Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
Heimilin og atvinnulífið
hafa vart undan að skapa
verðmæti til að mæta sí-
vaxandi útgjöldum ríkis og
sveitarfélaga. Á árunum
1980-1985 voru útgjöld
hins opinbera að meðaltali
36% af vergri landsfram-
leiðslu en 45% á árunum
2014-2019.
Árið 1988 var hæsta
þrep tekjuskatts 35% en
nú er það 46%.
Í grófum dráttum má
segja að landsmenn séu
einum mánuði lengur að
vinna fyrir sköttunum á
ári hverju en þeir voru í
byrjun níunda áratug-
arins.
Þetta gerðist auðvitað
ekki á einni nóttu eða með
einu stökki. Þetta gerist
þegar við stjórnmálamenn
setjum ekki öll góðu málin sem þrýst er á um utan úr
bæ – að ógleymdum öllum sendingunum frá Brussel –
í stóra samhengið. Í tómarúmi kunna þessi mál hvert
um sig að þykja framfaraspor og lýsa metnaði á til-
teknu sviði. Er ekki líka eytt í annað eins? Hví ekki
þetta eina verkefni í viðbót? En eins og í öðrum bú-
skap þá safnast þegar saman kemur.
Stofnanir og verkefni sem rata inn á fjárlög fara
ekki heldur svo glatt þaðan. Þótt tekist sé að ein-
hverju leyti á um mál þegar þau fara í fyrsta sinn á
fjárlög þá láta menn gjarnan þar við sitja. Engin til-
laga kemur fram um að fella verkefnið út af fjárlögum
að ári.
Líklegra er að þaðan í frá verði litið á það sem blóð-
ugan niðurskurð ef framlög í verkefnið hækka ekki ár
frá ári. Útgjöld verða eini mælikvarðinn á árangur á
því sviði.
Vinstriflokkarnir metast til að mynda mjög um hver
getur hrópað hæstu töluna um útgjöld til loftslags-
mála. Ég spurði því um daginn á þinginu hvernig
árangur væri mældur af 60 milljarða útgjöldum sem
gert er ráð fyrir til loftslagsmála á árunum 2020-2024.
Vita menn hvort þeir eru að velja hagkvæmustu leið-
irnar? Ég mun þurfa að spyrja aftur.
Eftir Sigríði Ásthildi Andersen
» Árið 1988
var hæsta
þrep tekju-
skatts 35% en
nú er það 46%.
Sigríður Ásthildur
Andersen
Höfundur er þingmaður og sækist eftir 2. sæti
í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Eytt í eitt
í einu
Það er áleitin spurn-
ing hvort vit sé í því að
taka þátt í stjórn-
málum, leggja sjálfan
sig og verk í dóm kjós-
enda. Að leggja höf-
uðið undir!
Ég hef tvisvar áður
tekið þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
Hið fyrra sinni árið
2012 fyrir kosningar
2013 fékk ég næstflest atkvæði í
prófkjörinu og næstflest atkvæði í
fyrsta sæti. Niðurstaðan varð 4. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins.
Í hinu síðara sinni kom framboð
sem beinlínis var stefnt gegn mér,
en niðurstaðan varð aftur fjórða
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.
Eftir að úrslit lágu fyrir í próf-
kjörinu 2016 var stefnt að því leynt
og ljóst að ég skyldi færður niður
um sæti.
Sú varð niðurstaðan; ég var færð-
ur úr fjórða sæti í fimmta! Og ég
hélt friðinn! Án þess að fá aukatekið
takk fyrir!
Þeir sem á undan mér voru töldu
þessa færslu tæra snilld, enda var
hún ekki á þeirra kostnað.
Fimmta sæti dugði til þing-
mennsku árið 2016 en það dugði
ekki í kosningunum 2017.
Enn á ný í prófkjör
Enn á ný hyggst ég gefa kost á
mér í prófkjöri hjá Sjálfstæð-
isflokknum í Kraganum fyrir kosn-
ingar í haust. Hvert skal stefnt?
