Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 55
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 55 H ugrún Harðardóttir er stofnandi og eigandi hár- greiðslustofunnar Barbarella Coiffeur í miðbæ Reykjavíkur. Stofan hefur verið til frá því á haust- mánuðum ársins 2014. Hugrún stendur á bak við stólinn að laga hár flesta daga vikunnar ásamt því að sinna börnum og heimili í Vesturbænum. Sjaldan eða aldrei hefur áherslan verið meiri á fallegar hár- greiðslur, enda landmenn búnir að finna á eigin skinni hvernig er að komast ekki í hárgreiðslu og litun reglulega. „Það vinsælasta um þessar mundir er svokölluð „Shag“-klipping sem er mjög flott. Það er klipping með miklum styttum og fjaðraða enda. Hún gef- ur hárinu mjög mikla fyllingu að ofan og skemmtilega hreyfingu. Það er hægt að vera með þessa klippingu í mismunandi síddum en það sem er heitt núna er að hafa hana í millisídd sem er rétt fyrir neðan axlir. Allir geta prófað þetta „lúkk“ en það þarf að sjálfsögðu að taka tillit til þykktar hársins áður. Það þarf að fara varlega í að setja styttur í fíngert og þunnt hár.“ Fíngert hár þarf öðruvísi meðferð Hugrún segir línuna flotta hvort sem hárið er krullað eða ekki. „Ef hárið er rennislétt þá er gott að nota efni sem dregur fram áferðina í línunni þannig að það sé pínu „messí“. Stundum velja konur að vera með topp við þessa klippingu og þá er fallegt að hafa hann fjaðraðan í endana líka. Það er sannkölluð retrórokkaralína.“ Hugrún leggur mikla áherslu á að vernda hárið. „Ég vil hafa hárið sítt núna. Hárið á mér er fíngert og ég hef nýlega orðið fyrir hárlosi. Ég legg áherslu á að sápa hárið ekki oftar en einu sinni í viku en nota þó alltaf hárnæringu og mót- unarefni fyrir krull- urnar. Krullur í hári eru oftast þurrar og úfnar og þá er mik- ilvægt að takmarka shampónotkun því það þurrkar hárið ennþá meira. Ég er að prófa mig áfram með Davines- hárvörurnar í Curly Girl Method og hef fundið út að ég næ krullunum æðisleg- um með þremur vörum frá Davines sem eru grænar og leyfilegar í CGM (e Curly Girl Method). Það er Authentic- shampó, Replumping-næringin og Medium hold modeling-gelið.“ Jarðlitir vinsælir í hárið í sumar Hárlitirnir í sumar eru jarðtónar með fallegri dýpt í bland við ljósa tóna. „Það er alltaf gaman að fá sér aðeins ljósara hár yfir sumarmánuðina.“ Taka þarf tillit til heilbrigðis hársins, áferðar þess og þykktar þegar ákveðið er hversu sítt hárið á að vera. „Ekki reyna að halda í slitin strá bara til þess að vera með nokk- ur síð hár. Þá er alltaf fallegra að fara í styttra hár. Ef hárið er í góðri rækt og þykkt þá er hægt að leyfa sér að vera með sítt hár. Ég mæli samt ekki með hári niður á rass. Það eru engar líkur á að það geri eitthvað fyrir andlitið og er þá eflaust oftast bara í tagli eða snúð.“ Það ættu allir að gera einhverjar breytingar á hárinu fyrir sum- arið að hennar mati. „Það er hægt að breyta bæði lit og klippingu hársins. Það er bara svo skemmtilegt og afgerandi að bjóða þannig nýja árstíð vel- komna. Svo þarf auðvitað að huga sérstaklega að ástandi hársins ef breytingar verða á háttum eins og meira sund og meiri sól. Þá er nauðsynlegt að nota „leave in“-næringu eða olíu með sólarvörn sem vinnur á móti skaðanum á hárinu. Eins er frábært að venja sig á að nota djúpnæringu tvisvar til fjórum sinnum í mánuði.“ Hárbönd vinsæl í sumar Hugrún er hrifin af Davines-hárvörum og telur að allir geti fundið sínar hárvörur frá þeim. „Þegar kemur að fylgihlutum í hárið þá er tískan undir áhrifum frá sjöunda áratugnum í hárskrauti. Til að ná því útliti má nota klúta og borða við flatan topp og háan hnakka hvort sem hárið er slegið, uppsett eða í tagli. Ég tel hárið mjög mikið tjáningarform og stóran hluta af per- sónueinkennum fólks. Svo af hverju ekki að láta hárið vera hluta af því hvernig maður vill vera séður.“ Hugrún vinnur daglega að því að halda sínu eigin hári heil- brigðu. „Það er ekki svo mikil vinna. Það er gott fyrir hárið að fá að vera í friði fyrir utan næringarböð og mótunarefni. Mig langar stundum að lýsa hárið mitt meira en ég geri en það þolir illa lýsingu og brotnar auðveldlega. Eins eru hitajárn og mik- ill blástur oft álag líka sem ég sleppi nánast alveg.“ Aldamótagreiðslan vinsæl hjá yngra fólki Ef Hugrún væri ekki með hárgreiðsluna sem hún er með núna þá fengi hún sér aftur topp og millisítt hár með styttum. „Fyrir utan rokkaraklippingar sem minna á áttunda áratuginn og túberaða hnakka með hárböndum sem minna á sjöunda áratug- inn þá hefur verið vinsælt hjá yngri kynslóðum að lita hárbandið fremst við andlitið í mismunandi litum. Hárið er þá oftast lýst og skipt í miðju alveg eins og þegar ég var fimmtán ára eða í kringum 1999.“ „Rokkaraklippingar sem minna á áttunda áratuginn vinsælar í sumar“ Hugrún Harðardóttir hársnyrtimeist- ari mælir með „Shag“-klippingu sem er vinsæl um þessar mundir. Hárið er í miklum styttum með fjaðraða enda sem gefur rokkað og töff útlit. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Hugrún er að prófa sig áfram með hárvörur frá Davines í Curly Girl Met- hod til að ýkja krullurnar. Saltverslun.is • Hendrikkawaage.com • Leonard.is Vinsælasta hárið um þessar mund- ir er axlasítt hár klippt í styttur. Uppáhalds vörurn- ar hennar Hug- rúnar um þess- ar mundir eru Authentic Shampoo, Replumping næringin og Medium hold mod- eling gel.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.