Morgunblaðið - 11.06.2021, Page 1

Morgunblaðið - 11.06.2021, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 1. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 136. tölublað . 109. árgangur . GOTT AÐ SPILA AFTUR FYRIR ÁHORFENDUR SAMHLJÓMA UM ÍRLAND INNAN VIÐ 90 EINBÝLISHÚS TIL SÖLU BIDEN OG JOHNSON Á FUNDI 13 FASTEIGNIR 24 SÍÐURLANDSLEIKUR VIÐ ÍRA 27 Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Rekstur Landspítalans, þá einkum staðan á biðlistum og afkomuspá spítalans, var ræddur í fjárlaga- nefnd þingsins í tengslum við fjár- aukalögin. Neyðarástand á bráða- deild var þó ekki tekið sérstaklega fyrir í nefndinni. Willum Þór Þórsson, formaður nefndarinnar, segir málið vera til skoðunar hjá framkvæmdastjórn spítalans. Í fjárlögum 2021 sé að finna heimild til að fjármagna 100 viðbótarrými, sem var hugsað til að liðka fyrir útskriftum. „Það virðist hafa sigið á ógæfuhliðina og ég reikna með að það sé blanda af nokkr- um þáttum og að kófið hafi örugg- lega truflað eins og hefur gerst með biðlista,“ segir Willum. Uppsafnaður halli spítalans er á bilinu 3 til 4 milljarðar króna. Samkomulag var hins vegar gert milli heilbrigðis- og fjármálaráðuneytisins við spít- alann um að hallinn yrði tekinn út fyrir sviga svo hann ætti ekki að hamla starfseminni á nokkurn hátt. Rekstrarframlög hafa verið aukin milli ára. Willum segir að samkvæmt afkomuspám þessa árs sé reksturinn innan marka. Í nefndaráliti frá meirihluta fjárlaganefndar segir að áætlað sé að spítalinn verði rekinn með lítils háttar afgangi í ár miðað við heim- ildir fjárlaga. Í þeim forsendum er miðað við að kostnaður vegna kór- ónuveirunnar fáist bættur. Ef tekst að reka spítalann innan fjár- heimilda í 3 ár verður hægt að fella niður þennan uppsafnaða halla. Rekstur innan marka - Neyðarástand bráðadeildar er til skoðunar hjá fram- kvæmdastjórn spítalans - Rekstrarhalli tekinn út fyrir sviga Willum Þór Þórsson _ „Þegar fátt er um leiðir verða menn oft að grípa í úrræði sem er ekki efst á lista. Í þessu tilviki er það að olíuflutningar fari um Hringbrautina,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höf- uðborgarsvæðinu. Framkvæmdir standa nú yfir við endurnýjun vatns- og fráveitu í Vesturbæ Reykjavíkur og af þeim sökum verður Mýrargata lokuð fyrir bíla- umferð næstu þrjár vikurnar. »6 Morgunblaðið/Árni Sæberg Annir Þung umferð var á Hringbraut í gær. Olíuflutningar fær- ast yfir á Hringbraut Þrjú hundruð milljónum króna verð- ur bætt við fjárveitingar til hjúkr- unarheimila landsins á þessu ári, verði tillögur meirihluta fjár- laganefndar Alþings samþykktar. Bætist þessi fjárhæð við eins millj- arðs króna viðbót við daggjöld hjúkrunarheimilanna sem gert var ráð fyrir í upphaflegu frumvarpi. Þessar 300 milljónir eiga að fara í sjóð hjá Sjúkratryggingum Íslands. Hjúkrunarheimilin geta sótt um við- bótargreiðslur vegna mikils kostn- aðar við umönnun einstakra heim- ilismanna, svo sem vegna mikillar og kostnaðarsamrar umönnunar, dýrra lyfja eða sérstakra hjálpartækja. Heilbrigðisráðuneytinu er gert að setja nánari reglur um úthlutun úr sjóðnum. »4 Morgunblaðið/Eggert Heimili Mörk er eitt af mörgum hjúkrunarheimilum landsins. Aukafé vegna mikils kostnaðar Hallveig Thorlacius og Þórhallur Sigurðsson hlutu heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands árið 2021 fyrir ómetanleg störf sín í þágu íslenskrar barnamenningar og leikhúslífs þegar Gríman var afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói í gærkvöldi. Vertu úlfur eftir Héðin Unnsteinsson og Unni Ösp Stefánsdóttur í leik- stjórn Unnar hlaut flestar Grímur eða sjö talsins, þar á meðal sem sýning ársins. »28-29 Morgunblaðið/Eggert Hallveig Thorlacius og Þórhallur Sigurðsson heiðruð _ Atvinnulausum hefur fækkað mik- ið eða um 3.400 á átta vikum. Al- mennt atvinnuleysi fór úr 10,4% í lok apríl í 9,1% á einum mánuði. Spáð er áframhaldandi snarpri minnkun at- vinnuleysis í júní. Gangi það eftir fækkar atvinnulausum á skrá um sex þúsund manns á tveimur mán- uðum. Atvinnuleysið hefur leikið Suðurnesjamenn grátt og mælist enn mikið en það minnkaði þó um- talsvert í maí eða úr 23% í 19,7%. „Við erum með langmesta atvinnu- leysið á Íslandi og við verðum þar sennilega einhver misseri í viðbót, ég hefði gjarnan viljað sjá þetta lækka meira en það á vonandi eftir að gera það í sumar þegar flugvöll- urinn er kominn á betra ról,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri í Reykjanesbæ. »14 3.400 fóru af atvinnuleysisskrá á átta vikum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.