Morgunblaðið - 11.06.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 11.06.2021, Síða 32
Fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Moses Hightower, Búum til börn, kom út í júlí 2010 og hlaut mikið lof gagnrýnenda sem og hlustenda. Í tilefni af ellefu ára afmæli skífunnar blæs hljómsveitin til tónleika og leik- ur og syngur í kvöld í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Á morgun, 12. júní, kemur hún fram á Græna hattinum á Akureyri og 20. júní í Midgard Base Camp á Hvolsvelli. Verða tónleikarnir haldnir með gestaflytjendum sem léku inn á plötuna á sínum tíma. Óskar Guðjónsson leikur á saxófón, Samúel Jón Samúelsson á básúnu, Kjartan Hákonarson á trompet og flugelhorn og bakraddir syngja Bryndís Jakobsdóttir og Rakel Sigurðardóttir. Frumburðurinn orðinn 11 ára FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 162. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Fylkir vann sinn fyrsta leik í sumar í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, þegar liðið fékk Tindastól í heimsókn í frestuðum leik úr annarri umferð deildarinnar á Würth-völlinn í Árbænum í gær. Árbæing- ar hleyptu miklu lífi í deildina með sigri gærdagsins en aðeins munar fjórum stigum á liðinu í níunda sæti deildarinnar og liðinu í fjórða sætinu. Liðin þrjú sem skipa efstu þrjú sæti deildarinnar; Selfoss, Valur og Breiðablik, hafa öll tapað leik í deildinni í sumar eftir sex umferðir en það gerðist síðast árið 2014. »26 Úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu hefur sjaldan verið jafnari ÍÞRÓTTIR MENNING Selfossi hafi allir setið þétt upp við konur sínar, jafnvel haldið utan um þær, og hann hafi ekki kunnað við annað en að halda í hönd þeldökku konunnar enda allra augu á þeim. „Ég var eins og aumingi,“ rifjar hann upp. Þegar komið hafi verið að henni hafi hann verið spurður hvort hann ætlaði ekki líka að koma inn en hann hafi svarað því neitandi, hann myndi bara bíða á biðstofunni. „Stingandi augngotur viðstaddra ætluðu mig lifandi að drepa enda var greinilegt að fólki þótti ég lélegur pappír að vilja ekki fara inn í skoðun með konunni.“ Um kvöldið hafi hann sagt Aldísi að hann hafi farið í mæðraskoðun og ætti ekki barnið. „„Takk fyrir það,“ svaraði hún allt annað en blíðlega en brúnin léttist þegar ég sagði henni söguna.“ Lárus segir að hann skili góðu búi. Körfuboltadeildin sé í miklum blóma eins og reyndar allt íþróttalíf í Hveragerði, aðstaðan sé góð og framtíðin björt. „Ég hef alltaf lagt áherslu á að eyða ekki um efni fram og við höfum verið réttum megin við núllið í öll þessi 29 ár, skuldum ekk- ert og erum með hreint borð sem fyrr. Þetta er barnið mitt og ég hef hugsað vel um það.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Lið Hamars í Hveragerði mætir í kvöld Vestra á Ísafirði í fjórðu við- ureign liðanna um sæti í úrvalsdeild karla í körfubolta, Domino’s- deildinni, á næsta tímabili. Staðan er 2:1 fyrir Ísfirðinga og nægir þeim því sigur á heimavelli, en komi til fimmta leiks verður hann í Hvera- gerði á sunnudag. „Ég ætla að skila af mér eftir að rimmunni lýkur, þá höldum við framhaldsaðalfund og Kristinn Ólafsson tekur við af mér sem formaður,“ segir matreiðslu- meistarinn Lárus Ingi Friðfinnsson. Hann var hvatamaður að stofnun körfuboltadeildar Hamars 1992 og hefur stýrt henni síðan, í 29 ár. Geri aðrir sjálfboðaliðar betur! Hópur ungra manna hefur áhuga á að taka við stjórn körfuboltadeild- ar Hamars. Lárus segir að hann hafi boðist til að vera þeim innan handar og sennilegt sé að hann haldi áfram að keyra liðsrútuna í útileiki. Lárus ólst upp í Varmahlíð í Skagafirði og kynntist íþróttinni í grunnskólanum í Varmahlíð. Eftir að hjónin Lárus og Aldís Hafsteins- dóttir, bæjarstjóri Hveragerðis- bæjar og formaður Sambands Ís- lenskra sveitarfélaga, fluttu í Hveragerði var eitt af fyrstu verkum hans að stofna deildina. „Ég hringdi í vin minn Gísla Pál Pálsson í Mörk- inni og fleiri góða drengi, deildin varð að veruleika og ég hef sinnt henni eins og barni mínu en nú er kominn tími til að það flytji að heim- an. Öll hin fjögur börnin eru flutt.“ Ekkert án eiginkonunnar Ekki er hrist fram úr erminni að reka íþróttadeild og Lárus segist ekki hafa getað gert það án mikils og góðs stuðnings og skilnings eigin- konunnar. Í því sambandi rifjar hann upp, þegar hann fékk eitt sinn erlendan leikmann frá Snæfelli í Stykkishólmi. Honum hafi þótt upp- sett verð of hátt og boðið gamla krapavél og ískrapa sem kaupverð. Það hafi verið samþykkt og þegar hann hafi farið til að ná í leikmann- inn hafi komið í ljós að hann var með kasólétta kærustu. Hún hafi þurft að fara í mæðraskoðun eftir helgina, en leikmaðurinn hafi ekki viljað fara með og því hafi hann farið einn með hana. Á biðstofu heilsugæslunnar á Ætíð með hreint borð - Lárus stofnaði körfuboltadeildina og formaður í 29 ár Ljósmynd/Guðmundur Kr. Erlingsson Íþróttafrömuður Lárus Ingi Friðfinnsson stofnaði körfuknattleiksdeild Hamars í Hveragerði 1992 og hefur verið formaður alla tíð, í 29 ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.