Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Nýr Börkur, nýsmíði Síldarvinnsl- unnar, kom í fyrsta sinn til heima- hafnar í Neskaupstað í hádeginu í dag. Var hann í fylgd Beitis NK og sigldu skipin um Norðfjörð og þeyttu skipsflauturnar. Veður var með besta móti og fylgdist fjöldi fólks með komu skipsins. Þá var hægt að fylgjast með komu skipsins í beinni útsendingu. „Það eru ávallt tímamót þegar tekið er á móti nýju skipi, en síðasta nýsmíði sem Síldarvinnslan festi kaup á var rækjufrystitogarinn Blængur sem kom í fyrsta sinn til hafnar í Neskaupstað árið 1993,“ segir á vef Síldarvinnslunnar. Skipið verður til sýnis um helgina. Á sunnudag er sjó- mannadagurinn og verður form- lega tekið við skipinu á þeim degi. Þá verður því við hátíðlega athöfn gefið nafn sitt og í kjölfar þess munu sjómenn úr áhöfninni fara um skipið með gestum. gso@mbl.is Formlega tekið við skipinu í Norðfirði á sjómannadag og þá fær skipið einnig nafn Komu nýs Barkar fagnað Ljósmynd/Síldarvinnslan/Þorgeir Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ákveðið hefur verið að leggja niður læknastofur og skurðstofur í Domus Medica frá næstu áramótum. Þar eru um 70 sérfræðingar með læknastof- ur. Líklega munu einhverjir þeirra halda áfram annars staðar. Apótekið fer væntanlega einnig og blóðrann- sóknum verður hætt um áramótin en Röntgen Domus verður áfram í hús- inu. Húsið verður væntanlega selt, að sögn Jóns Gauta Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Domus Medica hf. „Rekstur læknastöðva hefur verið mjög þungur síðustu ár. Meðalaldur læknanna er að hækka og nýliðun hefur ekki verið jafn mikil og hún hefði þurft að vera vegna erfiðra rekstrarskilyrða. Nýting hefur því minnkað, sem íþyngir rekstrinum,“ sagði Jón Gauti. Hann sagði komið að endurbótum á skurðstofunum og læknastofunum eftir 55 ára rekstur. „Menn treysta sér ekki í það stóra verkefni í því starfs- umhverfi sem sjálfstætt starf- andi læknum er gert að starfa í. Það er bæði ótryggt og óvisst. Því miður hefur lengi ríkt ákveð- inn glundroði í stjórnun á heilbrigðisþjónustunni. Sú ríkisvæð- ingarstefna sem ríkisstjórnin hefur rekið í fjögur ár vinnur ekki með þessari starfsemi. Menn treysta sér ekki til að halda áfram í því ástandi sem hefur ríkt í stjórnun heilbrigð- isþjónustunnar nokkuð lengi.“ sagði Jón Gauti. Hann minnti á skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2018 um Sjúkratryggingar Íslands sem kaup- anda heilbrigðisþjónustu. Þar komi greinilega fram sá glundroði sem ríkt hefur í stjórnun heilbrigðiskerf- isins undanfarin ár. „Vandinn er sá að við höfum ekki markað þessum málaflokki heild- stæða stefnu byggða á þörfum sjúk- linga. Þar af leiðandi er hlutverk og ábyrgð aðila innan kerfisins óskýr. Þetta er viðamikill málaflokkur og margir sem koma að honum. Heil- brigðisráðuneytið með stefnumörk- un og stjórnun, landlæknisembættið með faglegar kröfur, Sjúkratrygg- ingar Íslands með innkaup og fjár- málaráðuneytið með fjármögnun. Það kom fram í skýrslu Ríkisendur- skoðunar að samstarf þessara aðila er í skötulíki og einkennist helst af togstreitu vegna óskýrra marka. Ástæða þess er skortur á stefnumót- un. Í rauninni hefur ekkert breyst síðan skýrslan kom út. Það sem rík- isstjórnin kallar stefnu í heilbrigðis- þjónustu er að mínu mati ekki byggt á þörfum sjúklinga. Þetta er í raun bara rammi utan um þetta íslenska ráðherraræði sem mér finnst fara illa með lýðræðið okkar,“ sagði Jón Gauti. Hann sagði ekki útlit fyrir að vald- hafar ætluðu sér að bæta úr þessu ástandi. Domus Medica hf. treysti sér ekki til að halda áfram að veita læknum þjónustu í þessu umhverfi. Reksturinn gæti ekki haldið áfram miðað við þá framtíðarsýn og ríkis- væðingarstefnu sem stjórnvöld hafa mótað síðustu ár. Domus Medica hefur rekið mót- töku og stofur sérfræðilækna frá 1966 og Læknahúsið hefur starfrækt skurðstofur í húsinu frá 1999. Það eru elstu einkareknu skurðstofur landsins og hafa starfað frá 1983. Domus Medica lokað um áramót Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Domus Medica Stofum um 70 sérfræðilækna verður lokað um áramótin. - Um 70 sérfræðilæknar eru með stofur í húsinu - Treysta sér ekki í endurbætur á húsnæðinu í því umhverfi sem sjálfstætt starfandi læknar búa við - Vantar stefnumótun sem miðast við þarfir sjúklinga Jón Gauti Jónsson Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Diljá Mist Einarsdóttir komu form- legri athugasemd á framfæri við yf- irkjörstjórn prófkjörs Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík í gær um að Magnús Sigurbjörnsson, bróðir Ás- laugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra, hefði haft að- gang að flokksskrá flokksins eftir að framboðsfrestur í prófkjörinu rann út. Töldu þau að brotið hafi verið gegn reglum prófkjörsins. Guðlaugur Þór og Áslaug Arna keppast um efsta sætið í prófkjörinu sem fram fer um helgina. Diljá Mist býður sig fram í þriðja sætið. Yfirkjörstjórn Varðar, fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykja- vík, komst undir kvöld að þeirri nið- urstöðu að framboð Áslaugar hafi ekki brotið gegn prófkjörsreglum. Staðfest var að Magnús hefði haft aðgang að skránni vegna starfa fyrir flokkinn og að aðganginum hefði verið lokað á mánudag. Síðasta inn- skráning Magnúsar í flokksskrána hafi hins vegar verið 10. maí og það hafi verið að beiðni starfsmanns flokksins vegna verkefnis sem Magnús vann að fyrir flokkinn. „Í þessum úrskurði fæst staðfest að aðgangurinn hafi verið opinn til 1. júní og að hann hafi verið opinn eftir að prófkjörsbaráttan hefst. Út á það gekk athugasemdin, að fá þetta upp á yfirborðið. Það er eðlilegt að gera athugasemdir við slík atriði og tryggja það að allir séu að fylgja sömu leikreglum,“ segir Sigurður Helgi Birgisson, umboðsmaður framboðs Guðlaugs Þórs. Áslaug Arna segir að kvörtunin hafi komið sér á óvart. Að öðru leyti sagðist hún ekki vilja takast á við samstarfsfélaga sína í fjölmiðlum. Athugasemd hafnað - Guðlaugur Þór og Diljá Mist töldu framboð Áslaugar Örnu hafa aukinn aðgang að gögnum um kjósendur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.