Morgunblaðið - 11.06.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
Pepsi Max-deild kvenna
Fylkir – Tindastóll ................................... 2:1
Staðan:
Selfoss 6 4 1 1 13:6 13
Valur 6 4 1 1 15:10 13
Breiðablik 6 4 0 2 23:11 12
Þróttur R. 6 2 3 1 14:9 9
ÍBV 6 3 0 3 12:12 9
Stjarnan 6 2 1 3 6:11 7
Keflavík 6 1 3 2 7:9 6
Þór/KA 6 2 0 4 6:11 6
Fylkir 6 1 2 3 4:14 5
Tindastóll 6 1 1 4 5:12 4
Lengjudeild karla
Selfoss – Fram.......................................... 0:4
Kórdrengir – Grótta................................. 2:1
Þróttur R. – Grindavík............................. 2:3
Fjölnir – Víkingur Ó................................. 2:1
Staðan:
Fram 6 6 0 0 19:3 18
Fjölnir 6 4 1 1 10:5 13
Grindavík 6 4 0 2 11:11 12
Kórdrengir 6 3 2 1 11:9 11
Grótta 6 2 2 2 15:11 8
ÍBV 5 2 1 2 10:7 7
Þór 5 2 1 2 12:12 7
Vestri 5 2 0 3 8:13 6
Afturelding 5 1 2 2 9:11 5
Þróttur R. 6 1 1 4 10:14 4
Selfoss 6 1 1 4 7:15 4
Víkingur Ó. 6 0 1 5 7:18 1
2. deild karla
Þróttur V. – Reynir S............................... 2:0
KV – Haukar............................................. 1:1
Njarðvík – ÍR............................................ 2:0
Magni – KF............................................... 3:3
Staðan:
Þróttur V. 6 3 3 0 15:6 12
KF 6 3 2 1 10:7 11
Njarðvík 6 2 4 0 11:7 10
KV 6 2 4 0 12:9 10
ÍR 6 3 1 2 11:10 10
Reynir S. 6 3 0 3 11:10 9
Haukar 6 2 2 2 13:12 8
Völsungur 5 2 1 2 10:11 7
Leiknir F. 5 2 0 3 7:10 6
Magni 6 1 2 3 12:16 5
Fjarðabyggð 5 0 2 3 2:11 2
Kári 5 0 1 4 7:12 1
3. deild karla
KFG – Elliði.............................................. 1:0
Staða efstu liða:
Höttur/Huginn 5 4 1 0 9:5 13
Augnablik 5 3 2 0 15:3 11
KFG 5 3 1 1 6:2 10
Elliði 6 3 0 3 14:10 9
Ægir 5 2 3 0 7:5 9
Dalvík/Reynir 6 2 2 2 11:9 8
Vináttulandsleikir kvenna
Ítalía - Holland.......................................... 1:0
Danmörk - Ástralía .................................. 3:2
Svíþjóð - Noregur..................................... 1:0
Spánn - Belgía........................................... 3:0
Frakkland - Þýskaland ............................ 1:0
>;(//24)3;(
Þýskaland
Lemgo - Bergischer ............................ 31:23
- Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk fyrir
Lemgo.
- Arnór Þór Gunnarsson var ekki í leik-
mannahóp Bergischer.
Coburg - Balingen ............................... 27:27
- Oddur Gretarsson skoraði eitt mark fyr-
ir Balingen.
Staða efstu liða:
Flensburg 62, Kiel 59, Magdeburg 46, RN
Löwen 43, Füchse Berlín 42, Melsungen 38.
Sviss
Úrslit, fyrsti leikur:
Pfadi Winterhur - Kadetten............... 28:25
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
E(;R&:=/D
Spánn
Undanúrslit, oddaleikur:
Real Madrid - Valencia ....................... 80:77
- Martin Hermannsson skoraði 7 stig fyrir
Valencia, ásamt því að taka tvö fráköst og
gefa tvær stoðsendingar á átján mínútum.
_ Real Madrid vann einvígið samtals 2:1 og
mætir annaðhvort Barcelona eða Tenerife í
úrslitum.
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, undanúrslit:
Phoenix - Denver................................ 123:98
_ Staðan er 2:0 fyrir Phoenix.
