Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
Það hefur vakið at-
hygli mína að í próf-
kjörum Sjálfstæð-
isflokksins þetta árið
hafa gefið kost á sér
frambjóðendur sem
höfða til breiðari hóps
kjósenda en oft áður.
Ungt og fram-
bærilegt fólk sækist
eftir ábyrgð og öflug-
ar konur vilja eða
munu leiða lista Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi
og Norðvesturkjördæmi.
Það sama hefur gerst hér í
Reykjavík.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttur
dómsmálaráðherra sækist nú eftir
að leiða lista Sjálfstæðisflokksins
hér í höfuðborginni. Áslaug Arna
sameinar reyndar allt fram-
angreint. Hún er ung, frambærileg
og ákaflega öflug stjórnmálakona.
Leiðir mál til lykta
Það varð strax ljóst þegar Ás-
laug Arna fór fyrst að láta að sér
kveða að þar færi efnileg stjórn-
málakona. En það tók hana ör-
skamman tíma að verða fullburða
stjórnmálamaður með mikla for-
ystuhæfileika.
Frammistaða Áslaugar Örnu
sem dómsmálaráðherra hefur að
mínu mati verið aðdáunarverð.
Eins og dæmin sanna hefur það
embætti reynst ýmsum forverum
hennar erfitt, enda viðfangsefnin
viðkvæm og flókin. Þau hefur Ás-
laug Arna hins vegar
leyst af festu og miklu
öryggi. Hún hefur
verið hrein og bein í
störfum sínum sem
dómsmálaráðherra,
tekið á fjölmörgum
málum sem aðrir hafa
ekki sinnt en jafn-
framt leitt ýmis fram-
faramál, stór jafnt
sem smá, farsællega
til lykta.
Á afrekaskrá Ás-
laugar eru meðal ann-
ars umbætur í kyn-
ferðisbrotamálum, bætt staða
skilnaðarbarna og sanngjarnari
meðferð dæmdra manna. Hún hef-
ur leitt stafræna sókn hjá sýslu-
mönnum og barist ötullega fyrir
frelsis- og framfaramálum sem oft
fá allt of litla athygli. Það skiptir
þó ekki síst máli að hún hefur
dregið breiðan hóp fólks til liðs við
Sjálfstæðisflokkinn. Hún er þar
sem fólkið er, nýtir réttu miðlana,
hlustar og talar umbúðalaust um
það sem máli skiptir.
Með framgöngu sinni hefur Ás-
laug Arna sýnt að hún hefur alla
burði til þess að taka að sér leið-
togahlutverk fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn í höfuðborginni.
Mikilvæg og góð fyrirmynd
Það er mikill fengur fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að til forystu í
flokknum skuli hafa valist jafn góð
fyrirmynd og Áslaug Arna sann-
arlega er fyrir ungt fólk. Áslaug
Arna hefur sýnt að hún hefur dug
og þor til að vera hún sjálf og til að
standa með sjálfri sér, ekki síst
þegar á henni hafa dunið skeyta-
sendingar frá fulltrúum „gamla
skólans“, sem oftar en ekki hafa
snúist um annað en efni máls.
Þessi framganga Áslaugar Örnu
hefur smitað út frá sér, á jákvæðan
hátt, enda sér maður hversu vel
henni hefur tekist að virkja áhuga
ungs fólks til þátttöku í stjórn-
málum í aðdraganda þessa próf-
kjörs. Slík endurnýjun er öllum
stjórnmálaflokkum lífsnauðsynleg.
Þar er Sjálfstæðisflokkurinn ekki
undanskilinn.
Ég trúi því að með Áslaugu Örnu
í forystu sé framtíð flokksins í
Reykjavík björt. Með hana í for-
ystu eigi Sjálfstæðisflokkurinn
góða möguleika á gera höfuðborg-
ina aftur að höfuðvígi sínu. Því
hvet ég sjálfstæðisfólk í Reykjavík
til að tryggja Áslaugu Örnu góða
kosningu í leiðtogasætið.
Framtíðin er björt
Eftir Sigurð Kára
Kristjánsson »Með framgöngu
sinni hefur Áslaug
Arna sýnt að hún hefur
alla burði til þess
að taka að sér leið-
togahlutverk fyrir
Sjálfstæðisflokkinn
í höfuðborginni.
Sigurður Kári
Kristjánsson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður
og fyrrv. þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
E60
Íslensk hönnun og
framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á áklæði
og grind.
Sérsmíðum allt eftir pöntunum.
Verð frá: 33.900 kr.
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Tæpu hálfu ári eft-
ir að heilbrigð-
isráðherra færði
skimanir fyrir
krabbameinum til
opinberra stofnana
virðist langt í
hnökralausa fram-
kvæmd skimananna.
Sérstaklega virðist
það eiga við um leg-
hálsskimanir.
Augljóst er að undirbúningi var
ábótavant og að stofnanir ríkisins
voru ekki tilbúnar til að taka við
verkefnunum. Forstjóri Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins lýsti
því í Kastljósi að verkefnið hefði
verið vanmetið og nú, hálfu ári
eftir að stofnunin tók við verkefn-
inu, stendur yfir þarfagreining á
kerfishluta þess. Svolítið eins og
að ráðast í byggingu nýs húss fyr-
ir fjölskylduna, út frá mynd af fal-
legu húsi en án teikninga og
ákveða svo að auki að flytja inn í
húsið um leið og byggingin hefst.
Hætt er við að lengi verði hvorki
skjól fyrir regni eða vindi.
