Morgunblaðið - 11.06.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 11.06.2021, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Túnikur st. 16-28 netverslun www.gina.is Sími 588 8050. - vertu vinur Jessenius Faculty of Medicine, Martin Slóvakíu Inntökupróf verður haldið á netinu 10 júli nk. Umsóknarfrestur til 17. júní. Uppl. kaldasel@islandia.is og 8201071 Bílar Sá allra flottasti. MERCEDES- BENZ GLS 350 d 4matic. Árgerð 2018, ekinn 79 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 9 gírar. Verð 11.990.000. Rnr.134202. Engin skipti. Bíllinn er á staðnum. Einn sá flottasti. LAND ROVER Range Rover Sport Hse . Árgerð 2017, ekinn 72 Þ.KM, Dísel, sjálfskiptur 8 gírar. Verð 9.900.000. Rnr.214467. Raf- magnskrókur. Bíllinn er á staðnum. Nánari upplýsingar veita Höfðabílar ehf. í síma 577-4747 Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Fundarboð Aðalfundur 2021 Aðalfundur Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur hf. verður haldinn fimmtudaginn 24. júní 2021, kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn í matsal félagsins í skipaskýli þess að Sjávargötu 6-12, 260 Njarðvík. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 13. gr. samþykkta. 2. Tillögur um breytingar á samþykktum: 4. gr.: Heimild til stjórnar að hækka hlutafé félagins um allt að kr.100.000.000 í áföngum á næstu 5 árum á lágmarksgengi 7,5. Forgangsréttur hluthafa fylgir ekki hækkuninni. 6. gr.: Tekin upp ákvæði um rafræna skráningu hlutabréfa og ákvæði um hlutaskrá því til sam- ræmis. Feld úr samþykktum ákvæði um hlutabréf. 20. gr. og 23. gr.: Stjórn félagsins skipi 5 menn í stað 3ja og tveggja til vara og undirskrift meirihluta stjórnar skuldbindi félagið (23. gr.) 3. Önnur mál. Njarðvík, 8 júní 2021. Stjórn Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur hf. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Ath. Grímuskylda er á uppboðum. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Brúnagerði 2, Eyjafjarðarsveit, fnr. 233-8836 , þingl. eig.Timburbyggð ehf, gerðarbeiðandi Eyjafjarðarsveit, þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 10:35. Brúnagerði 3, Eyjafjarðarsveit, fnr. 233-8837 , þingl. eig.Timburbyggð ehf, gerðarbeiðandi Eyjafjarðarsveit, þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 10:40. Brúnagerði 4, Eyjafjarðarsveit, fnr. 233-8838 , þingl. eig.Timburbyggð ehf, gerðarbeiðandi Eyjafjarðarsveit, þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 10:45. Brúnagerði 5, Eyjafjarðarsveit, fnr. 233-8839 , þingl. eig.Timburbyggð ehf, gerðarbeiðandi Eyjafjarðarsveit, þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 10:50. Reynivellir 6, Akureyri, fnr. 214-9986 , þingl. eig. Ingibjörg María Símonardóttir og Hörður Már Kristjánsson, gerðarbeiðandi Akur- eyrarbær, þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 10:00. Hjallalundur 5, Akureyri, fnr. 214-7373 , þingl. eig. Jóhannes Stefáns- son, gerðarbeiðandi Aur app ehf., þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 10:15. Laugartún 23, Svalbarðsstrandarhr, fnr. 216-0504 , þingl. eig. Bryndís Hafþórsdóttir og Sigurður Hreinn Hjartarson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 11:10. Aðalbraut 24, Norðurþing, fnr. 216-7217 , þingl. eig. Maritza Esther P. Ospino, gerðarbeiðendur Norðurþing og ÍL-sjóður, miðvikudaginn 16. júní nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 10. júní 2021 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Botsía kl. 10. Zumba Gold kl. 10.30. Dansfimi með Auði Hörpu kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.30-17.15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa. 