Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 22

Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 22
✝ Kristín Dóra Margrét Jóns- dóttir fæddist á Hvammstanga 19. september 1943. Hún lést á Héraðs- hælinu á Blönduósi 21. maí 2021. Foreldrar Krist- ínar voru Jón Krist- inn Pétursson. bóndi á Skarfhóli í Miðfirði. og kona hans Jóhanna Björnsdóttir. Bræður Kristínar eru Jón Ívar, f. 1946, og Magnús Ari, f. 1955. Kristín giftist Haraldi Holta Líndal frá Holtastöðum í Langa- dal á sumardaginn fyrsta 1964. Synir þeirra eru Jón Pétur, Jón- atan Elfar, Júlíus Bjarki og Jó- hann Haukur Kristinn. Barna- börnin eru átta og eitt barnabarnabarn. Kristín ólst upp á Tjörn á Vatnsnesi fyrstu ár ævinnar. Þegar hún var á þriðja ári flutti fjölskyldan að Skarfhóli í Mið- firði þar sem Kristín ólst upp til fullorðinsára. Hún starfaði eitt ár í Reykjavík við versl- unarstörf, stundaði síðan nám við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1961-1962. Eftir að hún giftist Holta vorið 1964 bjó hún á Holtastöðum til æviloka. Auk þess að vera þar hús- freyja vann hún ýmis störf á Blönduósi, aðallega verslunarstörf og við sauma- skap. Kristín var mikil áhuga- manneskja um hannyrðir og handavinnu ýmiss konar og gat sér gott orð sem slík. Á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi eru nú varðveitt nokkur af verkum hennar. Þá hafði hún mikið yndi af garð- rækt. Hún tók þátt í starfi Kvennalistans og var þar m.a. í framboði. Hún var um áratuga- skeið í sóknarnefnd Holtastaða- kirkju og lengi vel formaður sóknarnefndar. Útför Kristínar fer fram frá Melstaðarkirkju í dag, 4. júní 2021, klukkan 14. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Við Stína vorum ekki bara systradætur heldur líka uppeldis- systur og bestu vinkonur. Við vor- um fæddar sama árið, ég í maí og hún í september. Ég kom í Reyn- hóla 3ja ára gömul og var þar til 16 ára aldurs og öll þessi ár var Stína á næsta bæ, Skarfshóli. Og þar með hófst systra- og vinkon- usamband okkar sem entist ævi- langt. Þegar komið er að kveðjustund koma gamlar minningar upp í hugann: Þegar við vorum saman í heimavistarskólanum, þegar við máttum fara einar á milli bæjanna og fylgdum símalínunum til að villast ekki, þegar við fengum að gista saman og hvíslast á leynd- armálum. Þegar við fórum einar ríðandi í réttirnar í fyrsta skipti, ég á Víkingi og þú á Brún. Þá var nú aldeilis gaman og ekki spillti gleðinni að þú áttir afmæli á rétt- ardaginn. Ferming okkar í Mel- staðarkirkju, þá 13 og 14 ára gamlar, var eftirminnileg og líka öll íþrótta- og hestamannamótin sem við sóttum saman, að ekki sé talað um Jósefínu-hátíðina svo- kölluðu sem var hápunktur skemmtanahaldsins í sveitinni ár hvert. Árin liðu og við urðum stórar; ég flutti suður en Stína kynntist Holta sínum þegar hún nam við Húsmæðraskólann á Blönduósi, flutti með honum að Holtastöðum og hóf búskap. Á þeim árum var ekki eins auðvelt og nú að ferðast milli landshluta og svo var bara blessaður sveitasíminn, og engin leyndarmál sögð þar, því svo margir voru að hlusta! Seinna var síminn óspart notaður þegar allt var komið í ró hjá báðum á kvöld- in og heimsmálin og persónuleg mál rædd langt fram á nótt. Stína var sú eina sem hringdi í mig seint á kvöldin og ég mun svo sannar- lega sakna þess að heyra ekki símann hringja á þeim tíma sólar- hringsins. Elsku frænka mín var mér sem systir og mikið var gaman þegar hún kom í borgarferðirnar sínar. Þá gisti hún alltaf hjá mér og við fórum í búðaráp og á kaffihús. Hennar uppáhalds var Mokka og mitt var Mílanó og við heimsótt- um þau bæði oft á liðnum árum. Það var ekki síður yndislegt að heimsækja Stínu, Holta og strák- ana í sveitina og lengi gátum við tvær vakað og