Morgunblaðið - 11.06.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis
leggur til í breytingartillögu við
frumvarp um fjáraukalög fyrir yfir-
standandi ár að 300 milljónum króna
verði bætt við
fjárveitingar til
hjúkrunarheimila
til viðbótar þeirri
milljarðs viðbót
sem frumvarpið
gerði ráð fyrir.
300 milljóna
króna viðbótin
verður sett í sjóð
hjá Sjúkratrygg-
ingum og notuð
til að standa undir þjónustu við
heimilismenn sem þurfa sérstaklega
kostnaðarsama umönnun.
„Mér líst vel á að nýir fjármunir
séu settir inn í málaflokkinn. Það
hjálpar til við að leysa úr þeirri erf-
iðu stöðu sem hjúkrunarheimili eru
sett í að þurfa að hafna sjúklingum
vegna mikillar hjúkrunarþarfar.
Þetta leysir málið ekki til fulls en er
skref í rétta átt,“ segir Gísli Páll
Pálsson, forstjóri Grundarheimil-
anna og formaður Samtaka fyrir-
tækja í velferðarþjónustu.
Geta sótt um viðbót
Í greinargerð meirihluta fjárlaga-
nefndar kemur fram að í nokkrum
tilvikum geti hjúkrunarheimili orðið
fyrir miklum kostnaði við mikla og
dýra umönnun, dýr lyf eða sérstök
hjálpartæki einstakra heimilis-
manna. Kostnaðurinn geti orðið
miklu meiri en almenn daggjöld
standa undir.
Lagt er til að 300 milljónirnar fari
í sjóð hjá Sjúkrtratryggingum Ís-
lands. Hjúkrunarheimili geti sótt um
viðbótargreiðslur vegna mikils
kostnaðar vegna áranna 2019-2021.
Heilbrigðisráðuneytið á að setja
nánari reglur um skiptingu fram-
lagsins og Sjúktratryggingar að sjá
um framkvæmdina. Spurður um
þetta segir Gísli Páll að hann treysti
stjórnvöldum til að útfæra þessar
reglur á skynsamlegan hátt.
800 milljónir í launabætur
Í áliti meirihluta nefndarinnar er
bent á að fyrir utan þessar viðbót-
argreiðslur komi um 800 milljóna
króna launabætur sem ætlað er að
bæta kostnað heimilanna vegna
breytinga á vaktavinnufyrirkomu-
lagi til að uppfylla ákvæði kjara-
samninga um styttingu vinnuvikunn-
ar. Kostnaðurinn er áætlaður 1,2
milljónir á heilu ári en 800 milljónir
koma til á þessu ári þar sem vinnu-
tímabreytingarnar tóku gildi 1. maí
sl.
Þessi aukakostnaður sem ekki var
gert ráð fyrir í daggjöldum heimil-
anna er fjármagnaður sérstaklega.
Ef hann er talinn með verður við-
bótin á fjáraukalögum 2,1 milljarður
sem svarar til um 4% hækkunar frá
fjárlagafrumvarpi.
300 milljónir vegna hjúkrunarþyngdar
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Skemmtun Jón Ólafur Þorsteinsson spilar á harmoniku fyrir íbúa á Grund.
- Hjúkrunarheimilin geta sótt um framlög í sjóð hjá Sjúkratryggingum til að standa undir umönnun
sjúklinga með mikla hjúkrunarþörf eða dýr lyf - Fjárveitingar gætu hækkað um 4% á árinu
Gísli Páll
Pálsson
TM mótið í Vestmannaeyjum, einnig
þekkt sem Pæjumótið, hófst í gær-
morgun upp úr klukkan átta. Þátt-
takendur mótsins, sem eru á annað
þúsund, voru flestir komnir til Eyja
fyrir miðvikudagskvöldið. Sigríður
Inga Kristmannsdóttir mótsstjóri
segir skipulagið ganga vel og að
keppendur láti ekki rigningu og vont
veður á sig fá.
Mótið er haldið með breyttu sniði í
ár sökum faraldursins en ólíkt því
sem við átti í fyrra ná fjöldatak-
markanir nú til grunnskólabarna og
þarf því að huga betur að svæða-
skiptingu á mótinu. Segir hún for-
eldra og þátttakendur duglega að
virða reglurnar og að lítil hópa-
myndun sé á áhorfendasvæðum.
hmr@mbl.is
TM mótið
fer vel
af stað
Morgunblaðið/Óskar Pétur
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Því miður rifjast atburðurinn á
Bræðraborgarstíg upp þegar maður
les þennan dóm. Hann undirstrikar
þá miklu ábyrgð sem eigendur bera
þegar þeir leigja út húsnæði til
þriðja aðila,“ segir Jón Viðar Matt-
híasson, slökkviliðsstjóri á höfuð-
borgarsvæðinu.
Eigandi starfsmannaleigunnar
2findjob ehf. var í vikunni dæmdur í
fimm mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir að stefna lífi 24 erlendra
verkamanna í bráða hættu. Hann
hýsti þá í iðnaðarhúsnæði við Smiðs-
höfða en þar voru smíðaðir svokall-
aðir svefnkassar fyrir hvern og einn
en engar brunavarnir eða flóttaleiðir
voru í húsinu.
Jón Viðar segir að dómurinn sendi
skýr skilaboð um ábyrgð eigenda en
þetta er fyrsti dómur sinnar tegund-
ar hér á landi. Nýlega var maðurinn
sem var valdur að brunanum við
Bræðraborgarstíg dæmdur til að
sæta öryggisgæslu á viðeigandi
stofnun. Mál eigenda hússins er hins
vegar enn til rannsóknar hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu, sam-
kvæmt upplýsingum frá embætti
héraðssaksóknara.
Jón Viðar slökkviliðsstjóri segir
að fleiri sambærileg mál og Smiðs-
höfðamálið kunni að fara fyrir dóm á
næstunni. „Við skiluðum inn þremur
málum á sínum tíma. Það eru tvö
önnur sem eru í farvegi. Oft er beðið
með mál til að fá fram fordæmi og
síðan koma hin í kjölfarið.“
Hann segir jafnframt að stefnt sé
að því ráðast í kortlagningu á óleyf-
isbúsetu á höfuðborgarsvæðinu á
haustmánuðum. Það var síðast gert
árin 2017-2018 og sýndu tölur að 5-7
þúsund einstaklingar bjuggu í 1.500-
2.000 óleyfisíbúðum.
Ljósmynd/SHS
Hætta Verkamenn voru látnir gista
í svefnkössum við Smiðshöfða.
Sendi skýr skilaboð
um ábyrgð eigenda
- Fleiri sambærileg mál í farvatninu