>73G,&:=/D
Knattspyrna
Vináttulandsleikur kvenna:
Laugardalsvöllur: Ísland - Írland............ 17
Handknattleikur
Undanúrslit karla, seinni leikur:
Ásvellir: Haukar - Stjarnan...................... 18
Hlíðarenda: Valur - ÍBV ........................... 20
Körfuknattleikur
Umspil karla: fjórði úrslitaleikur:
Ísafjörður: Vestri - Hamar (2:1)............... 20
Í KVÖLD!
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Fylkir vann sinn fyrsta leik í sumar í
úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildinni, þegar liðið
fékk Tindastól í heimsókn í frest-
uðum leik úr annarri umferð deild-
arinnar á Würth-völlinn í Árbænum
í gær.
Fylkiskonur byrjuðu leikinn af
miklum krafti og uppskáru mark á
26. mínútu eftir laglegt einstaklings-
framtak Huldu Hrundar Arnars-
dóttur. Shannon Simon tvöfaldaði
forystu Fylkis með skalla eftir horn-
spyrnu í upphafi síðari hálfleiks áður
en Hugrún Pálsdóttir minnkaði
muninn fyrir Tindastól á lokamín-
útum leiksins.
„Sigur Fylkiskvenna var sann-
gjarn. Þær settu Stólana undir
mikla pressu nánast allan leikinn og
voru þéttar fyrir í vörninni. Sóknar-
leikurinn var betri en í flestum leikj-
um liðsins til þessa í sumar þó mikill
fjöldi langskota hafi ekki verið lík-
legur til árangurs.
Tindastóll saknaði síns helsta
markaskorara, Murielle Tiernan,
mikið en hún sat allan tímann meidd
á varamannabekknum í [gær]kvöld
og var nánast enginn sóknarleikur
til staðar í fyrri hálfleik,“ skrifaði
Gunnar Egill Daníelsson m.a í um-
fjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Fylkir, sem spáð var þriðja sæti
deildarinnar í spá fyrirliða, þjálfara
og forráðamanna liða í deildinni,
hefur ekki farið vel af stað á tíma-
bilinu og var aðeins með 2 stig þegar
kom að leik gærdagsins.
Á sama tíma hefur Tindastól
fatast flugið en liðið hefur nú tapað
fjórum leikjum í röð í deildinni eftir
að hafa fengið fjögur stig úr fyrstu
tveimur leikjum tímabilsins.
Sigurinn fleytir Fylkiskonum upp
um eitt sæti í deildinni og er liðið nú
með 5 stig í níunda sætinu en Tinda-
stóll er á botni deildarinnar með 4
stig.
Langt síðan síðast
Árbæingar hleyptu miklu lífi í
deildina með sigri gærdagsins en að-
eins munar fjórum stigum á liðinu í
níunda sæti deildarinnar og liðinu í
fjórða sætinu.
Liðin þrjú sem skipa efstu þrjú
sæti deildarinnar; Selfoss, Valur og
Breiðablik, hafa öll tapað leik í deild-
inni í sumar eftir sex umferðir.
Það gerðist síðast árið 2014 þegar
Stjarnan, Þór/KA og Fylkir voru í
efstu þremur sætunum eftir fyrstu
sex umferðirnar.
Það er því óhætt að segja að deild-
in sé mun jafnari en oft áður og von
á spennandi sumri í úrvalsdeildinni.
Hleyptu lífi í
úrvalsdeildina
- Fyrsti sigurinn kom gegn nýliðunum
Morgunblaðið/Eggert
Átök Sauðkrækingurinn Laufey Harpa Halldórsdóttir í baráttu við Árbæ-
inginn Maríu Evu Eyjólfsdóttur á Würth-vellinum í Árbænum í gær.
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir tryggði
sér í gær sæti í átta manna úrslitum
Opna breska áhugamannamótsins í
golfi með sigri á hinni ensku Emily
Toy í 16 manna úrslitum mótsins.
Leikið er í Kilmarnock í Skotlandi.
Í gær réðust úrslitin á 18. og síðustu
holunni. Var Jóhanna Lea með einnar
holu forskot fyrir hana. Á síðustu hol-
unni léku Jóhanna Lea og Toy báðar á
fimm höggum og vann íslenski kylf-
ingurinn þar með nauman sigur.
Jóhanna Lea mætir hinni írsku Ka-
tie Lanigan í átta manna úrslitum
mótsins í dag.
Jóhanna Lea í
átta manna úrslit
Ljósmynd/EGA
Skotland Jóhanna Lea úr GR lék
mjög vel í Kilmarnock gær.
