Morgunblaðið - 11.06.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 11.06.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 Gríman 2021 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég átti svo sannarlega ekki von á þessari við- urkenningu, en mér þykir vænt um þetta. Mér finnst það skemmtilegur siður að senda svona þakklætisvott til þeirra sem staðið hafa vakt- ina,“ segir Hallveig Thorlacius, heiðurs- verðlaunahafi Sviðslistasambands Íslands. Hallveig hefur um áratuga skeið starfað í þágu íslenskrar barnamenningar og leikhúslífs. „Hugsjón mín hefur ætíð verið að börnum sé sinnt og þau fái það sem þau þurfa. Eitt af því sem börn þurfa og þrá er að við fullorðna fólk- ið sjáum þau og hlustum á þau. Börn eru svo oft skilgreind sem hluti af hóp, hvort sem það er bekkurinn þeirra eða íþróttaliðið, en þau þurfa á því að halda að vera séð sem ein- staklingar líka,“ segir Hallveig og leggur jafn- framt áherslu á mikilvægi þess að aðstand- endur barna hafi sem bestar aðstæður til að sinna börnum sínum. „Öll viljum við auðvitað börnum okkar það besta, en við höfum ekki öll aðstæður, tíma og fjárhagslegt svigrúm til þess.“ Ósýnilega brúðan víðförlust Aðspurð segist Hallveig vel muna eftir fyrstu sýningunni sem hún sá, þá átta ára gömul. „Mín fyrsta upplifun af leikhúsi var þegar ég sá Álfhól í Iðnó, sem var reyndar ekki barnasýning, enda var fátt um slíkar sýn- ingar á sínum tíma,“ segir Hallveig og rifjar upp að það hafi í raun verið ákveðin tilviljun að hún lagði síðan leiklistina fyrir sig sem ævi- starf, en á löngum ferli hefur hún starfað sem leikhússtjóri, handritshöfundur, brúðusmiður, brúðustjórnandi, leikmyndahöfundur, leik- kona og trúður. „Sem unglingur fékk ég strax mikinn áhuga á brúðuleikhúsi þrátt fyrir að hafa aldrei séð brúðuleikhús,“ segir Hallveig og rifjar upp að bókin Dukketeater! sem hjónin Jane og Agnar Mykle skrifuðu og út kom 1954 hafi haft mikil áhrif á sig. Hallveig nam við Háskólann í Moskvu um þriggja ára skeið. „Meðan ég var í Moskvu fylgdist ég vel með Obraztsov- brúðuleikhúsinu,“ segir Hallveig sem síðar nam dramatúrgíu fyrir brúðuleikhús í Tékk- landi. „Þegar ég kom heim fór ég í Kennara- háskólann og fór svo að kenna og notaði brúð- ur í kennslunni,“ segir Hallveig og rifjar upp að hún hafi meðal annars átt ósýnilega brúðu sem bjó ofan í kennaraskúffunni. „Ég notaði þessa ósýnilegu brúðu síðan í víðförlustu sýn- ingu minni,“ segir Hallveig og vísar þar til sýningarinnar Minnsta tröll í heimi sem hún sýndi undir merkjum Sögusvuntunnar, m.a. á Norðurlöndunum, í Rússlandi og Bretlandi. „Sýningin var valin framlag Íslands í vestur- heimi árið 2000 til að minnast þess að þúsund ár voru liðin frá ferðum Leifs heppna,“ segir Hallveig sem heimsótti ríflega hundrað skóla í Kanada og Bandaríkjunum. „Mín fyrstu skref í brúðuleikhúsi hér heima voru með Leikbrúðulandi,“ segir Hallveig, sem var ein fjögurra stofnenda þess. Leik- brúðuland hélt uppi samfelldri starfsemi í rúma tvo áratugi og setti upp um tuttugu sýn- ingar sem sýndar voru vítt og breitt um landið og víða um Evrópu. „Mig dreymdi hins vegar alltaf um að gera hlutina á minn hátt eins og ég hafði séð fyrir mér þegar ég las bók Mykle- hjónanna. Svo meðfram starfi mínu hjá Leik- brúðulandi stofnaði ég árið 1984 mitt eigið ferðaleikhús,“ segir Hallveig og vísar þar til Sögusvuntunnar sem sett