Morgunblaðið - 11.06.2021, Page 25

Morgunblaðið - 11.06.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 „FÓRSTU TIL NÝJA RAKARANS Í LÆKJARGÖTUNNI?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að endurheimta æskuástina. GRETTIR! GRETTIR!! GRETTIR!!! RANNSÓKNIR SANNA AÐ KETTIR ÞEKKJA NAFN SITT ÞEGAR EIGANDINN KALLAR Á ÞÁ …OG AÐ ÞEIR HUNDSA ÞAÐ BÍDDU NÚ HÆGUR BRAGI – Í KVÖLD ÞARFTU AÐ SYNGJA TIL AÐ VINNA ÞÉR INN FYRIR KVÖLDMATNUM ÞÍNUM! JÆJA, ÉG BAUÐ VÍST UPP Á ÞETTA! HELGA! LEGGÐU Á BORÐ FYRIR EINN Í VIBÓT! „EF ÞÚ HEFUR ÞEGAR GREITT SKULDINA BIÐJUM VIÐ ÞIG VIRÐINGARFYLLST AFSÖKUNAR Á ÍTREKUNINNI.“ HRÓLFS ER LUNDIN LÉTT … HANN KANN SITT „ETIQUETT“… EN ÓLÍKT ÖLLUM KONUM … ÞVÆLIST HEIMSKAN FYRIR HONUM! Björk skurðhjúkrunarfræðingur, f. 12.4. 1972, gift Ásmundi Helga Steindórssyni viðskiptafræðingi, f. 29.5. 1976. Þau eiga börnin Agnesi Líf, f. 18.12. 2000; Birgi Stein, f. 18.9. 2002, og Evu Maríu, f. 30.8. 2011. Þau eru búsett í Noregi. 3) María Ósk viðskiptafræðingur, f. 11.9. 1973, gift Sigurði Erni Hall- grímssyni þjónustustjóra, f. 11.11. 1968. Dóttir Maríu er Guðný Lilja Pálsdóttir, f. 23.3. 1995, og sonur þeirra er Pétur Helgi Sigurðsson, f. 19.3. 2005. Alsystkini Guðnýjar eru Matt- hildur Victoria vörumerkjaráðgjafi, f. 20.3. 1954, d. 10.9. 2005; Guðrún Auður hjúkrunarfræðingur, f. 4.7. 1957, og Erla Ruth leikari, f. 4.6. 1961. Hálfsystkini Guðnýjar sam- feðra eru tvíburarnir Haukur og Hörður, f. 20.3. 1952; Helgi Ásgeir, f. 26.12. 1961; Hörður Þór, f. 12.8. 1967; Þórdís Rós, f. 9.12. 1970, Guð- mundur Albert, f. 18.10. 1972, og Ingibjörg Rósa, f. 1.3. 1977. Foreldrar Guðnýjar eru hjónin H. María Jóhannsdóttir ritari, f. 26.10. 1925, d. 11.6. 2019, og Hörður G. Al- bertsson lögfræðingur, f. 28.5. 1928, d. 15.3. 2011. Þau bjuggu í Reykja- vík en skildu. Hörður kvæntist síðar Sesselju Þórdísi Ásgeirsdóttur, f. 16.1. 1941. Guðný Harðardóttir Marie Gröndahl frá Noregi Olav Foss frá Noregi Matthilde Viktoría Gröndahl Kristjánsson húsfreyja í Reykjavík Jóhann Franklín Kristjánsson byggingameistari og arkitekt í Reykjavík Herdís María Jóhannsdóttir ritari og verslunarmaður í Reykjavík Guðrún Jóhanna Vigfúsdóttir húsfreyja á Litlu-Hámundar- stöðum, Árskógshr. Kristján Jónsson bóndi á Litlu-Hámundar- stöðum, Árskógshr. Guðrún Jónsdóttir frá Lykkju á Kjalarnesi Guðmundur Björnsson bóndi á Bakka á Borgarfirði eystra Guðný Jóna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Albertsson kaupmaður og forstjóri, síðast bús. í Reykjavík Guðrún Rannveig Nikólína Guðmundsdóttir húsfr. í Leiðarhöfn, Vopnafj.hr. Albert Ferdinand Nielsen bóndi í Leiðarhöfn, Vopnafj.hr., N-Múl. Úr frændgarði Guðnýjar Harðardóttur Hörður Albert Guðmundsson Albertsson lögfræðingur og forstjóri í Reykjavík Ámiðvikudaginn var staka hér íVísnahorni, sem Guðmundur Arnfinnsson orti upp á vestfirsku. Því rifjaðist upp fyrir mér að ég bað ungur Sveinbjörn á Draghálsi að kenna mér nýhendu. Hann svar- aði með þessari ferskeytlu: Bagar angur bragargang brims ég stangast vési. Blæinn stranga fæ í fang fram af Langanesi. En hélt síðan viðstöðulaust áfram og þá var nýhendan komin! Bagar angur bragargang brims ég stangast hörðu vési blæinn stranga fæ í fang fram af langa Jóhannesi. Á Boðnarmiði yrkir Ingólfur Óm- ar „Hestavísu“: Skrefafljótur, vaskur vel vökrum fótum beitir. Arkar gjótur urð og mel ólmur grjóti þeytir. Hér er limra eftir Bjarna Sig- tryggsson: Með loforð í stjórnmálum stefndir en stutt var því miður í efndir. Um orðheldni þagðir og aðeins þú sagðir: „Nú er það komið í nefndir.“ Á sunnudag orti Bjarni: Heldur áfram háskans raun, um hóla og dali fer í sveig. Hægt til sjávar sígur hraun; Suðurstrandarleið er feig. Margt er skemmtilega og vel ort í „Kveri um kerskni og heimsó- sóma“, sem eru ljóð og lausavísur 2014-2018 eftir Helga Ingólfsson. Á bókarkápu er þessi limra: Ég iðka hér íþrótt, mjög lúna, að yrkja svo vísuna snúna að bragstafir bresta með braukinu mesta og rassbögurím kemur – núna. Hér er átthend hestamannavísa: Þú sem lest um þjóðar pest – það á best við flesta: Fyrir rest er fólkið hresst sem fjallar mest um hesta. Þetta kallar Helgi „vasaspeki“: Skammtafræði ég skil til fulls og skíran málminn bjarta. En uppruni hins eina gulls er í mannsins hjarta. Þessi limra segir Helgi að sé „á gráa svæðinu“: Í bólfimi fundu þau framfarir og fjörmiklar stunduðu samfarir. Af munúð þau mættust, æ meira þau kættust, uns nálgaðist náttúruhamfarir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Nýhenda upp á vestfirsku og orðheldni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.