Morgunblaðið - 11.06.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 11.06.2021, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 Afi Svanur er nú farinn frá okkur og munum við aldrei sjá slíkan mann aft- ur. Hann hafði áhrif á alla þá sem hann snerti, oft til bóta en þó líka oft til ama. Afi Svanur var einstaklega skýr persónu- leiki, það fór aldrei á milli mála hver og hvað hann var. Á sama tíma var hann umlukinn ákveð- inni dulúð, leyndri sögu og leyndum hliðum. Afa voru feng- in erfið verkefni í hendurnar á sínum yngri árum. Hann var, eins og margir karlmenn af hans kynslóð, illa undirbúinn og óvopnfær til að takast á við þau verkefni. Afi minn varði síðari hluta lífsins í að endurreisa sögu sína og kveður þennan heim elskaður af fólkinu sínu. Ég fékk sjálfur að njóta nærveru hans og umhyggju á því skeiði lífs hans sem var hvað gæfulegast. Það sem ég vil gera hér er að minnast afa míns á minn hátt og festa á blað mína upplifun af þessum stórmerkilega manni. Afi Svanur kenndi mér að vinna. Það var fyrst þegar ég var 12 ára þegar ég var dreginn austur fyrir fjall og látinn nagla- hreinsa og skafa mótatimbur. Eftir viku af 12 klukkustunda vinnutörnum rétti afi mér um- slag með 15 þúsund krónum. Krónurnar voru minn eigin verðskuldaði auður sem mér var í sjálfsvald sett að nota á þann hátt sem mér hugnaðist. Þessa nýfengnu tilfinningu áunnins sjálfstæðis átti ég afa mínum að þakka. Hvert sumar eftir þetta vann ég hjá afa, ýmist á verk- stöðum eða á smíðaverkstæðinu hans í Hafnarfirði. Þar vann hann að því að styrkja mig og herða, kenna mér á tól, tæki og efni og umfram allt sýndi mér nautnina við að byggja og skapa. Afi Svanur tók alltaf slaginn. Þó að sigurlíkur væru litlar og baráttan vonlaus, þá lét afi ávallt sverfa til stáls. Hann tók loks lögfræðina, þetta yfirlætis- fulla fag, í sátt þegar alnafni hans og sonarsonur hélt á þá braut í Háskóla Íslands. Það leið ekki á löngu þar til afi hafði átt- að sig á að hann hafði öðlast nýtt vopn í vopnabúrið sitt, og líka á hárréttum tíma. Í kjölfar hruns- ins mikla féll það í minn hlut að leiðrétta það ranglæti sem hann taldi sig hafa verið beittan af hinum ýmsu aðilum. Hústaka, skaðabætur, endurgreiðslur, óumbeðin erindi, lóðakaup voru meðal viðfangsefna okkar bar- daga. Okkur varð sjaldan kápan úr því klæðinu en hin raunveru- legu verðmæti sem hlutust úr þessu öllu voru lærdómurinn fyrir ungan mann. Ég þakka afa mínum fyrir að kenna mér að taka slaginn. Afi elskaði fjölskylduna sína. Það veitir mér mikla hugarró að sonur minn fékk tækifæri til að sitja í kjöltu langafa síns og finna fyrir nærveru hans og um- hyggju. Ást afa á börnum sín- um, barnabörnum og barna- barnabörnum, 22 talsins, var ómæld og hans mest áberandi eiginleiki. Hann átti ólík sam- bönd við þau öll en tókst þó að hafa nákvæma og alúðlega yf- irsýn yfir lífshlaup allra af- kvæma sinna. Ég mun ávallt minnast afa míns sem stólpa í mínu lífi og undirliggjandi afls í þroskaferli mínu. Afi, þú mun skilja eftir þig Þorsteinn Svanur Jónsson ✝ Þorsteinn Svanur Jóns- son fæddist 8. sept- ember 