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Kundalini jóga kl. 10-10.45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með- læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Pool-hópur í Jóns- húsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Ganga fyrir fólk með göngugrind frá Jónshúsi kl. 11. Gerðuberg Opin handavinnustofa. Heitt á könnunni, blaðalestur, kaffispjall og samvera. Gönguhópur frá kl. 10, (leikfimi og svo ganga). Prjónakaffi frá kl. 10. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Handavinna, opin vinnustofa frá kl. 10.30. Korpúlfar Útvarpsleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Pílukast í Borgum kl. 9.30. Gönguhópar Korpúlfa leggja af stað í göngu kl. 10 og boðið verður upp á leikfimi með Hönnu kl. 11.15 í dag föstudag og verður alla föstudaga á sama tíma í allt sumar. Allir velkomnir, bæði hægt að vera við standandi og sitjandi æfingar og ókeypis. Er í 45 mín., passar fínt því matur er kl. 12. Bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Seltjarnarnes Kaffikrókurinn á Skólabraut frá kl. 9. Skráning stendur yfir í ferðina í Grasagarðinn og Café Flóru nk. þriðjudag. Ferðin er fólki að kostnaðarlausu. Einnig minnum við á fyrirhugaða ferð á Langjökul fimmtudaginn 24. júní. Dagsferð sem hentar öllum. Skrán- ing og allar uppl. í síma 8939800 og á fb. síðunni eldri borgarar á Sel- tjarnarnesi. Vantar þig fagmann? FINNA.is Mig langar að minnast kærrar föðursystur minnar með nokkrum orð- um. Ég kynntist Siggu eiginlega ekki vel fyrr en á fullorðins- árum. Það var alltaf svo gaman og skemmtilegt að tala við hana, hún var fróð um svo margt. Líka var alltaf notalegt að heim- sækja þau Guðna og Siggu, þau voru höfðingjar heim að sækja. Þau eignuðust fimm dætur og hóp af barnabörnum. Það hefur verið fjör á þeim bæ einhvern tímann. Sigríður Friðrikka Jónsdóttir ✝ Sigríður F. Jónsdóttir fæddist 27. maí 1937. Hún lést 27. maí 2021. Útför Sigríðar var 9. júní 2021. Elsku Sigga, hjartans þakkir fyr- ir allt sem þú gerð- ir fyrir mig og fjöl- skyldu mína. Góða ferð í sumarlandið þar sem örugglega verður vel tekið á móti þér. Ég votta dætrum hennar, fjölskyldum þeirra og öðrum aðstand- endum einlæga samúð mína. Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag. Megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Þýð. Bjarni Stefán Konráðsson) Þín frænka, Guðrún Oddný Gunn- arsdóttir (Didda). ✝ Óskar Þór Óskarsson fæddist í Vest- mannaeyjum 10. nóvember 1951. Hann varð bráð- kvaddur 31. maí 2021. Foreldrar hans voru Óskar Matt- híasson útgerð- armaður, f. 22.3. 1921, d. 21.12. 1992, og Þóra Sigurjónsdóttir, f. 17.6. 1924, d. 16.5. 2013. Systkini Óskars Þórs eru Matthías, f. 16.1. 1944, Sig- urjón, f. 3.5. 1945, Kristján, f. 13.5. 1946, Leó, f. 4.8. 1953, Þórunn, f. 11.10. 1954, og Ingi- bergur, f. 27.8. 1963. Óskar Þór kvæntist 24. mars 1996 Sigurbjörgu Helgadóttur, f. 2. desember 1950. Börn þeirra eru: 1) Katrín Helga Óskarsdóttir, f. 14.3. 