skrafað. Stína var alltaf hreinskiptin og hispurslaus og kom til dyranna eins og hún var klædd. Hún var vinnuþjarkur alla tíð, harðdugleg og ósérhlífin. Að auki var hún mikil hannyrða- kona og fagurkeri. Hún var líka með græna fingur eins og gjarnan er sagt um þá sem láta allar jurtir blómstra sem þeir koma nálægt. Uppáhaldsblóm Stínu voru rósir og af þeim var nóg í kringum hana alla tíð. Ég sakna frænku sárt en veit að nú líður henni vel, laus við þjáningarnar og búin að hitta Holta sinn, pabba sinn og mömmu og alla þá sem á undan eru farnir. Ég bið hana að skila bestu kveðju til afa og ömmu og eins til pabba, ef hún hittir hann á förnum vegi. Elsku strákar; Jón, Jónatan, Júlíus og Jóhann. Ég sendi ykkur og fjölskyldum ykkar innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning mætrar konu. Kristín Rut Hafdís Benediktsdóttir (Stína Rut). Þegar ég flutti í Langadalinn fyrir nær hálfri öld þekkti ég þar engan nema tengdafólk mitt. Fljótlega kynntist ég þó nágrönn- unum og voru þau kynni jafnan góð. Mér er þungt um hjarta að kveðja nú Stínu vinkonu mína og nágrannakonu sem lést 21. maí eftir stutta en harða baráttu við riddarann á bleika hestinum. Við Kristín á Holtastöðum kynntumst fljótlega eftir að ég flutti í dalinn og okkur varð strax vel til vina. Hún var búin að búa á Holtastöð- um í allmörg ár og þau Holti búin að koma upp arðsömu kúabúi. Kristín á Holtastöðum var hæfi- leikarík kona. Hún bar gott skyn á fjármál og rekstur og var glögg á tölur. Það voru ekki margar sveitakonur fyrir hálfri öld sem settu sig inn í þá hluti jafnt bónd- anum, en það gerði Kristín og maður hennar tók mark á hennar orðum. Hún var líka óhemjudug- Kristín Dóra Margrét Jónsdóttir leg og velvirk. Allt lék í höndun- um á henni; handavinna, sauma- skapur, matreiðsla og garðrækt. Hún málaði einnig á postulín og hafði listrænt auga og litaskyn. Garðurinn hennar og blómin í gróðurhúsinu hennar bera þess vitni. Kristín var lengi formaður sóknarnefndar Holtastaðakirkju og hugsaði alla tíð vel um kirkjuna og garðinn. Það var alltaf gaman að koma til Stínu. Hún var hress í tali, al- veg laus við vol og víl og sagði skýrt og skilmerkilega hvað henni fannst um menn og málefni. Við sátum tímunum saman og röbb- uðum um lífið og tilveruna. Ég gat leitað til hennar með kjólasaum og ýmislegt og ég gat treyst á að- stoð hennar í mörgu. Mér er það minnisstætt það sem hún sagði við mig einhvern tímann þegar ég var að hafa áhyggjur af einhverju verkefni. Þá sagði Stína vinkona mín: „Ekki hafa áhyggjur Ása mín, ég er hérna.“ Stína var smekkmanneskja í fatavali, alltaf smart og vel klædd og hafði gott auga fyrir klassískri tísku. Hún var mikill fagurkeri í sér og ber heimilið á Holtastöðum þess glöggt merki. Við unnum síðustu árin saman að því verkefni að láta gera við Holtastaðakirkju, sem hún bar alltaf fyrir brjósti, og hún var for- göngumaður þess verkefnis. Hún vildi að kirkjunni væri vel viðhald- ið og fjölskyldan á Holtastöðum hefur jafnan sýnt kirkjunni mik- inn sóma. Þegar maður hennar lést fyrir nokkrum árum og Jónatan sonur þeirra var þá orðinn einn með bú- verkin tók Kristín upp merki manns síns og fór aftur að sinna fjósverkum þótt hún væri komin á löggiltan eftirlaunaaldur. Og þar stóð hún meðan stætt var. Eftir að meinið sem sigraði þessa tápmiklu konu greindist liðu ekki margir mánuðir þar til yfir lauk. Hún ákvað strax að vera heima svo lengi sem hún gæti og það var hún, með aðstoð sona sinna og tengdadætra, sem gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að það væri mögulegt. Við Ágúst kveðjum nágranna- konu og vinkonu með söknuði og þakklæti fyrir áratuga kynni. Hún skilur eftir sig stórt skarð í dalnum okkar. Of snemma lauk hennar lífi, en það er mín trú að hún hafi sofnað svefninum langa sátt við ævistarfið og sína vel gerðu afkomendur. Ásgerður Pálsdóttir. 