hefur upp 14 sýn- ingar. „Þar var ég yfirleitt alltaf ein að undan- skildum þremur sýningum sem Helga Arn- alds, dóttir mín, tók þátt í með mér. Ég var mjög hikandi við að leggja einleiksformið fyrir mig og frumsýndi til vonar og vara norður á Bakkafirði. En það gekk svona líka ljómandi vel og í framhaldinu sýndi ég um allt Ísland og í hinum ýmsu löndum,“ segir Hallveig og rifjar upp að fyrstu sýningar Sögusvuntunnar hafi verið innblásnar af hryllingssögum og ævin- týrum sem amma hennar sagði henni, en seinna vann hún sýningar upp úr Íslendinga- sögunum, þeirra á meðal Egils sögu Skalla- grímssonar. Fræðslusýning um ofbeldi „Í sýningarferðum mínum erlendis kom sér vel að ég kunni nokkuð mikið af tungumálum, en ég leik aldrei í landi nema kunna tungu- málið,“ segir Hallveig og rifjar upp að hún hafi leikið á dönsku, sænsku, norsku, færeysku, ensku, rússnesku og einu sinni á frönsku. Þótt Hallveig sé hætt að búa til nýjar sýn- ingar en hún enn starfandi, því hún er hluti af sýningarteymi sem ferðast um landið á vegum velferðarráðuneytisins og Barnaverndarstofu með sýninguna Krakkarnir í hverfinu sem er fræðslusýning um ofbeldi gegn börnum. „Ég nýt þess að sýna meðan ég hef starfsþrek til,“ segir Hallveig sem á síðustu árum hefur sinnt ritstörfum í ríkara mæli og meðal annars gefið út þrjár unglingaskáldsögur. „Ég nýtti kófið til að skrifa og er að ljúka við mína fyrstu skáldsögu fyrir fullorðna, sem vonandi kemur út á næsta ári,“ segir Hallveig að lokum. „Mér þykir vænt um þetta“ - Hallveig Thorlacius heiðursverðlaunahafi Sviðslistasambands Íslands 2021 - „Mér finnst það skemmtilegur siður að senda svona þakklætisvott til þeirra sem staðið hafa vaktina,“ segir Hallveig Morgunblaðið/Eggert Brúðuleikhús „Sem unglingur fékk ég strax mikinn áhuga á brúðuleikhúsi þrátt fyrir að hafa aldrei séð brúðuleikhús,“ segir Hallveig Thorlacius sem ferðast enn um landið með sýningu. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Markmið mitt hefur alltaf verið að sinna vinnunni minni vel óháð hvers kyns viðurkenningum,“ segir Þór- hallur Sigurðsson, heiðurs- verðlaunahafi Sviðslistasambands Íslands, sem nýverið fagnaði 75 ára afmæli sínu og er þar með orðinn jafngamall Tóbíasi í turninum sem hann túlkar í Kardemommubænum á Stóra sviði Þjóðleikhússins. „Mikilvægustu viðurkenninguna fær maður auðvitað frá áhorfendum, því það leynir sér aldrei hvort sýning hittir í mark. En auðvitað kitlar það alltaf ef vel gengur,“ segir Þórhallur og tekur fram að hann fari þó bráð- um að draga sig í hlé eftir yfir fimm- tíu ára starf hjá Þjóðleikhússinu þar sem hann hefur lengstan starfsaldur allra. „Ég mun halda áfram að fylgjast með og sjá sem flestar sýningar.“ 37 ný íslensk verk Aðspurður segist Þórhallur snemma hafa smitast af leikhús- bakteríunni, en hann var ekki nema fjögurra ára þegar hann sá fyrstu barnasýningu Þjóðleikhússins, Snæ- drottninguna, sem sett var upp 1950. „Í framhaldinu fylgdu svo Stóri Kláus og Litli Kláus og Skugga- Sveinn,“ segir Þórhallur en fyrsta hlutverkið sem hann lék sjálfur var Hjálmar tuddi í Maður og kona sem Klemenz Jónsson leikstýrði og sett var upp í samkomusalnum í Haga- skóla. „Ég var mjög lítill og grann- ur, en Hjálmar hafði fram að því ávallt verið leikinn af feitum körlum, þannig að þarna var brotið ákveðið blað í leiklistarsögunni,“ segir Þór- hallur kíminn. Hann starfaði