1935. Hann lést 29. maí 2021. Útför Þorsteins Svans fór fram 9. júní 2021. stórt tóm sem aldr- ei verður fyllt og ég hlakka til að setjast aftur með þér í framtíðinni og ræða bardaga sem þarf að heyja og verk sem þarf að vinna. Þorsteinn Svanur Jónsson. Þú og ég afi, þú og ég. Þegar ég hugsa um vináttu mína við afa kemur mér oft til hugar vináttan sem Emil í Katt- holti átti við vinnumanninn Al- freð. Þannig vináttu áttum við afi Svanur. Hvort sem það voru skammarstrikin hans eða mín sem bar á góma, þá vorum við einlægir bandamenn. Hann var reyndar alltaf vinnumaðurinn í mínum augum, vinnumaður sem barðist á móti straumnum. Hjarðeðli var afa ekki eðlislægt, hann var svona meira forystu- sauður sem fór sínar eigin leiðir. Afi Svanur var einstaklega stríðinn og hafði gaman af því að koma fólki í ójafnvægi með því að ýkja eða finna til furðuleg gælunöfn á fólk eða jafnvel heilu fjölskyldurnar. Okkur sem þekktum hann fannst þetta mjög skondið og varð oft mikill misskilningur í kringum þetta allt saman, þar sem afi fór jafn- vel að misskilja grínið sem hann hafði sett fram sjálfur. Það var alltaf stutt í hláturinn yfir kaffi- bolla með afa. Gæði kaffisins skiptu mig litlu, heldur voru það gæði samverunnar við hann. Mín fyrstu alvöru kynni af afa voru á verkstæðinu hans, þegar ég var um 7 ára. Ég bjó sjálf á Vesturgötunni og var að ves- enast út af hamstri sem ég átti og fékk þá snilldarhugmynd að ná í sag fyrir hamsturinn hjá afa. Afi tók sér góðan tíma til þess að leita að hinu fullkomna sagi fyrir hamsturinn Trítla. Þegar ég hugsa um það var það frekar ég sem valdi afa sem minn besta vin, heldur en hann mig. Það var einhvern veginn þannig að ég hélt svo fast í þennan hörkukarl. Allt við hann var svo framandi en samt var svo mikill undirliggjandi kær- leikur að ég ákvað að komast að þessari gátu. Ég gleymi aldrei hvað hann átti erfitt með að knúsa mig og fyrsta skiptið sem hann hélt utan um mig. Við sát- um hlið við hlið inni í bíl og ég horfði á hann og sagði orðrétt: afi, ég veit þú vilt knúsa mig, það þykir öllum gott að knúsa. Eftir að ég lét þessi orð falla reyndi afi hálfkindarlega að knúsa mig, eða frekar svona klappa mér á bakið, hálfvand- ræðalega. Með þessu var eins og harða skelin hans byrjaði aðeins að molna og hann fór að sýna meiri merki um mýkt og tilfinn- ingar með árunum. Við afi vorum samferða gegn- um margt á lífsleiðinni. Hann var svo miklu meira en afi minn. Hann var kletturinn minn. Hann var þvermóðskulegi vinur minn sem ég gat hlegið með og að. Afi borðaði oft hjá mér og það mynstur var hjá okkur til fjölda ára. Það gat þó komið fyrir að hann fussaði yfir eldamennsk- unni, en á seinni árum var hann farinn að borða mat frá hinum ýmsu menningarheimum og þótti honum maturinn bara nokkuð góður. Matarmálin voru eins og allt hjá afa, byrjaði á smá neikvæðni, en svo var hann snúinn við í dyrunum. Með því að fylgjast með nálg- un afa á lífið lærði ég að sjá fólk, náttúruna og aðstæður í öðru ljósi. Hans leiðir kenndu mér að ekkert væri ófært og flestar hindranir lífsins fyrir utan sjúk- dóma og dauða