Morgunblaðið - 05.05.2021, Page 16
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
H
úsið hennar Kristínar Gunnlaugsdóttur
var teiknað af Jósef Reynis arkitekt og
er á tveimur hæðum. Hún býr með börn-
um sínum þeim Melkorku Gunborgu Bri-
ansdóttur og Killian G.E. Brianssyni.
Hubert Sandhofer maki Kristínar er vín-
bóndi búsettur í Austurríki og kemur reglulega til Ís-
lands.
Inni á heimilinu er mikið af listaverkum. Bæði eftir
hana og aðra listamenn. Hún hefur ríka þörf fyrir að
breyta reglulega til og stendur í stöðugum umbótum
heima hjá sér.
,,Ég er hrifin af póstmódernískum byggingarstíl. Hús
afa og ömmu á Akureyri var teiknað af Sigvalda Thor-
darsyni og var draumahúsið mitt.
Þetta hús á Unnarbrautinni hreif mig strax þegar ég
kom inn í það í fyrsta sinn og minnti mig á hús afa og
ömmu. Það sem heillaði mig voru stórir gluggar með út-
sýni yfir sjó, aflöng stofa með mikilli lofthæð og panel í
lofti og vegg. Svo var mikill kostar að það var arinn sem
hefur reynst hjartað í húsinu.“
Prófar sig áfram með húsið á kvöldin
Kristín gengur í öll verk sjálf og hikar ekki við að
prófa sig áfram og jafnvel mistakast. Í húsinu er engin
geymsla sem mörgum þætti ókostur en er hluti af lífs-
viðhorfi Kristínar. Eina geymsluplássið er einföld
skáparöð í þvottahúsinu, en annars hefur Kristín lagt
áherslu á að safna ekki dóti heldur markvisst nota það
sem hún á. Svefnherbergin, vinnustofan og fjölnota
rými, stundum nýtt sem listgallerí, eru á jarðhæð. Síðan
er gengið upp á efri hæð þar sem er setustofa með sjón-
varpi, stór og opin borðstofa, flygill á upphækkuðum
palli og eldhús.
,,Ég vel að hafa alla veggi, ofna og ekki síst glugga í
sama bláa litnum.
Ég legg mikla áherslu á að útsýnið njóti sín og að
stofan virki stór og opin og vil þess vegna ekki hafa
gardínur.“
Ég hef aldrei séð þennan bláa lit áður. Hvaðan kemur
hann?
,,Ég á fallegt indverskt silkisjal sem ég fór með til
Garðars Erlingssonar í Litalandi. Hann er fær að greina
liti og fann rétta bláa tóninn fyrir mig sem fæst núna
hjá honum undir nafninu Kristín.
Ég fór bara af stað með pensilinn og rúlluna og tók
einn vegg í einu án þess að setja heimilið á hvolf.
„Að teikna
er eins og
að anda“
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður býr á Seltjarnarnesi í húsi
með útsýni yfir sjóinn. Húsið sem hún býr í er listaverk í þróun en það eru
líka orðin sem hún notar til að útskýra hlutina eins og hún sér þá.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Kristín Gunnlaugsdóttir
listakona hefur verið
að gera upp teppið
á stiganum hjá sér.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Það setur alltaf svip sinn á stofuna að vera
með fallegt hljóðfæri sem hægt er að spila á.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Myndlist er í forgrunni
á heimili Kristínar.
5 SJÁ SÍÐU 18
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021