með Herranótt 1965-66 og var formaður seinna árið. „Fyrra árið sýndum við í Iðnó og seinna árið í Þjóðleikhús- inu,“ segir Þórhallur sem braut- skráðist úr Leiklistarskóla Þjóðleik- hússins 1970. „Þá hafði ég þegar leikið í fimm sýningum leikhússins, m.a. stórt hlutverk í Fiðlaranum á þakinu og titilhlutverkið í Malcolm litla,“ segir Þórhallur sem starfað hefur hjá Þjóðleikhúsinu síðan en fengið leyfi til að sinna öðrum verk- efnum meðfram. „Ég hef leikstýrt bæði í Iðnó og Borgarleikhúsinu, hjá Alþýðuleikhúsinu, Nemendaleikhús- inu og Herranótt og mikið í bæði útvarpi og sjónvarpi ásamt því að leikstýra talsetningum um 20 kvik- mynda ásamt því sjálfur að leika í talsetningum,“ segir Þórhallur sem hjá Þjóðleikhúsinu hefur leikstýrt hátt í 50 sýningum. „Megnið af þess- um verkum, eða 37 talsins, voru ný íslensk verk sem er alltaf mikil og skemmtileg áskorun,“ segir Þórhall- ur, sem á ferlinum leikstýrði níu frumuppfærslum á leikritum eftir Ólaf Hauk Símonarson. „Þeirra á meðal voru vinsælar sýningar eins og Hafið, Bílaverkstæði Badda, Græna landið og Gauragangur,“ segir Þórhallur en af erlendum verk- um sem hann leikstýrði má nefna Kæru Jelenu. „Auðvitað var mismikill áhugi leikhúsgesta á þeim sýningum sem ég leikstýrði eins og gengur og ger- ist, en sjálfu var ég alltaf sáttur við útkomuna,“ segir Þórhallur og tekur fram að hann sé afar þakklátur fyrir hversu farsæll starfsferillinn hafi verið og hann átt gott samstarf við fjölda fólks. Tekur hann fram að sér þyki líka vænt um þann tíma sem hann hafi sinnt félagsmálum sam- hliða skapandi störfum sínum, en Þórhallur var um tíma formaður Þjóðleikhúsráðs, kom að stofnun Starfsmannafélags Þjóðleikhússins og sat í stjórn Leikarafélags Þjóð- leikhússins. Góð samvinna lykilatriði Í ljósi þess hversu mörgum far- sælum sýningum Þórhallur hefur leikstýrt liggur beint við að spyrja hvað góður leikstjóri þurfi að hafa til brunns að bera. „Góð samvinna er lykilatriði, enda býr enginn einn leikstjóri til sýningu. Kúnst leik- stjórans er að ná því besta út úr öllu samstarfsfólki sínu, hvort heldur það eru leikarar eða útlitshönnuðir,“ segir Þórhallur. Ekki er hægt að sleppa Þórhalli án þess að forvitnast um sýn hans á barnasýningar, en hann hefur á löngum ferli leikstýrt ófáum barnasýningum, þeirra á meðal eru Leitin að jólunum og Gott kvöld sem báðar hlutu Grímuna sem Barnasýning ársins. Frá árinu 2006 hefur Þórhallur haft umsjón með barnasýningum Þjóðleikhússins auk þess að taka á móti hópum barna sem koma til að kynna sér undur og ævintýri leikhússins. „Á síðustu 12 árum höfum við boðið öllum fimm ára börnum á höfuðborgarsvæðinu í leikhús og síðustu misserin höfum við útfært sýningarnar þannig að við getum farið í leikferðir um allt land- ið og boðið öllum fimm ára börnum á landinu í leikhús,“ segir Þórhallur og bendir á að lengi búi að fyrstu gerð. „Kitlar alltaf ef vel gengur“ - Þórhallur Sigurðsson heiðursverðlaunahafi Sviðslistasambands Íslands 2021 - „Markmið mitt hefur alltaf verið að sinna vinnunni minni vel óháð hvers kyns viðurkenningum,“ segir Þórhallur Morgunblaðið/Eggert Kúnstin „Kúnst leikstjórans er að ná því besta út úr öllu samstarfsfólki sínu, hvort heldur það eru leikarar eða útlitshönnuðir,“ segir Þórhallur Sigurðsson sem leikstýrt hefur hátt í fimmtíu sýningum í Þjóðleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.