Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 VINNINGASKRÁ 116 10649 19574 30370 37607 48345 59347 73553 952 11604 19577 30448 37679 48843 59413 74227 1114 11696 20082 30469 38201 49223 59614 74247 1522 11829 20121 30532 38394 49306 60061 74671 1577 11897 20465 30645 38674 49545 60952 74909 1596 12451 20507 31346 39004 49571 61493 75106 1667 12495 20685 31822 39508 49942 61632 75115 1950 12945 20724 31943 39643 50610 61661 75412 2569 12951 20796 32203 39902 50918 62196 75470 2659 13005 20842 32299 40284 51239 62556 75681 3992 13256 21269 32479 41273 51305 63060 75835 4206 13619 21629 32509 41346 51497 63252 75888 4215 14002 21761 32607 41620 51807 63601 75893 4379 14530 21961 32727 41670 52280 63904 75983 4462 14759 22041 32857 41714 52372 64075 76278 5118 15065 22127 32925 41775 53043 65145 76289 5158 15148 22512 32970 41842 53306 65560 76781 5497 15195 23361 32980 42076 53743 65666 77383 5766 15463 23394 32990 42205 53922 65780 77616 5867 15674 23403 33158 42419 54325 66011 77772 5893 15722 23428 33478 42623 54347 66471 77774 5960 15937 23530 33613 42625 55411 66598 77834 6117 16230 23866 33732 43250 55695 66666 78076 6831 16413 23899 34024 43473 55865 67337 78805 6834 16558 24354 34725 44640 55869 68052 78850 7164 16869 24531 34744 44889 56572 68373 79233 7221 17461 24825 34851 45185 56867 68727 79539 7294 17601 24931 34978 45341 56995 69214 79668 8078 17928 25138 35267 46047 57032 69587 79684 8255 18182 25703 35405 46092 57193 69776 79732 9197 18312 26034 35456 46204 57307 69875 79819 9441 18709 26465 36577 46454 57411 69901 9602 19013 26687 36749 46994 57584 71151 9967 19372 28259 36820 47001 57696 72699 10151 19415 28581 37064 47325 58246 73363 10157 19443 28906 37165 47407 58759 73382 10321 19538 29524 37538 48138 58769 73450 828 9499 19022 26947 36522 45701 54672 72286 1040 10558 19813 27377 37606 46610 55034 73147 1929 11547 20014 27676 38253 46819 58390 73252 2189 12575 20028 27776 38649 47761 58611 73337 2280 12916 20374 27791 39693 47962 59686 74662 3393 14680 20716 27891 40869 48670 62244 77879 3525 15040 21385 29730 41069 50418 64401 78207 3709 15079 23070 31505 41124 50805 64884 78809 3921 15291 25234 32358 41402 51422 65049 79401 5195 17094 25895 33269 41747 52032 68231 5681 17130 26640 33808 42962 52837 71109 6137 17230 26695 34168 43848 53384 71397 7074 17684 26779 36127 44365 54476 71533 Næstu útdrættir fara fram 10., 18., 24.júní & 1. júlí 2021 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 4560 13158 48190 51539 52960 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 2475 16251 32379 48053 54760 68476 6312 18281 39787 49729 59372 71715 13227 19387 41350 53968 62829 73007 16087 27460 43326 54637 64363 75232 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 8 1 0 6 5. útdráttur 3. júní 2021 VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ég hef alltaf haft sterkar skoðanir og ríka réttlætiskennd, og ef mér finnst eitthvað vera óréttlátt vil ég breyta því,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunar- samvinnuráðherra, en hann sækist eftir efsta sætinu í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Reykjavík, sem fram fer núna um helgina. Guðlaugur Þór segir að grunnhug- sjón sín í stjórnmálum hafa markast af tvennu. „Annars vegar var það frelsið, því ég trúi því að fólk eigi að hafa frelsi til þess að njóta hæfileika sinna,“ segir Guðlaugur og bætir við að kannski megi rekja þessa hugsjón til uppruna hans. „Ég er eins og kom- ið hefur fram áður ættleiddur og hef aldrei haft sterka pólitíska bakhjarla. Ég hef því mjög sterka sannfæringu fyrir að allir geti notið hæfileika sinna, saman hvaðan þeir koma,“ seg- ir Guðlaugur Þór og bætir við að Ís- land verði að vera land þar sem allir fái tækifæri til þess. Guðlaugur segir hitt grundvallar- gildi sitt felast í slagorðinu Stétt með stétt. „Mér hefur alltaf þótt það mjög aðlaðandi hugtak. Það var mikil gæfa hjá stofnendum flokksins þegar þeir lögðu áherslu á þetta tvennt, frelsið og samstöðu stétta.