væru félagslegir tilburðir. Við afi áttum einstaka vináttu allt þar til hann kvaddi þessa jarðvist. Ég veit að hann bíður okkar í sumarlandinu. Stelpuskottið þitt og vinkona, Áslaug Ragnarsdóttir. Perlur Árna Grétars Finns- sonar í ljóðinu Lífsþor eiga vel við um Þorstein Svan Jónsson húsasmíðameistara sem nú er fallinn frá, tæplega 86 ára að aldri. Hann hafði sjálfstraust til að efast þegar aðrir trúðu, djörfung til að mæla gegn múgs- ins boðun og manndóm til að hafa eigin skoðun. Hann hafði viljastyrk til að snúa blaðinu við í eigin lífi; takast á við margs- konar mótlæti og verða fjöl- skyldu sinnar festutré um ára- tugaskeið. Afi Svanur hét hann í minni fjölskyldu og þannig var hann kynntur fyrir mér, þegar við rugluðum saman reytum við Kolfinna Von, dótturdóttir hans. En hann var samt miklu meira en afi hennar; hann var henni sem annar faðir; þau bjuggu lengi saman og áttu ótrúlega fal- legt og sterkt vináttusamband. Við Svanur urðum strax mikl- ir trúnaðarvinir. Hann gekk til verka sinna á verkstæðinu dag hvern langt fram á níræðisaldur og kaffistofan þar var sam- komustaður ýmissa heldri manna um áratugaskeið. Svanur var félagsvera í bestu merkingu þess orðs; hann var duglegur að heimsækja vini og ættingja. Þessi hrjúfi iðnaðarmaður hafði hlýtt og mjúkt hjarta undir þykku lagi af lífsreynslu og undi sér best með sínu fólki. Hann var sannarlega ekki allra, en þeir sem ræktuðu sambandið við hann og sýndu vináttu í verki nutu þess ríkulega. Framkvæmdamaður var hann og eldhugi. Verktaki af gamla skólanum sem litla þol- inmæði hafði fyrir óþarfa funda- höldum eða formsatriðum. Bakkus var fylginautur lengi framan af, eins og hjá mörgum okkar fleirum, en fyrir ríflega þrjátíu og fimm árum fékk hann andlega vitrun sem varð til þess að aldrei fór áfengur dropi inn fyrir varir hans eftir það. Líf hans, sigra og mistök ræddi hann af hispursleysi, auðmýkt og án þess að prédika yfir öðr- um. En óspar var hann á góð ráð og dæmdi engan. Honum varð svo ótalmargt úr verki og eftir hann liggur vandað handverk um land allt, sem mun halda minningu hans á lofti. Farsóttin lagðist illa í Svan, félagsveruna sem hann var, því allt í einu var dyggðin mest að vera einn heima og hitta helst ekki neinn. Síðustu mánuði var skrokkurinn farinn að gefa sig, en andinn var þó jafnkvikur og fyrr. Hann bjó einn með hund- inum sínum Pjakki og ætlaði ekki á hjúkrunarheimili. Við það stóð hann, eins og annað og sofnaði svefninum langa, frið- sæll og sáttur í eigin rúmi. Þannig vilja flestir fá að fara þegar kallið kemur og þannig kvaddi Svanur þessa jarðvist, án nokkurra málalenginga. Það var honum líkt. Hann vissi enda sem er, að nú var annað ferðalag fyr- ir höndum og endurfundir við kæra fjölskyldu og vini. Ég er þakklátur fyrir öll sím- tölin og samtölin, fyrir að hafa farið með hann í klippingu og tekið langafadrengina með, far- ið með hann í bólusetningu, því hann taldi nauðsynlegt að Björn Ingi á Viljanum tæki það verk- efni að sér. Ég þakka þeim í fjöl- skyldunni sem hafa hlúð að Svani undanfarin ár. Að öðrum ólöstuðum vil ég geta