Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
1. sæti
ÁSLAUG
ARNA
kjósum FRAMTÍÐINA
Kjörstaðir eru opnir í dagmilli 11 - 18
og ámorgun, laugardagmilli 10 - 18
Kosið er á eftirfarandi stöðum:
Félagsheimili Sjálfstæðis-
félaganna íBreiðholti,
Álfabakka 14a (Mjódd)
Félagsheimili
Sjálfstæðisfélagsins í
Grafarvogi,Hverafold
1-3 (2. hæð)
Valhöll,
Háaleitisbraut 1
Hótel Sögu,Hagatorgi
Félagsheimili
Sjálfstæðisfélagsins
íÁrbæ,Hraunbæ 102b
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Benjamín Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, hvatti í gær þá þing-
menn ísraelska þjóðþingsins, Kness-
et, sem kjörnir hefðu verið með
„atkvæðum hægrimanna“, til að
greiða atkvæði gegn nýrri ríkis-
stjórn, sem mynduð var á elleftu
stundu í fyrrakvöld áður en frestur til
stjórnarmyndunar rann út.
Samkvæmt þingsköpum þarf ný
ríkisstjórn að njóta stuðnings meiri-
hluta þingmanna, eða 61 af 120 þing-
mönnum, áður en hún getur tekið við.
Ekki var vitað hvenær sú atkvæða-
greiðsla færi fram, en talið var að það
yrði í síðasta lagi í byrjun næstu viku.
Þó að hvorki meira né minna en
átta stjórnmálaflokkar komi að
myndun ríkisstjórnarinnar eiga þeir
fátt sameiginlegt annað en andúð á
Netanyahu, sem setið hefur lengst
allra í embætti forsætisráðherra. Von
hans felst þá helst í því að einn þing-
maður í hinum nýju stjórnarflokkum
muni svíkja lit þegar kemur að
traustsyfirlýsingu þingsins, en sam-
anlagður þingstyrkur flokkanna átta
nær rétt svo yfir meirihlutaþröskuld-
inn á þinginu.
Netanyahu sagði á Twitter-síðu
sinni að allir hægrimenn yrðu að
beita kröftum sínum gegn hinni
„hættulegu öfgavinstristjórn“ en
hann hafði áður ráðist að Naftali
Bennett, leiðtoga Yamina-flokksins,
fyrir að hafa dregið að sér atkvæði
hægrimanna á fölskum forsendum,
og leitað svo í faðm vinstriflokkanna
við stjórnarmyndunarumleitanir.
Þjóðstjórn fram yfir kosningar
Fái ríkisstjórnin brautargengi
verður Bennett forsætisráðherra Ísr-
aels næstu tvö árin, en hann er sagð-
ur þjóðernissinnaður hægrimaður og
trúrækinn gyðingur. Bennett var
varnarmálaráðherra í stjórn Net-
anyahus á síðasta ári, en yfirgaf
stjórnina þegar Netanyahu leitaði
samstarfs við bláhvíta bandalagið.
Bennett segir sig vera lengra til
hægri en Netanyahu, en hann hefur
meðal annars lagst mjög hart gegn
hinni svonefndu „tveggja ríkja lausn“
á málefnum Ísraels og Palestínu.
Sagðist Bennett hafa gengið til liðs
við stjórnina til þess að binda endi á
„brjálæðið“, en fernar þingkosningar
hafa verið haldnar á síðustu tveimur
árum í Ísrael.
„Fernar kosningar hafa þegar
sannað okkur öllum, að það er engin
hægristjórn í boði undir stjórn Net-
anyahus. Valmöguleikarnir voru
fimmtu kosningarnar eða þjóð-
stjórn,“ sagði Bennett.
Samkvæmt stjórnarsáttmálanum
mun forsætisráðuneytið svo renna til
Yair Lapid, leiðtoga miðjuflokksins
Yesh Atid, að tveimur árum liðnum.
„Ég lofa að þessi ríkisstjórn mun
starfa í þágu allra Ísraela, bæði
þeirra sem kusu hana og hinna sem
gerðu það ekki,“ sagði Lapid á Fa-
cebook-síðu sinni þegar stjórnar-
myndunin var í höfn.
Arabar með í fyrsta sinn
Einn af flokkunum átta er flokkur
íhaldssamra múslima, Raam, og er
það í fyrsta sinn sem flokkur Ísr-
aelsmanna af arabískum uppruna
fær brautargengi í ríkisstjórn, en
þeir eru um 20% af íbúafjölda lands-
ins.
Mansour Abbas, leiðtogi flokksins,
sagði í gær að flokkurinn hefði með
stjórnarsamstarfinu loks fengið lög-
mæti til þess að hafa áhrif á stjórn-
málaferli Ísraels, frekar en að sitja
bara hjá. „Það opnar víðar dyr fyrir
okkur til að hafa áhrif á stefnu og
ákvarðanir, öllum ríkisborgurum til
hagsbóta, ekki síst þeim arabísku,“
sagði Abbas.
Bandamenn Netanyahus hafa
gagnrýnt ákvörðun Bennett og La-
pid, að treysta á atkvæði araba á
þingi, og sagði þingmaðurinn Bezalel
Smotrich að Bennett hefði nú tekið
höndum saman við „stuðningsmann
hryðjuverka sem finnur samkennd
með óvinum Ísraels.“
Matan Kamina, þingmaður Yam-
ina, sagðist hins vegar sannfærður
um að nýja stjórnin yrði enn lengra
til hægri en stjórn Netanyahus.
AFP
Stjórnarmyndun Yair Lapid, Naftali Bennett og Mahmoud Abbas við und-
irritun stjórnarsáttmálans í fyrrakvöld. Stjórnin hefur 61 þingmann af 120.
Netanyahu berst til þrautar
- Hvetur hægrimenn til að fella nýmyndaða ríkisstjórn - Nýr forsætisráðherra
sagði þrautreynt að mynda stjórn með Netanyahu - Arabar með í fyrsta sinn
Heimsfaraldur kórónuveirunnar
hefur skaðað réttindi barna um allan
heim, samkvæmt niðurstöðum ár-
legrar könnunar á vegum hollensku
samtakanna KidsRights. Sam-
kvæmt henni stóðu réttindi barna
styrkustum fótum á Íslandi, í Sviss
og Finnlandi, en verst í Tsjad, Afg-
anistan og Sierra Leone.
Marc Dulleart, stofnandi samtak-
anna, sagði að áhrif faraldursins á
börn hefðu verið meiri en óttast var í
fyrstu, þar sem hann hefði orðið til
þess að loka skólum í næstum heilt
ár fyrir rúmlega 168 milljónum
barna. Þá hafi um eitt af hverjum
þremur börnum ekki haft valkost á
fjarnámi meðan skólarnir lokuðu.
Þá höfðu um 142 milljónir barna
bæst í hóp fátækra vegna efnahags-
kreppunnar sem faraldurinn olli og
um 80 milljónir barna gætu farið á
mis við bólusetningu vegna ástands
heilbrigðiskerfisins.
Sagði Dulleart að nauðsynlegt
væri að auka menntun sem fyrst á
ný, ellegar stæði fyrir dyrum harm-
leikur heillar kynslóðar.
AFP
Menntun Faraldurinn hefur haft
mikil áhrif á menntun barna.
Faraldurinn
hafi skaðað
réttindi barna