Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 www.kofaroghus.is - sími 553 1545 369.750 kr . Tilboðsverð 697.500 kr . Tilboðsverð 449.400 kr . Tilboðsverð 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar Afar einfalt er að reisa húsin okkar Uppsetning te kur aðeins ein n dag BREKKA 34 - 9 fm STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm 25% afsláttur 25% afsláttur 30% afsláttur TILBOÐ Á GARÐHÚSUM! TIL Á LAGER VANTAR ÞIGPLÁSS? Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Mikil umskipti hafa orðið á veðrinu í Reykjavík fyrstu 10 dagana í júní, ef borið er saman við sömu daga í maí síðastliðnum. Fyrstu 10 dagana í maí mældust 152,9 sólskinsstundir í Reykjavík. Svo margar sólskinsstundir hafa aldrei mælst þessa sömu tíu daga síðan mælingar hófust árið 1911. Sólskinsstundir hafa aðeins mælst 23 það sem af er júní og er það verulega undir meðallagi. Sól- skinsstundir voru ámóta margar þessa daga 2018 og enn færri 2013, samkvæmt upplýsingum sem blaðið fékk hjá Trausta Jónssyni veður- fræðingi. Sömu sögu er að segja af úrkom- unni. Í Reykjavík mældist úrkoman aðeins 0,2 millimetrar fyrstu 10 daga maí, eitt prósent meðal- úrkomu. Fyrstu 10 daga júní hefur úrkoman mælst 16 millimetrar og er það um 20% umfram meðallag. Meðalhiti fyrstu tíu dagana er 9 stig í Reykjavík sem er -0,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. sisi@mbl.is Alger umskipti hafa orðið á veðrinu í höfuðborginni frá því í maímánuði Sólin hvarf og rigning- in tók við Morgunblaðið/Árni Sæberg Slegið í rigningu Gróður var lengi að taka við sér framan af sumri vegna þurrka. En þegar byrjaði að rigna fyrir alvöru varð allt grænt á örskotsstundu. Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Krabbameinsfélagið segir farið með rangt mál í skýrslu um breytingar á skipulagi og fram- kvæmd leghálskrabbameinsskimunar, sem Har- aldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir, vann fyrir heilbrigðisráðherra. Félagið hefur sent frá sér yfirlýsingu sem felur í sér athugasemdir og leiðréttingu við skýrsluna. KÍ bendir einnig á að skýrslan sýni glöggt hve ábótavant und- irbúningi flutnings leghálsskimana frá Leitar- stöð KÍ var. Í skýrslunni var gefið í skyn að hlutaúttekt Embættis landlæknis á gæðamálum Leitar- stöðvar hefði haft áhrif á samskipti Landspítala og LKÍ. KÍ fullyrðir hinsvegar að enginn skuggi hafi verið á samskiptum spítalans og fé- lagsins vegna úttektarinnar. Texti úr tölvupóstskeyti framkvæmdastjóra KÍ var birtur í skýrslunni þar sem hann bauð þjónustu félagsins til að halda skimunum áfram lengur en ráðuneytið hafði kveðið á um. KÍ bendir á að í þessum sama pósti hafi fram- kvæmdastjórinn óskað eftir frekari upplýsing- um frá ráðuneytinu um hver myndi sinna rann- sóknum og hvernig upplýsingagjöf til kvenna yrði háttað. Ekki barst svar við póstinum og hélt LKÍ sig því við áður framkomna ákvörðun og sinnti skimun og tók á móti sýnum til 30. nóvember. Þar sem KÍ fékk ekki upplýsingar um hvar rannsóknir færu fram eftir áramót taldi það sig ekki hafa ástæðu til að ætla annað en að gengið hefði verið frá málum um rannsóknir legháls- sýna til framtíðar. Í skýrslunni kemur einnig fram að rannsókn- arstofa LKÍ hafi hætt störfum í byrjun desem- ber þótt starfssamningur hafi legið fyrir til árs- loka 2020 og nefnt að það hafi leitt til þess að leghálssýni sem tekin voru undir lok ársins voru ekki rannsökuð heldur varðveitt til að unnt væri að rannsaka þau síðar. Krabbameins- félagið segir