Eins ofarlega og kost-
ur er, því það virðist
regla fremur en und-
antekning að skáka
mér til á listanum.
Þriðja sæti eða hærra!
Ég er á góðum aldri.
Ég er yngri en Breta-
drottning og breski
ríkisarfinn. Ég er yngri
en forseti Bandaríkj-
anna. Þroskaðir þurfa
sinn fulltrúa.
Þekking og reynsla
Ég býð mig fram í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suð-
vesturkjördæmi vegna þess að ég tel
mig hafa þá þekkingu og reynslu
sem þingmaður þarf:
- Þekkingu á sögu lands og þjóð-
ar
- Þekkingu á mótun utanrík-
isstefnu
- Þekkingu á erlendri sögu og al-
þjóðamálum
- Þekkingu á efnahags- og
skattamálum.
- Þekkingu á fjármálamarkaði
- Þekkingu á erlendum við-
skiptum
- Þekkingu á málefnum þeirra er
minna mega sín
- Þekkingu og þor til að taka af-
stöðu í erfiðum málum
Ég er stoltur af þingferli mínum.
Ekki af fjölda mála sem ég lagði
fram heldur þeim þingmálum rík-
isstjórnarinnar sem ég greiddi götu.
Ber þar hæst upplausn þrotabúa
hinna föllnu banka og afnám gjald-
eyrishafta. Ég hélt mig til hlés með
að halda veislu að loknum þeim sigri.
Mín efsta hugsun er sú að löggjöf
eigi ekki að mismuna fólki. Það ber
nokkuð við að þingmenn og rík-
isstjórn leggi fram þingmál til mis-
mununar.
Stjórnmál snúast um að skapa
fólki og fyrirtækjum jöfn tækifæri.
Stjórnmál snúast um fjárhagslegt
sjálfstæði einstaklinga.
Frjáls sparnaður
Frjáls sparnaður er ein af fimm
stoðum lífeyris landsmanna.
Hinar stoðirnar eru:
- Almannatryggingar
- Eigið húsnæði
- Lífeyrissjóðir
- Frjáls viðbótarlífeyrissparn-
aður
Greinar um stjórnmál og
bókmenntir til skrauts
Á undanförnum sex árum hef ég
skrifað um 180 greinar um stjórn-
mál og ýmis hugðarefni mín í Morg-
unblaðið. Ég hef reynt að skrifa
mínar greinar á annan veg en sam-
ferðamenn mínir. Að skapa hugsun
og óhefðbundna nálgun. Til þess hef
ég notað söguþekkingu og bók-
menntir. Stundum til skrauts!
Stundum til áherslu!
Það er ekki mitt að dæma hvernig
til hefur tekist!
Efni greinanna hefur verið fjöl-
breytt; menning, vísindi, listir, heil-
brigðismál, ferðaþjónusta og flug-
mál, fjármál einstaklinga og þjóðar,
frelsi og sjálfstæði. Stríðsrekstur og
varnarmál. Þátttaka í alþjóðlegu
samstarfi.
Síðast en ekki síst hafa málefni líf-
eyrissjóða verið mér ofarlega í huga.
Sennilega er ekkert málefni eins
mikilvægt fyrir aldraða og lífeyr-
issjóðir og starfsemi þeirra.
Á liðnum árum hef ég ferðast um
landið á eigin vegum. Ég tel mig
nokkuð vel að mér um lífskjör í land-
inu sem ól mig og hefur veitt mér
tækifæri.
Um framtíð!
Atvinnustefna á að skapa ungu
fólki fjölbreytt tækifæri.
Stjórnmál snúast um framtíð, en
oft með reynslu fortíðar í farteskinu.
Lausnarorð flestra þeirra vanda-
mála sem íslenskt samfélag býr við
er atvinna fyrir alla. Ísland verður
aldrei sjálfbært með 10% atvinnu-
leysi. Hagvöxtur og bati liðinna ára
hefur um of byggst á loðnu og mak-
ríl. Þar er ekkert í hendi.
Atvinnustefna þarf að byggjast á
nýsköpun og hátæknigreinum og
þar er orkufrekur iðnaður ekki und-
anskilinn. Flug og ferðaþjónusta eru
hátæknigreinar!
