Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 32

Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 32
Guðmundur Pétursson gítarleikari heldur tónleika í Gerðubergi á morgun, laugardag, kl. 16 og er aðgangur ókeypis. Tónleikarnir eru hluti af ferðalagi Guðmundar um hverfi Reykjavíkur þar sem saga þeirra og andrúms- loft eru innblásturinn að dagskránni, að því er fram kem- ur á Facebook. „Breiðholtið hefur sérstaka stöðu, Guð- mundur bjó þar á sínum unglingsárum og hverfið býr þannig yfir nostalgískum krafti,“ segir þar. Guðmundur mun leika tónlist af öllum sínum plötum auk nýrrar. Guðmundur leikur í Gerðubergi FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 155. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sigtryggur Daði Rúnarsson tryggði ÍBV sæti í undan- úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik með ótrú- legu flautumarki gegn FH í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í Kaplakrika í Hafnarfirði. Leiknum lauk með 33:33-jafntefli en fyrri leik liðanna í Vestmannaeyjum lauk með 31:31-jafntefli og ÍBV fer því áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Hitt Hafnarfjarðarliðið, Haukar, hafði það öllu náð- ugra í 8-liða úrslitunum því liðið vann Aftureldingu samtals með tuttugu og fjögurra marka mun. »27 Ólík stemning í stóru íþróttahús- unum í Hafnarfirði í gærkvöldi ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Undanfarið 31 ár hefur Ágústa Sig- fúsdóttir, nær áttræður sjúkraþjálf- ari, hlaupið Seltjarnarneshringinn, um fimm kílómetra, þrisvar sinnum í viku. „Ég hleyp aðallega ein, því ég vil hlaupa snemma á morgnana,“ seg- ir hún. Að auki er hún í leikfimi hjá Þórhöllu Andrésdóttur í World Class þrjá morgna vikulega og fer þá í laug- ina á eftir, en tekur sér frí á sunnu- dögum. „Aldrei á sunnudögum sagði einhver, en þetta prógramm hentar mér mjög vel.“ Hreyfingin einskorðast ekki við sama hringinn, því stundum bætir hún spottanum út á golfvöll á Nesinu við, hleypur inn í Nauthólsvík og til baka, jafnvel austur í Árbæ, og reglu- lega hleypur hún með nokkrum vin- konum hring fram hjá Háskóla Ís- lands að Hallgrímskirkju og aftur heim í gegnum miðbæinn og Vestur- bæinn. „Ég er um 50 mínútur að hlaupa Neshringinn og lengur ef ég heilsa upp á einhvern á leiðinni en „Hallgrímur“ tekur okkur rúman klukkutíma, fer eftir því hvað við töl- um mikið á þessari um sjö kílómetra leið.“ Veðrið hefur engin áhrif. Reyndar segist Ágústa fylgjast með vindátt- inni og sér þyki þægilegra að hlaupa undan vindi heim en það geri ekki út- slagið. „Það er ekkert verra að hlaupa í snjó og hörkuveðri á veturna, það er líka gott,“ leggur hún áherslu á og segist þá gjarnan vera á broddum. Góð gen og gott uppeldi Ágústa ólst upp við útivist. Móðir hennar var dönsk og elskaði íslensk fjöll og hestamennsku. „Ég lærði snemma að fara á fjöll og skíða- mennska var hluti af uppeldinu,“ seg- ir hún. Bætir við að seinna hafi hún farið reglulega í gönguferðir með Ferðafélagi Íslands. „Hreyfingin hef- ur alla tíð fylgt mér, þökk sé góðum genum og góðu uppeldi.“ Tilviljun réð því að Ágústa byrjaði að hlaupa 49 ára. „Ég hafði aldrei hlaupið neitt þegar ég hitti Margréti Jónsdóttur, stofnanda Trimmklúbbs Seltjarnarness, eitt sinn og hún spurði hvort ég vildi ekki koma út á Nes að hlaupa. Þessi hreyfing hentaði mér strax vel. Ég hef verið heppin að geta hlaupið svona lengi án þess að finna til í stoðkerfinu og er þakklát fyrir það.“ Til viðbótar við æfingar hljóp Ágústa hálft Reykjavíkurmaraþon 20 sinnum og tók síðan þátt í 10 km hlaupinu í átta ár. Eftir smá næringu og nokkrar teygjuæfingar fyrst á morgnana reimar Ágústa á sig hlaupaskóna. „Ég byrja daginn á hreyfingu, get verið löt eitt og eitt skipti en aldrei nógu löt til þess að hætta við. Hreyf- ingin er andlega og líkamlega upp- byggjandi. Sitji eitthvað í mér er eins og á komist jafnvægi við það að fara út að hlaupa.“ Fyrir utan Seltjarnarnes finnst Ágústu sérstaklega gaman að hlaupa um Fossvogsdal, Elliðaárdal og upp í Árbæ. „Það er mjög fallegur og fjöl- breyttur hringur, ein af mínum uppá- haldsleiðum,“ segir hún. Hún taki alltaf hlaupaskóna með hvert sem hún fari innanlands sem utan enda sé alls staðar hægt að hlaupa. „Þegar ég er hjá dóttur minni í Boston hleyp ég bara á skógarstígum. Þetta er hollur og góður lífsstíll og hlaupalífið hefur verið gott líf.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Á Nesinu Ágústa Sigfúsdóttir tekur daginn snemma og byrjar á teygjuæfingum áður en hún fer út að hlaupa. Hlaupalífið er gott líf - Ágústa Sigfúsdóttir er nær áttræð og síhlaupandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.