það alrangt. Sýni hafi verið rann- sökuð á rannsóknarstofu LKÍ til 22. desember og síðustu dagar mánaðarins hafi verið nýttir í frágang vegna lokunar LKÍ. Varðandi sérhæfða þekkingu kemur fram í skýrslunni að Landspítali hafi talið sig þurfa að ráða starfsfólk sem áður starfaði hjá LKÍ til að geta sinnt frumurannsóknum. Krabbameins- félagið bendir á að ástæða þess sé sérhæfing starfsfólksins. Fjöldi stöðugilda sé ekki afger- andi þáttur þegar rætt er um áhrif breytinga á sérhæfð störf heldur sú staðreynd að rannsókn- irnar krefjist sérhæfðrar þekkingar sem hverf- ur úr landinu ef rannsóknirnar eru fluttar úr landi. Gera athugasemdir við skýrslu Skimun Krabbameinsfélagið er ekki sátt við skýrsluna um skimunarstarfsemi félagsins. - Krabbameinsfélagið segir ekki rétt farið með mál í skýrslu um skimanir - Ráðuneytið svaraði engu um tilhögun skimana - Undirbúningi ábótavant Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það hefur verið ansi snörp fjölgun umsókna síðustu ár, sérstaklega síð- ustu þrjú ár,“ segir Halldór Þormar Halldórsson, ritari bótanefndar vegna þolenda afbrota. Ríkissjóður greiddi alls 167.714.879 krónur í bætur til þol- enda afbrota á síðasta ári vegna mála sem komu til afgreiðslu bóta- nefndar ríkisins. Það er litlu minna en árið áður en þá greiddi ríkið um 178 milljónir í bætur vegna þessa. Fjöldi umsókna um bætur hefur hins vegar aldrei verið meiri en í fyrra. „Á liðnum árum hefur fjöldi um- sókna aukist verulega og á árinu 2020 bárust 508 umsóknir, en það var í fyrsta skipti sem fjöldi þeirra fór yfir 500. Nefna má að árið 2005 bárust um 200 umsóknir til nefndarinnar. Frá árinu 2016 hefur verið næsta stöðug fjölgun þeirra mála sem berast nefndinni,“ segir Halldór í svari við fyrirspurn blaðsins. Ríkissjóður greiðir bætur til þol- enda afbrota og hefur gert frá árinu 1996. Um er að ræða úrræði til að bæta réttarstöðu þeirra sem verða þolendur ofbeldisbrota, enda eru litl- ar líkur taldar á að þeir sem hafa staðið að brotunum muni greiða bæt- ur vegna þess skaða sem með þeim var valdið. Bæturnar eru greiddar fyrir líkamstjón og miska þolenda of- beldisbrota og geta hæstar verið átta milljónir í hverju tilviki samkvæmt lögum. Bæði eru greiddar bætur byggðar á dómsniðurstöðu og vegna brota þar sem engum verður refsað vegna þess að þau eru ekki upplýst eða að sakborningur er ósakhæfur eða hann látinn. Um það bil 1/3 hluti þeirra umsókna sem berast bóta- nefnd byggist á óupplýstum málum. Um 168 milljónir króna í bætur til þolenda afbrota - Metár í fjölda umsókna um bætur frá þolendum afbrota Halldór Þormar Halldórsson Náðst hefur samkomulag um að stefna að þinglokum í dag, þetta staðfestir Birgir Ármannsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðisflokks- ins. Fundað var fram eftir í gær- kvöldi og heldur þingfundur áfram í dag. Komi ekkert óvænt upp á má reikna með að þingi ljúki í dag. Miðað við þann málalista sem unnið hefur verið eftir er ljóst að mörg stjórnarfrumvörp munu ekki ná afgreiðslu. Sem dæmi má nefna frumvarp félagsmálaráðerra um málefni innflytjenda og málefni heil- brigðisráðherra um réttindi sjúk- linga þar sem fjallað er um marg- víslegar þvinganir í heilbrigðis- kerfinu. Hálendisþjóðgarðurinn verður ræddur að sögn Birgis en frum- varpið verður ekki afgreitt heldur verður því vísað til ríkisstjórnar- innar til frekari vinnu. Þrátt fyrir það verða tugir mála afgreiddir í dag. Starfslok þingsins verða í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.