Morgunblaðið - 11.06.2021, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
THE WASHINGTON POST
ROGEREBERT.COM
TOTAL FILM
USA TODAY
THE SEATTLE TIMES
THE GUARDIAN
GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA
SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA
HROLLVEKJANDI SPENNUMYND
THE WRAP FILM
SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI
97%
SAN FRANCISCO
CHRONICLE
INDIE WIRE
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Vertu úlfur eftir Héðin Unnsteinsson
og Unni Ösp Stefánsdóttur í leikstjórn
Unnar í Þjóðleikhúsinu hlaut flest
verðlaun þegar Íslensku sviðslista-
verðlaunin, Gríman, voru afhent í 19.
sinn við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói í
gærkvöldi. Sýningin var tilefnd til sjö
verðlauna og hlaut þau öll. Hún var
meðal annars verðlaunuð sem sýning
ársins, fyrir leikstjórn og leikara í aðal-
hlutverki. Þrjár sýningar hlutu næst-
flest verðlaun eða tvenn hver. Þetta
voru Ekkert er sorglegra en mann-
eskjan, sem var m.a. verðlaunuð fyrir
tónlist ársins, Kafbátur, sem var m.a.
verðlaunuð sem barnasýning ársins og
Ævi, sem var m.a. verðlaunuð fyrir
danshöfund ársins. Alls skiptu tíu sýn-
ingar með sér verðlaunum kvöldsins
sem veitt voru í 20 flokkum. Heiðurs-
verðlaun Sviðslistasambands Íslands
hlutu Hallveig Thorlacius og Þórhallur
Sigurðsson fyrir ómetanleg störf í
þágu íslenskrar barnamenningar og
leikhúslífs. Frá því Gríman var fyrst
afhent 2003 hefur það aðeins tvisvar
áður gerst að heiðursverðlaunahaf-
arnir væru tveir, þ.e. 2007 og 2012.
Tímamótasamningur
Í ávarpi sínu sagði Birna Hafstein,
forseti Sviðslistasambands Íslands,
aðdáunarvert væri að fylgjast með
íslensku sviðslistafólki takast á við nýj-
ar og áður óþektktar áskoranir heims-
faraldurs í störfum sínum á nýliðnu
leikári. „Með góðri samvinnu og af
þrautseigju og æðruleysi nýtti sviðs-
listafólk hvert tækifæri til að miðla list
sinni með einum eða öðrum hætti til
áhorfenda. Þessi mikla sköpunargleði
og -kraftur gerði landsmönnum
ástandið síðastliðið ár vafalaust bæri-
legra og fyrir það bera að þakka.“
Birna benti á annað sem vel hefði
verið gert á árinu, því eftir margra ára
baráttu hefur stofnun Sviðslista-
miðstöðvar Íslands loks verið staðfest
og fyrsta stjórn hennar skipuð í sam-
starfi Sviðslistasambands Íslands,
mennta- og menningarmálaráðuneytis
og fleiri hagaðila í greininni. „Þetta er
mikið ánægjuefni og stór áfangi fyrir
sviðslistir á Íslandi. Verkefni Sviðs-
listamiðstöðvar Íslands verða m.a. að
styrkja innviði og umgjörð sviðslista
hér heima við en ekki síður er miðstöð-
inni ætlað að vera gátt út í heim og
með það markmið að flytja út sviðs-
listir frá Íslandi. Með þessu verður
staða sviðslistafólks frá Íslandi styrkt
á alþjóðavettvangi enda góð ástæða til.
Sviðslistaumhverfið á Íslandi er bæði
framsækið og skapandi og við getum
státað af ótrúlega flottu og hæfileika-
ríku listafólki sem á fullt erindi út um
allan heim.“
Loks flutti Birna sjóðheitar fréttir
úr sviðslistageiranum, því í gærdag
skrifaði Félag íslenskra leikara og
sviðslistafólks undir kjarasamning við
ríkið vegna danshöfunda hjá Íslenska
dansflokknum. „Þetta er tímamóta-
samningur en þetta er í fyrsta skipti í
sögu sviðslista á Íslandi sem danshöf-
undar eiga sinn eigin kjarasamning og
standa nú loks jafnfætis öðrum list-
rænum stjórnendum í sviðslistum á
Íslandi.“
Vertu úlfur sýning ársins
- Sýningin Vertu úlfur hlaut öll þau verðlaun sem hún hafði verið tilnefnd til
- „Sviðslistaumhverfið á Íslandi er bæði framsækið og skapandi“ - Tvö heiðruð
Morgunblaðið/Eggert
Þríeyki Héðinn Unnsteinsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors
sköpuðu saman Vertu úlfur sem sópaði til sín verðlaunum í gærkvöldi.
Tónskáld Friðrik Margrétar-
Guðmundsson samdi tónlist ársins.
Leikona í aðalhlutverki Edda
Björg Eyjólfsdóttir djúpt snortin.
Leikkona í aukahlutverki Birna
Pétursdóttir fagnaði ákaft.
Sýning ársins
Vertu úlfur
Leikrit ársins
Vertu úlfur eftir Unni Ösp
Stefánsdóttur og Héðin Unn-
steinsson
Leikstjóri ársins
Unnur Ösp Stefánsdóttir –
Vertu úlfur
Leikari í aðalhlutverki
Björn Thors – Vertu úlfur
Leikkona í aðalhlutverki
Edda Björg Eyjólfsdóttir –
Haukur og Lilja – Opnun
Leikari í aukahlutverki
Kjartan Darri Kristjánsson –
Kafbátur
Leikkona í aukahlutverki
Birna Pétursdóttir –
Benedikt búálfur
Leikmynd ársins
Elín Hansdóttir – Vertu úlfur
Búningar ársins
María Th. Ólafsdóttir –
Kardemommubærinn
Lýsing ársins
Björn Bergsteinn Guðmundsson
og Halldór Örn Óskarsson –
Vertu úlfur
Tónlist ársins
Friðrik Margrétar-Guðmunds-
son – Ekkert er sorglegra en
manneskjan
Hljóðmynd ársins
Elvar Geir Sævarsson og Valgeir
Sigurðsson – Vertu úlfur
Söngvari ársins
María Sól Ingólfsdóttir – Ekkert
er sorglegra en manneskjan
Dans – og sviðshreyfingar
ársins
Allra veðra von
Dansari ársins
Inga Maren Rúnarsdóttir – Ævi
Danshöfundur ársins
Inga Maren Rúnarsdóttir – Ævi
Sproti ársins
Leikhópurinn PólíS
Barnasýning ársins
Kafbátur
Útvarpsverk ársins
Með tík á heiði
Heiðursverðlaun Sviðslista-
sambands Íslands 2021
Hallveig Thorlacius
Þórhallur Sigurðsson
10 sýningar
verðlaunaðar
HANDHAFAR GRÍMUNNAR