Krabbameinsfélagið lagði
áherslu á að undirbúningur væri
vandaður og honum gefinn nægur
tími, auk fjármagns, allt frá því að
heilbrigðisráðherra tilkynnti
ákvörðun um að flytja skimunina,
í mars 2019. Verkefnið væri flókið
og vandasamt. Undir það tóku
skimunarráð og landlæknir og
ítrekuðu mikilvægi samráðs. Á
þetta var ekki hlustað og samráð
var ekki haft. Horfum fram hjá
því.
Fram hjá því er hins vegar ekki
hægt að horfa að afleiðingarnar af
þessum skorti á undirbúningi eru
margvíslegar og alvarlegar. Allt of
langur biðtími er eftir svörum,
skilaboð til notenda eru misvísandi
og óöryggi, áhyggjur og van-
traust hafa skapast. Verulega
skortir á skýrar aðgengilegar
upplýsingar um skimanir, breyt-
ingar á skimunarferlinu, fyr-
irkomulag boða í skimun, birtingu
svara og fleira. Þá er ónefndur
ótti kvenna sem þegar eru í eft-
irliti vegna fyrri sögu um frumu-
breytingar.
Staðan er grafalvarleg og
versnar með hverjum deginum.
Heilbrigðisyfirvöld geta ekki
stungið höfðinu í sandinn, vanda-
málið er til staðar. Þau verða að
leggja fram skýra áætlun um það
hvenær og hvernig skimunum
fyrir krabbameinum verður komið
í gott horf. Hlustun og samráð við
notendur er forsenda þess að
létta áhyggjum og endurvinna
traust.
Hlustun og samráð
eða ekki?
Eftir Höllu
Þorvaldsdóttur
og Valgerði
Sigurðardóttur
Höfundar eru framkvæmdastjóri og
formaður Krabbameinsfélagsins.
Halla
Þorvaldsdóttir
» Staðan er graf-
alvarleg og versnar
með hverjum deginum.
Heilbrigðisyfirvöld
geta ekki stungið höfð-
inu í sandinn, vanda-
málið er til staðar.
Valgerður
Sigurðardóttir
Það var ungur
orkumikill maður sem
kom eins og storm-
sveipur inn í stjórn-
málin á sínum tíma,
svo eftir var tekið.
Hann gaf sig á tal við
alla, brosmildur og
glaðbeittur, skarp-
greindur og með
sterka réttlætiskennd
og skoðun á því
hvernig mætti breyta hlutunum til
hins betra. Umfram allt átti hann
auðvelt með að fá fólk í lið með sér.
Maður gat ekki annað en hrifist
með. Það er í raun og sann erfitt
að vera ekki með honum í liði.
Svona kom Guðlaugur Þór Þórð-
arson inn í stjórnmálin og svona er
hann enn.
Guðlaugur Þór Þórðarson er ein-
hver skemmtilegasti samstarfs-
maður sem ég hef átt á vettvangi
stjórnmálanna, krafturinn, já-
kvæðnin og ástríðan fyrir verkefn-
unum svo mikil og smitandi. Þenn-
an kraft og þessa gleði þekkja allir
þeir sem hafa fylgst með honum í
störfum innan Sjálfstæðisflokksins í
gegnum tíðina eða þekkja Gulla af
öðrum vettvangi. Sjálfstæðismenn
vita að í Guðlaugi Þór eigum við
leiðtoga sem hefur ómælda reynslu
af stjórnmálum og getur óhræddur
lagt verk sín í dóm annarra.
Það er margt sem
mætti til taka af góð-
um verkum Guðlaugs
Þórs og árangri. Það
sem fólk ætti kannski
að hafa í huga þessa
dagana er að hann hef-
ur alltaf fengið stuðn-
ing úr öllum áttum –
og í þrígang staðið
uppi sem 1. þingmaður
í sínu kjördæmi. Í
störfum sínum í rík-
isstjórn hefur hann
hlotið aðdáun og lof samverkafólks
innan sem utan stjórnkerfisins.
Hann á svo sannarlega skilið
áframhaldandi stuðning til góðra
verka. Guðlaugur Þór er traustur
maður og traustur vinur. Ég hvet
kjósendur í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík til að veita
honum atkvæði sitt í 1. sæti.
Guðlaugur Þór
á minn stuðning
Eftir Grétu
Ingþórsdóttur
Gréta Ingþórsdóttir
» Sjálfstæðismenn vita
að í Guðlaugi Þór
eigum við leiðtoga sem
hefur ómælda reynslu
af stjórnmálum og
getur óhræddur lagt
verk sín í dóm annarra.
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri
þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
greta.ingthorsdottir@gmail.com
Þetta er kannski ekki óþörf spurn-
ing, þessa daga, þegar menn þyrpast
í prófkjör og kynna sig sem óðast í
fjölmiðlum. Þá gildir auðvitað að
sannfæra fólk um að téður frambjóð-
andi sé akkúrat sá bjargvættur sem
koma skuli og tímanleg velferð þjóð-
arinnar velti á hans þátttöku í
stjórnmálum.
Auðvitað er gott að minna á sig og
auglýsing er auglýsing hvort sem
hún er keypt eða ekki og hvort sem
undir stendur stuðningshópur eða
eitthvert „hliðarsjálf“ (alter ego) og
mannsnafn sem ekki er til.
Sunnlendingur hefur að vísu ekki
úr háum söðli að detta í pistlaskrif-
um, og veit ekki til að nokkur hafi
lesið það sem hann skrifaði nema
ömmusystir hans sem hafði orð á því
að lesið hafði verið upp eftir ein-
hvern Sunnlending þar sem hún var
í dagvistun.
Eina viðbragðið við þessum 149
pistlum var þegar Sunnlendingur
nöldraði yfir of mörgum bolta-
leikjum í sjónvarpi. Þá vita menn
hvar hjarta landans slær. Þetta ættu
frambjóðendur kannski að athuga.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Hafa greinaskrif áhrif?