Heilbrigði
Eins einföld og grunnheilsugæsla
er, þá eru heilbrigðismál hátækni.
Heilbrigðismál varða alla og biðtími
getur aldrei orðið eðlilegur þegar
um alvarlega sjúkdóma er að ræða
eða ólíðandi kvalir.
Ég tel að þekking mín og meira en
50 ára reynsla á vinnumarkaði verði
mér dýrmæt reynsla til setu á Al-
þingi, nái ég góðri kosningu í próf-
kjöri og í kosningum til Alþingis.
Ég þarf góða kosningu
Að þessu öllu samanlögðu býð ég
mig fram í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Suðvesturkjördæmi!
Einu sinni enn!
Ég tel mig auka breidd og skír-
skotun til kjósenda fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn.
Ég legg verk mín, skoðanir og
lífsviðhorf til mannlífsins í dóm kjós-
enda.
Að frelsa heiminn
Prófkjör er eins og orrusta um að
frelsa heiminn. Um það orti Steinn
Steinarr:
Að frelsa heiminn er eins og að standa
uppi á stól
í stóru veitingahúsi og kalla út í salinn:
Hér inni er stúlka í alltof þröngum kjól.
Og öllum er ljóst, að þessi maður er
galinn.
Það er sama, þótt þú sért góður maður
og gegn
og gangir í hlé eins og drengur, saklaus
og feiminn.
Þú ræðst samt alltaf á það, sem þér er
um megn,
og þess vegna tekst þér aldrei að frelsa
heiminn.
En ég þarf að fá góða kosningu til
að niðurstaða prófkjörsins verði
virt!
Ég þarf kosningu í þriðja sæti eða
ofar!
Eftir Vilhjálm
Bjarnason »En ég þarf að fá
góða kosningu
til að niðurstaða próf-
kjörsins verði virt!
Ég þarf kosningu í
þriðja sæti eða ofar!
Vilhjálmur
Bjarnason
Höfundur var alþingismaður
og verður það aftur.
Fram til orrustu í prófkjöri í Kraganum
Þegar harðnar á dalnum og
vindar blása á móti höfum við
Íslendingar þann góða eig-
inleika að þétta raðirnar og
tvíeflast í mótlætinu. Þraut-
seigjan og staðfestan sem fyrri
kynslóðir þurftu að treysta á
til lífsbjargar í harðbýlu landi
hafa enn á ný reynst okkur
frábært veganesti í óvæntri
glímu við heimsfaraldurinn. Í
þeirri glímu hefur það sannast
að þegar reynir verulega á búa
landsmenn yfir æðruleysi og
skapfestu til þess að láta ekki
sundurlyndi, eigingirni eða
taugaveiklun ná yfirhöndinni.
Þess vegna getur líka verið
bjart fram undan ef við treyst-
um áfram á eigin staðfestu og
áræði. Ísland er land tækifær-
anna.
Við erum lánsöm þjóð að
mörgu leyti og saman höfum
við náð þeim árangri að
tryggja landsmönnum einhver bestu lífsskil-
yrði, bæði efnahagsleg og samfélagsleg, sem
völ er á. Það gerðist hins vegar ekki af sjálfu
sér. Við tókum þá ákvörðun að nýta nátt-
úruauðlindir með skynsamlegum hætti og
gerum enn. Við tókum ákvörðun um að eiga
í viðskiptum við aðrar þjóðir og eigum enn.
Við tókum ákvörðun um að byggja upp öfl-
ugt velferðarkerfi og fjárfesta í menntun og
við gerum það enn.