22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Fundir/Mannfagnaðir AÐALFUNDUR Félags lykilmanna – FLM Aðalfundur Félags lykilmanna – FLM verður haldinn þriðjudaginn 15. júní nk., kl. 16:30 að Suðurlandsbraut 4a (4. hæð), Reykjavík. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf. Stjórn Félags lykilmanna Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Ath. Grímuskylda er á uppboðum Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Baugakór 1, Kópavogur, fnr. 227-8944 , þingl. eig. Guðjón H. Frið- geirsson, gerðarbeiðandi Kópavogsbær, þriðjudaginn 8. júní nk. kl. 10:00. Austurkór 55, Kópavogur, fnr. 232-9181 , þingl. eig. HMH ehf., gerðarbeiðandi Kre ehf, þriðjudaginn 8. júní nk. kl. 10:30. Hólmaþing 5A, Kópavogur, fnr. 230-6423 , þingl. eig. Monika Listopad og Piotr Listopad, gerðarbeiðandi Kópavogsbær, þriðju- daginn 8. júní nk. kl. 11:00. Flúðasel 81, Reykjavík, fnr. 205-6662 , þingl. eig. þb.Boga Baldurs- sonar og Hanna Hannesdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 8. júní nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 3. júní 2021 Uppboð Uppboð á skuldabréfi Uppboð verður haldið á handhafa skuldabréfi útg. 23.maí 2020 kr. 2.500.000,- gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf. Uppboðið fer fram föstudaginn 11.júní n.k. kl. 11:00 að Hlíðasmára 1, Kópavogi 2.hæð herbergi 201. Greiðsla við hamarshögg ! Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 2.júní 2021 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Zumba Gold kl.10:30 – Dansfimi með Auði Hörpu kl.13:30 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.30-17:15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600. Bústaðakirkja Sumarhátíð eldri borgara í Fossvogsprestakalli verður haldin í Grensáskirkju miðvikudaginn 9. júní kl. 14-15.30. Skráning er í síma 528 8510 í síðasta lagi á mánudagsmorgun 7. júní. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:10-11:00. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Opin Listasmiðja kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Kaffiterían er opin mánudaga – fimmtudaga frá kl. 13:30 – 14:30. Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Áfram skal gæta að handþvotti og smitvörnum. Gerðuberg Opin handavinnustofa. Heitt á könnunni, kaffispjall og samvera. Gönguhópur frá kl. 10:00 (leikfimi og svo ganga). Prjónakaffi frá kl. 10 -12:00. Bókband hjá Þresti kl. 13 -16:00. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Handavinna - opin vinnustofa frá kl. 10:30. Korpúlfar Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9:45 í Borgum, gönguhópur Korpúfa kl. 10 gengið frá Borgum. Auður Harpa með dansleikfimi í Borgum kl. 10:00 í dag. Pílukast í Borgum kl. 11:00 í dag. Briddshópur Korpúlfa snýr aftur í dag hefja spilamennsku kl. 12:30 í Borgum. Njótum og höfum gaman. Korpúlfar Útvarpsleikfimi 9:45 í Borgum ganga frá Borgum kl 10 þrír styrkleikar hjá gönguhóp Korpúlfa. Kaffispjall á eftir. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl 10 í Borgum. Briddshópur Korpúlfa mætir á ný í spilamennsku kl. 12:30 í Borgum í dag og verður með spilamennsku alla föstudaga í júní. Vonumst til að sjá ykkur sem flest í dag og alla daga. með morgun- !$#"nu á- og raðauglýsingar ✝ Þuríður Saga Guðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 26. júní 1965. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 21. maí 2021. Foreldrar henn- ar voru Guðmundur H. Karlsson stýri- maður, f. 7.12. 1932, d. 30.6. 2010, og Þóra Kjartansdóttir leikskólaliði, f. 8.5. 1944, d. 25.12. 