þess hér, að Kolfinna Von hefur undan- farin ár sinnt afa sínum af stakri samviskusemi og kærleik sem ég hygg að eigi sér fá fordæmi. Óteljandi ferðir og útréttingar, fjörug samtöl um frændgarðinn og vel fylgst með áföngum á lífs- ins leið af einlægum áhuga þess sem er og vill vera kjölfesta sinnar stórfjölskyldu - ættfaðir- inn. Ég sakna vinar í stað og færi fjölskyldunni allri einlægar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu góðs manns. Björn Ingi Hrafnsson. Ég var svo heppinn að kynn- ast Þorsteini Svani gegnum son hans, æskuvin minn Torfa, og svo seinna meir vann ég talsvert hjá honum í nokkur skipti við mismunandi byggingarverkefni. Sameiginlegt með þessum vinnustöðum var að þetta voru góðir dagar og lærdómsríkir. Endurbætur á Núpi í Dýrafirði, Félagsheimili Kópavogs, þak á Ránargötunni og fleira í þessum dúr. Og alltaf lærði maður eitt- hvað. Ránargötuþakið var alveg sérstakt verkefni, unnið í des- ember, ég í Kennó og jólin að koma, skammdegi og skuggar allt um kring, yfir sálinni og tímanum, melankólía og róman- tík yfir þessari minningu en einnig meðan á því stóð. Svona var þetta einhvern veginn með Þorstein Svan, verðmætar minningar urðu til. Hann sagði vel frá og hafði kómíska sýn á embættismenn og pólitík, dag- farsprúður, rólegur og yfirveg- aður en kannski fyrst og fremst feiknaklár fagmaður. Millimetri var millimetri og skipti máli til eða frá. Feiknamikill vélavinnu- maður og átti góðar trésmíða- vélar, alvöru massífar amerísk- ar vélar sem gerðu sitt og gengu endalaust. Bara brýna og halda við. Einhverju sinni smíðuðum við og skiptum um eldhúsinnrétt- ingu hjá Guðmundi bónda á Hrauni á Ingjaldssandi. Þar og á leiðinni þangað fræddi Þor- steinn Svanur okkur um menn og málefni staðarins, sögur og sagnir, þannig að, að loknu verki í kaffi hjá Guðmundi bónda, yrð- um við okkur ekki til skammar. Enn þann dag í dag býr maður að þessum góðu stundum, ekki var bara talað um Hraun í því tilviki heldur alla bæina í daln- um. Þorsteinn Svanur var sinn eigin herra, byggingameistari og frumkvöðull sem tók ákvarð- anir og framkvæmdi. Kannski má segja að á margan hátt hafi hann komið að lífi síns fólks með þeim hætti, var traustur bak- hjarl. Hann fylgdist með fólki og vildi vera til staðar ef á þurfti að halda. Kæru systkin, Torfi Þor- steinn, Jón Ágúst, Kolfinna og Kristín, og fólkið ykkar. Ég veit þið hafið misst mikið, innilegar samúðarkveðjur. Valdimar Harðarson. Margar hugsanir flögra um hugann þegar góð kona fellur frá. Minningarnar eru margar og góðar frá Sigtúni 59 þar sem þau Odda og Gotti bjuggu ásamt þremur dætrum sínum, Díu, Gunnu og Imbu, auk tengdamóður sinnar Dýrfinnu, sem hún sinnti alla tíð uns Dýrfinna lést. Minning- ar frá jólaboðum eru mér í fersku minni úr Karfavogi, þar sem Öddi frændi sá um fjörið, svo og Nóatúni og Álfaskeiði, ásamt mörgum öðr- um góðum samverustundum. Þakka þér samfylgdina elsku Odda mín. Þú varst orðin þreytt. Nú ertu komin til allra ástvina þinna sem þú trúðir og vissir að tækju vel á móti þér. Ég kveð þig hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Innilegar