“ Góð samskipti skipta öllu Talið berst að prófkjörsbaráttunni, en Guðlaugur Þór segir að hann hafi notið sín mjög vel í henni, enda finnist honum fátt ánægjulegra í stjórnmál- um en að eiga samskipti við fólk. „Sjálfstæðisflokkurinn er fjölda- hreyfing, og ég hef frá upphafi lagt áherslu á að starfa með fólkinu sem er í flokknum.“ Guðlaugur Þór segir að hann hafi uppskorið ríkulega af því samstarfi, og það sjáist meðal annars í þeirri fjölbreyttu flóru sem hafi lagt leið sína á kosningaskrifstofu hans. Þar sé oftar en ekki að ræða fólk úr gras- rót flokksins sem hann hafi átt sam- skipti við í áratugi. Guðlaugur Þór segist sannfærður um að prófkjörsleiðin sé besta leiðin til þess að velja sigurstranglegan lista, þar sem hún sé lýðræðisleg og gefi fólki sem starfar innan flokksins tækifæri til þess að segja skoðun sína á störfum fulltrúa sinna með beinum hætti. „Flestir sem taka þátt í stjórnmál- um eru ekki í framboði og ætla sér ekki endilega í það, en þeir vilja hafa áhrif og láta gott af sér leiða. Það þýð- ir að þeir sem eru kjörnir fulltrúar verða að hlusta á þetta fólk. Hví ætt- irðu að taka þátt í stjórnmálastarfi, ef það er bara hóað í þig á fjögurra ára fresti?“ segir Guðlaugur Þór. „Við verðum að bera virðingu fyrir okkar fólki sem sér til þess að við náum kjöri og getum komið okkar sameig- inlegu hugsjónum á framfæri.“ Breiddin skipti miklu máli Aðspurður um stjórnarsamstarfið segir Guðlaugur Þór það hafa gengið vel þrátt fyrir að mikið bil sé á milli samstarfsflokkanna. „Það hefur þýtt að við höfum þurft að setjast niður og reynt að ná saman um mál sem við er- um mjög ósammála um,“ segir Guð- laugur en bætir við að það hafi hjálp- að mjög að fólkið sem leiði samstarfið sé mjög reynt í stjórnmálum. Hann segir að ekki eigi að vanmeta gildi reynslunnar. „Þegar ég var yngri hafði ég mikla trú á sjálfum mér og það hefur ekki breyst, en núna er ólíku saman að jafna að tak- ast á við verkefnin, þegar maður hef- ur öðlast reynsluna einnig.“ Það hafi ekki síst verið þörf á, þar sem kjörtímabilið hefur verið mjög sérstakt að mörgu leyti. Guðlaugur Þór segir hafa verið styrk í því hversu ríkisstjórnin var hugmyndafræðilega breið, sérstaklega í annars vegar kjarasamningunum, og hins vegar í kórónuveirukreppunni. „Faraldurinn er vonandi það næsta sem við munum komast stríðs- ástandi. Það hefur gengið mjög vel í baráttunni gegn honum, en það var ekki auðvelt, og ég held að það hafi verið gott að það var ólíkt fólk við borðið þegar verið var að taka ákvarðanir um viðbrögðin.“ Hann segir verkefnin framundan aðkallandi, og að Sjálfstæðisflokkur- inn þurfi að eiga þar aðild að, þar sem brýnt verði að auka verðmæti og bæta lífskjör að faraldri loknum. „Sjálfstæðisflokkurinn ber mesta ábyrgð á því að við fylgdum þeirri hagfræðikenningu sem segir í hinni helgu bók, að við nýttum góðu árin til þess að undirbúa þau mögru,“ segir Guðlaugur Þór. Ríkið hafi því staðið vel þegar kom að kórónuveirukreppunni, ólíkt borg- inni. „Reykjavíkurborg notaði góðu árin til þess að auka skuldirnar, og ég veit ekki hvenær þau þar ætla að borga þær niður en það verður erf- iðara þegar hart er í ári.“ Þá skipti miklu að landið sé sam- keppnishæft og aðlaðandi fyrir kom- andi kynslóðir. „Ísland verður að vera land þar sem unga fólkið vill vera og njóta sinna tækifæra. Það er hollt að hafa í huga að stjórnmála- menn búa ekki til verðmæti, heldur gerir fólk og fyrirtæki. Við getum skapað svigrúm til þess, og það eina sem kemur í veg fyrir að Ísland sé land tækifæranna eru heimatilbúnar hindranir.