2013. Systkini Þuríðar eru: Karl skipstjóri, f. 1963, Sigurbjörg Unnur bókari, f. 1967, og Kjartan Ísak fasteignasali, f. 1971. Dóttir Þuríðar eru Þóra Ýr Björnsdóttir birtingarstjóri, f. 21.4. 1983, synir hennar eru Benjamín Einir og Baltasar Leon, f. 20.10. 2017. Þuríður giftist Guðbjarti Karli Ingibergssyni, f. 21.9. 1959, þau slitu samvistir. Barn þeirra er: Halldór Einir flugmaður, f. 7.5. 1985, kvæntur Huldu Magn- úsdóttur, f. 18.10. 1985, börn þeirra eru: Heiðbrá Clara, f. 16.6. 2008, Þuríður Brynja, f. 19.4. 2009, og Þórdís Saga, f. 12.7. 2018. Meira efni á: https://www.mbl.is/andlat/. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 4. júní 2021, klukkan 15. Elsku Þurý, 30 ár, kæra vin- kona, gegnum súrt og sætt, frá því að vera blankar einstæðar mæður í Svíþjóð þar sem við deildum öllu, áttum kannski ekki alltaf fyrir klósettpappír og kannski fóru viss servéttu- söfn forgörðum. Eftir að börnin voru sofnuð horfðum við á uppáhaldsþættina okkar saman í gegnum símann. Tókum helg- ar saman þar sem annaðhvort ég og Styrmir fluttum til ykkar á Sommarvädersgötuna eða þú, Þóra og Halldór fluttuð til okk- ar í Studiegången og við eld- uðum góðan mat og nutum. Fengum svo Heiðrúnu til að koma og passa öll börnin ef við vildum lyfta okkur á kreik og fara út. Þegar ég tek ákvörðun um að flytja til Íslands aftur var verst af öllu að segja þér það. Svo kom að því að þú fluttir einnig aftur til Íslands og við gátum haldið áfram þar sem frá var horfið, okkur fannst alltaf að aðskilnaðurinn hefði verið heil eilífð en sagan segir að það hafi bara verið rétt rúm tvö ár. Við áttum það báðar sameig- inlegt að hræðast ekki vinnu og unnum við hörðum höndum til að eignast hús yfir höfuðið, til að skapa börnum okkar betra líf og það náðum við að gera. Það kom að því að við eign- uðumst aukapening og fórum að ferðast saman, auðvitað nokkr- um sinnum til Svíþjóðar, til Spánar í sólina, húsmæðraorlof í London með Freydísi þar sem við fórum sérstaklega í Soho til að senda Jónsa mynd af okkur á hommabar. Hjólaferðin okkar um Evrópu þar sem við hjól- uðum með Skutlum og mökum á okkar fallegu hjólum, þvílíkur tími og síðasta ferðin okkar, hvern hefði getað grunað að það yrði þín síðasta ferð þegar við fórum og hittum Jónsa og Lasse á Kanarí? Við elskum báðar mótorhjól og í Svíþjóð var hægt að fá mót- orhjól heim í stað leigubíla, sem við auðvitað gerðum alltaf og í balldressinu aftan á mótorhjóli á leiðinni heim af djammi var frekar mikið norm hjá okkur. Sumarið 2009 tókum við skrefið og nóg komið af því að dreyma og sóttum um í Skutl- unum og á þessum 12 árum sem eru liðin síðan erum við búnar að hjóla um allt Ísland, anda að okkur náttúrunni með öllu til- heyrandi frá skítalyktinni þegar nýbúið er að skítadreifa á túnin til góðu sláttarlyktarinnar þeg- ar túnin eru nýsleginn. Síðustu vikur hafa ekkert nema góðar minningar hrannast upp hjá mér, já elsku Þurý mín, við vorum góðar í að búa þær til. Hljóðláti gálgahúmorinn þinn hélt sér fram á síðustu stundu og með honum óafvitandi hélstu mér gangandi, takk fyrir það elsku Þurý mín. Elsku Þóra og Halldór, þið og börnin ykkar voruð hennar stærsta stolt og geislaði hún alltaf þegar hún sagði mér frá afrekum ykkar. Elsku stórfjölskylda og vinir, hugur minn er hjá ykkur öllum á þessum erfiða tíma. Elsku Þurý mín, já svona var ekki planið okkar en þú hefur nú alltaf verið frekar pirruð yfir öllu skipulaginu í mér, svo ég lýt höfði og leyfi þér að skipu- leggja þennan part og treysti því að þú sitjir tilbúin með góð- an JW í glasi og gott hvítvín fyrir mig þegar ég kem skrans- andi til að hitta þig. Elskan mín þangað til næst. Þín Brynja Kristjánsdóttir (Binna). Þuríður Saga Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.