukkan 06:30, klappa hundinum og dríf mig í kalda sturtu. Sest svo á legubekkinn sem ég er með inni á baði, hálfligg þar og legg heitan þvottaklút yfir andlitið til að mýkja það. Ber svo á mig sérstaka rakstursolíu og raksápu og raka mig. Þetta er mjög mikilvæg stund og leggur línuna fyrir daginn. Tannburstun, munnskol, og set á mig rakspíra: Armani Code. Laga espressó, les blöðin og fer svo í 40 mínútna göngutúr með hundinn. Hreinsa hugann fyrir morgunfund sem hefst klukkan níu.“ Hvað ertu lengi að taka þig til á morgnana? „Tíu mínútur.“ Hvaða húðvörur notarðu til að vera frísklegri? „Undanfarið hef ég aðeins verið að vinna með ChitoCare beauty- andlitskremið sem ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um. En aðallega eru það Sóley- húðsnyrtivörur sem ég hef notað samvisku- samlega alveg frá því Sóley stofnaði fyrirtækið. Og þakka þeim unglegt útlitið.“ Hvað er að finna í baðskápnum þínum? „Marta, hvað er ekki að finna í baðskápnum mínum?“ Ferðalag um völundarhús tískunnar Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður er litríkur persónuleiki með útpældan fatastíl. Hann var einu sinni í hljómsveitinni Kátum piltum og var á þeim tíma að vinna með ákveðið útlit. Það hefur svo þróast og í dag sækir hann innblástur í Clint Eastwood, sem er skiljanlegt því það er varla hægt að vera svalari en sá góði maður. Marta María | mm@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jakob Bjarnar Grétarsson leggur mikið upp úr því að vera sómasamlega til fara. Reuters Clint East- wood er fyrir- mynd Jakobs Bjarnars þegar kemur að stíl. AP ChitoCare- dagkremið er í uppáhaldi hjá Jakobi. Clint Eastwood hefur leikið mörg hlutverk í gegnum tíðina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.