samúðarkveðjur til allra ástvina þinna. Hvíldu í friði. Sigrún, Óli og fjölskylda. Elsku Odda vinkona okkar hef- ur nú sofnað frá veikindum sínum og þjáningum og fengið eilífa hvíld. Við kveðjum góða og einlæga vin- konu með söknuði og sérstöku þakklæti fyrir góða og gefandi samferð á lífsins leið. Okkar ljúfustu stundir liðinna ára eru spilakvöldin okkar með þeim sæmdarhjónum Oddu og Gotta manni hennar á hlýlegu heimili þeirra á Eyrarbakka. Við stofnuðum saman „Litla spila- klúbbinn“ eftir aldamótin og voru meðlimir fjórir. Lög klúbbsins og markmið voru skýr; tilgangur var fyrst og fremst að eiga ánægjuleg- Oddhildur Benedikta Guðbjörnsdóttir ✝ Oddhildur Benedikta Guð- björnsdóttir fædd- ist 1. október 1937. Hún lést 29. maí 2021. Útför hennar fór fram 9. júní 2021. ar samverustundir á heimilum okkar til skiptis. Hefja sam- verustundir með því að taka saman nokk- ur Eyjalög, njóta síð- an góðra veitinga og enda hvert kvöld með því að spila vist í nokkra klukkutíma. Að lokum var verð- launaafhending þar sem sigurvegarar kvöldsins fengu veglegan bikar ásamt verðlaunapeningi en hinir fengu pening með áletruninni önn- ur verðlaun. Bikarinn var vinargjöf til Klúbbsins frá góðum fjölskyldu- vini þeirra, Bóa rafeindavirkja. Hjónin Odda og Gotti voru ein- staklega skemmtilegir gestgjafar. Hann var góður tónlistarmaður og hún algjör listakokkur sem galdraði alltaf fram einstaklega ljúffenga rétti meðan við sátum í stofunni og bóndinn lék falleg lög. Stundum var á miðju kvöldi stiginn dans í stofum okkar, en Odda var góður dansari og sérlega lipur í gamla tjúttinu og gömlu dönsun- um. Á samverustundum okkar var oft rætt um afkomendur okkar og fjölskylduhagi þeirra. Oddu var mjög umhugað um sitt fólk og sagði okkur frá hvernig þeim vegnaði. Þegar hún ræddi um dætur sínar var það alltaf: Día mín, Gunna mín og Imba mín. Þegar hún lauk við frásagnir af atburðum í fjölskyldu sinni bætti hún jafnan við: Ég er svo einstaklega heppin með alla í fjölskyldunni minni, þau eru svo yndisleg við mig. Manni varð stundum hugsað eftir þennan fal- lega vitnisburð hennar: „Maður uppsker eins og maður sáir!“ Nær hvert sinn sem leið okkar hjóna liggur í austur frá Reykjavík verð- ur okkur á orði: Nú væri gaman að vera á leið til Eyrarbakka á spila- kvöld í Litla spilaklúbbnum okkar. Við blessum sannarlega minn- ingu sæmdarhjónanna Oddu og Gotta og sendum afkomendum og fjölskyldum þeirra hugheilar samúðarkveðjur. Iðunn og Ólafur Gränz. Útför í kirkju Upprisa, von og huggun utforikirkju.is Okkar einstaka móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR (Obba) sem lést á Hjúkrunarheimilinu Ljósheimum laugardaginn 5. júní verður jarðsungin frá Selfosskirkju mánudaginn 14. júní klukkan 13. Þátttaka takmarkast við 300 kirkjugesti skv. núgildandi reglum. Sigurður K. Kolbeinsson Edda D. Sigurðardóttir Eva Katrín Sigurðardóttir Kristján Þór Gunnarsson Andrea Þorbjörg Sigurðard. Mick Kjær Christensen Kristín Edda Sigurðardóttir Þorsteinn B. Þorsteinsson og langömmubörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.