Fjölbreytni í frelsinu
Eftir stendur að losa okkur við heima-
tilbúnar hindranir svo við getum náð enn
meiri árangri til framtíðar. Það gerum við
ekki nema með frelsi til fjölbreytni. Við
þurfum fjölbreytta heilbrigðisþjónustu þar
sem fleiri koma að borðinu. Við styðjum fjöl-
breytt menntakerfi með aðkomu sem
flestra. Við stöndum fyrir fjölbreytt atvinnu-
líf sem byggist á stoðum þess sem við höfum
byggt upp í gegnum tíðina. Á sama tíma er
mikilvægt að einfalda rekstrarumhverfi at-
vinnulífsins. Slíkt styrkir rekstrargrundvöll
fyrirtækja og ýtir undir tækifæri öflugs
fólks til að spreyta sig á markaði – þar sem
það hefur möguleika á að njóta ávaxta dugn-
aðar síns og hugmyndaauðgi, og skapa störf
og verðmæti sem samfélagið
nýtur allt góðs af. Saga okkar
ungu þjóðar sýnir að þegar við
treystum á okkur sjálf og eig-
um í frjálsum viðskiptum við
umheiminn farnast okkur best. Sem
utanríkisráðherra hef ég lagt áherslu á að
tryggja Íslendingum tækifæri í alþjóðlegri
samkeppni.
Úrræði sem virkar
Við viljum áfram njóta lífskjara eins og
þau gerast best í heiminum. Við viljum búa
betur að kynslóðum sem hafa skilað sínu og
eiga nú að fá að uppskera árangur erfiðis
síns, kynslóðum sem eiga skilið áhyggju-
laust ævikvöld. Við viljum líka geta treyst á
heilbrigðiskerfi í fremstu röð. Því marki
náum við aldrei með því að útiloka kraft
einkaframtaksins heldur með því að allir
taki höndum saman og nýti sem best þá fjár-
muni sem við höfum til að sinna heims-
klassaheilbrigðisþjónustu. Til þess þurfum
við að nýta krafta einkaframtaksins þar sem
það á við og hafa sjálfstraust til þess að end-
urskoða þunglamaleg kerfi ef þau flækjast
fyrir möguleikum landsmanna til að njóta
sem bestrar þjónustu. Þegar ég gegndi
embætti heilbrigðisráðherra náði ég veru-
legum árangri við styttingu biðtíma og
lækkun lyfjakostnaðar með því einmitt að
endurskoða kerfi sem talin voru ósnert-
anleg. Það er allt hægt!
Samhljómur með sjálfstæðismönnum
Ég byggi mín gildi enn á þeim grunni sem
ég hlaut í uppeldi mínu. Þau eiga fullkomna
samleið með sjálfstæðisstefnunni. Baráttu-
málin eru enn þau sömu og þegar ég hóf
störf með Sjálfstæðisflokknum. Í gegnum
þau störf hef ég kynnst því að sjálfstæð-
isstefnan hefur djúpa samsvörun í þjóð-
arsálinni. Í störfum mínum hef ég ætíð notið
góðs af að vera í nánum tengslum við fjölda
fólks og hlusta vel eftir hvað því býr í brjósti.
Rétt eins og styrkur samfélagsins er frelsi
til fjölbreytni er hin fjölbreytti hópur sem
myndar kjarnann í Sjálfstæðisflokknum líka
hans mesti styrkur. Við, sem sækjumst eftir
að vera málsvarar sjálfstæðisstefnunnar á
Alþingi, verðum að bera virðingu fyrir því að
hjarta Sjálfstæðisflokksins er hinn almenni
flokksmaður og kjósandi um land allt.
Ég legg glaður störf mín, lífsgildi og
framtíðarsýn í dóm flokkssystkina minna í
Reykjavík. Ég sækist eftir stuðningi í 1. sæti
í prófkjörinu um helgina og að leiða fram í
kosningum í haust öflugan og fjölbreyttan
hóp frambjóðenda.
Ég horfi til framtíðar með reynsluna í far-
teskinu og treysti á þinn stuðning í 1. sætið í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem nú stend-
ur yfir.
Sterkari saman á traustum grunni
Eftir Guðlaug Þór
Þórðarson
ȃg legg
glaður störf
mín, lífsgildi og
framtíðarsýn í
dóm flokks-
systkina minna
í Reykjavík.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Höfundur er utanríkis- og þróunar-
samvinnuráðherra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seljalandsfoss Ísland
er land tækifæranna.