“ Guðlaugur Þór segist einnig hafa áhyggjur af öðru, sem sé mun minna rætt, en það sé lýðfræðileg öldrun þjóðarinnar, en brátt verði um fimmt- ungur Íslendinga á lífeyrisaldri. „Það er góð þróun, því það þýðir að lífs- líkur og lífsgæði hafa aukist, en það þýðir einnig að það þarf að tryggja að hér sé þjónusta fyrir þá sem eldri eru.“ „Málefni aldraðra eru framtíðar- mál og þau snerta alla, ef fólk á for- eldra eða afa og ömmu sem fá ekki þjónustu við sitt hæfi, getur það sett fjölskyldur í spennitreyju.“ Hann segir hættu á því að hér muni biðlist- ar á hjúkrunarheimili lengjast, þar sem nú virðist nokkur ár í að ný slík verði reist í borginni. Alþjóðamál opni margar brýr Tími Guðlaugs Þórs í utanríkis- ráðuneytinu hefur verið viðburðarík- ur, og segir hann ráðuneytið hafa náð eftirtektarverðum árangri á mörgum sviðum, þrátt fyrir að það hafi ekki blásið út líkt og margar aðrar ríkis- stofnanir. „Við höfum með áherslu- og skipulagsbreytingum náð að skila mjög öflugu starfi á mörgum svið- um,“ segir Guðlaugur Þór og nefnir sem dæmi málefni norðurslóða, veru Íslands í mannréttindaráði Samein- uðu þjóðanna og samstarf Norður- landa og Eystrasaltsríkjanna. Nýafstaðinn fundur Norður- skautsráðsins vakti sömuleiðis at- hygli. „Þegar við tókum við for- mennsku við því sagði ég að það væri á erfiðasta tíma í sögu ráðsins, því spennan er mikil, ólíkar þjóðir eru þar inni og miklar breytingar fram- undan sem munu hafa mikil áhrif um allan heim,“ segir Guðlaugur Þór. Hann bætir við að sameiginleg yf- irlýsing fundarins hafi verið afrakst- ur þrotlausrar vinnu í ráðuneytinu, og Íslendingar hafi fengið mikið lof fyrir frá hinum þjóðunum í ráðinu. „En þetta gerist ekki af sjálfu sér,“ segir Guðlaugur Þór. „Ég var varað- ur við því, að ég myndi týnast í þessu ráðuneyti. Ég myndi týnast í útlönd- um og enginn myndi vita hvað ég væri að gera. Það hefur því verið markmið mitt, að efla umræðu um al- þjóðamál, því þau eru svo mikilvæg fyrir okkur,“ segir Guðlaugur Þór. Hann segir að þróunin hafi verið sú, að á sama tíma og sífellt auðveld- ara hafi verið að fá upplýsingar um það sem sé að gerast úti í heimi, hafi þróunin á heimsvísu verið sú að fólk horfi meira inn á við. Hann nefnir sem dæmi að á sínum tíma hafi for- síða Morgunblaðsins verið tileinkuð erlendum fréttum, og að öll umræða um utanríkismál hafi verið mun meiri þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum. Guðlaugur Þór segir því að hann hafi lagt á það ríka áherslu að auka umræðu, bæði innan Sjálfstæðis- flokksins og utan, um þessi mál, því þau skipti okkur svo miklu máli. „Ég er kannski ekki að klippa á borða og vígja brýr, en þær eru margar brýrn- ar sem við opnum með alþjóðlegum samningum.“ Ísland geti því hæglega látið að sér kveða á alþjóðavettvangi, jafnvel langt umfram það sem ætla mætti af stærð landsins. Guðlaugur Þór nefnir sem dæmi mannréttindaráðið, þar sem landið hafi haft forgöngu um að þrýsta á þau ríki, sem jafnvel hafi set- ið lengi í ráðinu án þess að hirða um réttindi eigin þegna, eins og Sádí-Ar- abíu og Íran. „Þetta er eitthvað sem við getum gert mjög vel. En það þýðir ekki að við eigum að reyna að gera alla hluti og breyta heiminum. Við þurfum að vita hvar styrkleikar okk- ar liggja,“ segir Guðlaugur Þór, og nefnir öryggisráðið og milligöngu í deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs sem verkefni sem önnur ríki geti sinnt betur. „Þar sem við stígum niður, eigum við að gera það með ákveðna sýn, og við ætlum að skilja eitthvað eftir okk- ur. Þannig er það í lífinu, við verðum að velja það sem við getum gert vel og nýta hæfileika okkar.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Utanríkisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson segir Ísland geta látið að sér kveða á alþjóðavettvangi með að velja sér verkefni sem hægt sé að vinna vel. Fólk hafi frelsi til að nýta hæfileika sína - Guðlaugur Þór segir Ísland geta látið gott af sér leiða ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.