Dagbjartur Daði Jónsson hafnaði í
öðru sæti í spjótkasti á bandaríska
háskólameistaramótinu í frjáls-
íþróttum í Eugene í Oregon í fyrri-
nótt. Dagbjartur kastaði spjótinu
76,98 metra en hans besti árangur í
greinni er 78,30 metrar. Það er
sjötti besti árangur Íslendings frá
upphafi í spjótkasti. Sindri Hrafn
Guðmundsson kastaði spjótinu
75,61 metra og hafnaði í fimmta
sæti. Þeir keppa báðir fyrir Miss-
issippi State-háskólann og eru
skráðir til leiks á Meistaramót Ís-
lands á Akureyri um helgina.
Frábær árangur á
stærsta mótinu
Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson
Öflugir Dagbjartur Daði, til vinstri,
ásamt Sindra Hrafni, til hægri.
FYLKIR – TINDASTÓLL 2:1
1:0 Hulda Hrund Arnarsdóttir 26.
2:0 Shannon Simon 55.
2:1 Hugrún Pálsdóttir 88.
MM
Sæunn Björnsdóttir (Fylkir)
M
Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylkir)
Íris Una Þórðardóttir (Fylkir)
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (Fylkir)
Shannon Simon (Fylkir)
Amber Kristin Michel (Tindastóll)
Hugrún Pálsdóttir (Tindastóll)
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson – 7.
Áhorfendur: 147.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.
Fred Saraiva fór mikinn fyrir
Framara þegar liðið vann 4:0-
stórsigur gegn Selfossi í 1. deild
karla í knattspyrnu, Lengjudeild-
inni, á Jáverk-vellinum á Selfossi í
sjöttu umferð deildarinnar í gær.
Fred skoraði fyrstu tvö mörk
Framara í fyrri hálfleik áður en
þeir Albert Hafsteinsson og Guð-
mundur Magnússon bættu við sínu
markinu hvor fyrir Framara í síð-
ari hálfleik.
Framarar eru með 18 stig í efsta
sæti deildarinnar en Selfoss hefur
ekki fundið taktinn enn sem komið
er og er með 4 stig í ellefta og
næstneðsta sæti.
_ Þá vann Fjölnir afar drama-
tískan sigur gegn Víkingi frá Ólafs-
vík á Extra-vellinum í Grafarholti
þar sem úrslitin réðust í uppbótar-
tíma.
Þorleifur Úlfarsson kom Vík-
ingum yfir á 39. mínútu og þannig
var staðan allt þangað til komið var
fram í uppbótartíma þegar Reynir
Leósson jafnaði metin fyrir Fjöln-
ismenn á fjórðu mínútu uppbótar-
tímans.
Það var svo Hilmir Rafn Mika-
elsson sem tryggði Fjölni sigur
með flautumarki og lokatölur því
2:1 í Grafarvoginum.
Fjölnismenn eru með 13 stig í
öðru sæti deildarinnar en Víkingar
eru á botni deildarinnar með 1 stig.
_ Grindavík vann afar mikil-
vægan 3:2-sigur gegn Þrótti úr
Reykjavík á Eimskipsvellinum í
Laugardal.
Sigurður Bjartur Hallsson, Odd-
ur Ingi Bjarnason og Laurens Sy-
mons skoruðu mörk Grindvíkinga í
leiknum en Daði Bergsson og
Samuel Ford skoruðu mörk Þrótt-
ara.
Grindavík er með 12 stig í þriðja
sæti deildarinnar en Þróttarar eru í
tíunda sætinu með 4 stig líkt og
Selfoss.
_ Þá reyndist Davíð Þór Ás-
björnsson hetja Kórdrengja þegar
liðið fékk Gróttu í heimsókn á Do-
musnova-völlinn í Breiðholti.
Davíð skoraði tvívegis í leiknum,
á 13. mínútu og 90. mínútu, en Pét-
ur Theódór Árnason skoraði eina
mark Gróttu í fyrri hálfleik.
Kórdrengir eru með 11 stig í
fjórða sæti deildarinnar en Grótta
er í fimmta sætinu með 8 stig.
Ljósmynd/Kristján Þór Árnason
Markaskorari Fred Saraiva fagnar fyrra marki sínu á Selfossi en hann hefur skorað sex mörk í deildinni í sumar.
Óstöðvandi Framarar með fullt hús stiga