1980, maki Arnþór Valgarðsson, f. 23.1. 1979, börn þeirra eru Birgitta Dögg, f. 15.3. 2002, Daði Snær, f. 31.5. 2005, d. 24.1. 2006, Daníel Smári, f. 8.1. 2007, og Stefán Kári, f. 1.6. 2009. 2) Fanney Svala Ósk- arsdóttir, f. 15.12. 1981, maki Snorri Elmarsson, f. 21.1. 1980, börn þeirra eru Sölvi, f. 20.5. 2004, Nökkvi, f. 23.9. 2008, og Elmar, f. 19.1. 2012. Óskar Þór eyddi sínum upp- vaxtarárum í Vestmannaeyjum. Árið 1971 fór hann upp á land þar sem hann hóf störf hjá Ra- rik sem línumaður og vann hann víðs vegar um landið. Árið 1973 kynntist hann eftirlifandi eigin- konu sinni Sigur- björgu Helgadótt- ur og keyptu þau sína fyrstu trak- torsgröfu árið 1974. Óskar Þór vann á gröfunni hjá Rarik. Einnig vann hann mikið fyrir sumarbústaðaeigendur í nágrenni Borgarness. Óskar Þór og Sigurbjörg byggðu sér hús í Borgarnesi árið 1978 þar sem þau ólu dætur sínar tvær upp. Óskar Þór hafði mikinn áhuga á kvikmyndatökum. Árið 1996 keypti hann upptökuvél og hóf að mynda fyrir alvöru. Óskari Þór þótti mjög gaman að taka viðtöl við skemmtilegt fólk og eftir hann liggur gríð- arstórt safn myndefnis sem hann var duglegur að deila með fólki. Árið 2014 fluttu þau hjónin alfarið vestur í Traðir á Mýrum þar sem þau stunduðu æðar- búskap af miklum myndarbrag. Óskar Þór bjó í Tröðum til dánardags. Óskar Þór verður jarðsung- inn frá Borgarneskirkju í dag, 11. júní 2021, klukkan 14. Athöfninni verður streymt. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/smkstyxy/ Nálgast má virkan hlekk á streymið á: https://www.mbl.is/andlat/. Það er erfitt að kveðja þig elsku besti Óskar afi okkar. Við söknum þín svo sárt, en við eigum sem bet- ur fer mjög margar góðar minn- ingar með þér sem hlýja okkur í hjartanu. Þú varst mjög góður gröfumað- ur og okkur þótti mjög spennandi að fá að vera inni í gröfunni hjá þér þegar þú varst að vinna. Þú varst líka algjör græjukall og flestar græjurnar þínar voru tengdar tófu- veiðum eða vídeóupptökum. Þú átt- ir alveg fullt af vídeóspólum sem þú geymdir inni á skrifstofu og varst með fullt af öppum í tölvunni til að klippa vídeóin til og setja inn á þau tónlist. Okkur þótti svo gaman að fara með þér í fjórhjólaferðir. Þær voru mis langar og stundum tókum við með okkur nesti. Það kom fyrir að við lentum í ævintýrum. Þú varst mjög hugmyndaríkur og því þótti okkur mjög gaman að brasa með þér í vélageymslunni. Þar smíðuðum við allskonar skemmtilega hluti eins og kassabíl, ungahús, hjólastökkpall o.fl. Okkur þótti líka gaman að fara með þér í Borgarnes að versla því þú keyptir eiginlega alltaf handa okkur nammi, oftast stjörnurúllu. Borgarnesferðirnar gátu samt tek- ið dálítið langan tíma því þú þekktir alltaf svo marga sem þú þurftir að tala við. Það var líka mjög gaman að fara með þér út á sjó að veiða á trillunni. Stundum veiddum við fiska og stundum sáum við hvali. Þú fórst líka með okkur að veiða lunda og kenndir okkur spítalavink. Þú sagðir okkur stundum skemmtilegar sögur fyrir svefninn frá því þú varst lítill strákur í Vest- mannaeyjum og svo þótti þér mjög gaman að horfa á Mr. Bean með okkur, þú hlóst alltaf lang mest sjálfur. Við elskum þig og þú verður allt- af partur af lífi okkar. Birgitta Dögg, Daníel Smári og Stefán Kári Arnþórsbörn. Óskar Þór Óskarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.