Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 J óhanna Björg Jóhannsdóttir og Lenka Ptacnikova munu tefla einvígi um Íslands- meistaratitil kvenna eftir spennandi keppni kvennaflokks sem lauk um síðustu helgi. Þær tvær voru í algerum sérflokki meðal keppenda sem sést best á því að þegar loka- umferð mótsins rann upp tefldu þær innbyrðis og höfðu unnið allar skákir sínar. Lenka fékk snemma betri stöðu og með skemmtilegri leikfléttu vann hún mann. Að Jóhanna myndi stöðva klukkuna og gefast upp hefði ekki komið á óvart. En hún kaus að halda áfram baráttunni manni og peði undir. Eitthvað vafðist úrvinnsl- an fyrir Lenku og þegar fram í sótti gaf hún eitt tækifæri sem Jóhanna lét sér ekki úr greipum ganga: Íslandsmót kvenna 2021; 7. um- ferð: Lenka Ptacnikova – Jóhanna Björg Jóhannsdóttir Síðasti leikur svarts var . … 56. … Rc5xb3 … og lá beinast við að leika 57. Hxf7+ Kh8 (ekki 57. … Kh6 vegna 58. Rg4+ Kh5 59. Hh7+ Kg5 60. h4+ Kf5 61. Hf7 mát) 58. Kf4 með auðunninni stöðu. En Lenka vildi stytta sér leið og lék … 57. Rc2?? … sem Jóhanna svaraði óvænt með … 57. … Rd4+! 58. Rxa3 Rf5+ 59. Kf4 Rxe7. Uppskipti á peðum tryggði svo jafnteflið. Lokastaðan varð þessi: 1.-2. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Lenka Ptacnikova 5½ v. (af 6) 3. Lis- seth Mendez Acevedo 3 v. 4. Tinna Kristín Finnbogadóttir 2½ v. 5. Hrund Hauksdóttir 2 v. 6. Batel Goi- tom 1½ v. 7. Ulker Gasanova 1 v. Í einvíginu sem fer fram þann 24. júní nk. verða tefldar skákir með styttri tímamörkum. Vignir Vatnar sigraði á minn- ingarmótinu um Pál Árnason í Eyjum Minningarmótið um Pál Árnason múrara úr Vestmannaeyjum fékk strax góð viðbrögð og margir ferða- þyrstir skákmenn lögðu land undir fót til að geta teflt í Eyjum um sjó- mannadagshelgina. Páll var félagi í Taflfélagi Vestmannaeyja um ára- tuga skeið, tefldi fyrir félagið á Ís- landsmóti skákfélaga, tók þátt í meistaramótum í Vestmannaeyjum, þ.á m. hinu sögufræga skákþingi 1973, og ótal öðrum keppnum. Hann lék á píanó og var hress og skemmti- legur maður sem glímdi við park- insons-sjúkdóminn í meira en 20 ár. Við upphaf mótsins lék Örvar Guðni Arnason frá Ísfélaginu, helsta styrktaraðila mótsins, fyrsta leikinn fyrir son Páls, Guðmund Árna. Upphaflega stóð til að minning- armótið færi fram í húsnæði Tafl- félags Vestmannaeyja en þegar ljóst varð að fjöldi keppenda yrði meiri en húsnæðið þyldi var mótið fært yfir á 2. hæð Þekkingarseturs Vest- mannaeyja þar sem áður var vinnslusalur Fiskiðjunnar. Það voru félagar í TV sem skipulögðu móts- haldið og fyrir hönd mótsstjórnar hélt Arnar Sigurmundsson skemmti- lega ræðu þar sem hann kallaði fram stemningu þeirra daga þegar gengu um sali Fiskiðjunnar Stebbi Run., Ásta á sjöunni, Atli greifi og fleira gott fólk. Allt þetta mikla hús er enn í mótun. Þar sem ferðir Herjólfs lágu niðri seinni hluta laugardagsins var mótið stytt um tvær umferðir og umhugs- unartíminn settur á 10-5. En nýr al- þjóðlegur meistari, Vignir Vatnar Stefánsson, vann glæsilegan sigur, hlaut 6½ vinning af sjö mögulegum. Helgi Áss Grétarsson varð í 2. sæti með 6 vinninga og í 3. sæti komu greinarhöfundur, Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjart- ansson með 5½ vinning. Skákstjóri var Þórir Benediktsson. Keppendur á öllum aldri voru 50 talsins. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Óskar Páll Friðriksson Mótsstjórnin. Hallgrímur Steinsson formaður TV og Arnar Sigurmunds- son við lokaathöfn minningarmótsins um Pál Árnason. Jóhanna og Lenka tefla einvígi um Íslandsmeistara- titil kvenna Árni Steinar Jóhannsson fæddist á Dalvík 12. júní 1953, sonur hjónanna Valrósar Árna- dóttur verslunarkonu og Jó- hanns Ás- grímssonar Helgasonar sjómanns, sem drukknaði í mann- skaðaveðri. Árni Steinar var tæplega tíu ára gam- all þegar faðir hans dó og næstyngstur fjögurra systkina. Eftir gagnfræðapróf á Dalvík fór Árni Steinar sem skiptinemi til Bandaríkjanna, síðan í Garðyrkjuskóla ríkisins og þaðan í Landbúnaðarhá- skólann í Kaupmannahöfn þar sem hann útskrifaðist 1979. Árni Steinar flutti til Akureyr- ar eftir námið og varð garð- yrkjustjóri bæjarins og síðar umhverfisstjóri Fjarðabyggð- ar, en því starfi gegndi hann til hinsta dags. Árni Steinar var vel liðinn og hafði brennandi áhuga á um- hverfismálum og samfélags- málum. Hann var í framboði fyrir Þjóðarflokkinn 1987 og síðan Alþýðubandalagið og óháða 1995 og var kosinn al- þingismaður fyrir Vinstri- græna 1999 í Norðurlands- kjördæmi eystra. Hann var í stjórn Rarik 2008-2014 og stjórnarformaður þar frá 2009. Hann var hugmyndaríkur og byggði ásamt fleirum nýbýli á Höskuldarstöðum í Eyjafjarð- arsveit þar sem íbúðarhúsið var einnig gróðrarstöð. Akur- eyringar búa enn að hug- myndum hans um grænt bæj- arskipulag. Árni Steinar lést á dvalar- heimilinu Dalbæ á Dalvík 1. nóvember 2015, langt fyrir ald- ur fram. Merkir Íslendingar Árni Steinar Jóhannsson Árni Steinar Jóhannsson 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Glærir ruslapokar Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk 695 1.995 Strákústar á tannbursta verði Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali Fötur í miklu úrvali Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Laufhrífur frá999 Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Garðslöngur í miklu úrvali Hrífur Greinaklippur frá 595 Burstar framan á borvél 3 stk. Mikið úrval af garðstömpum Allt um sjávarútveg Einhvern tímann heyrði ég landsliðs- þjálfara kvenna í fót- bolta útskýra hvers vegna Margrét Lára Viðarsdóttir væri allt- af valin í liðið en í spurningunni fólst sú gagnrýni að hún væri ekkert sérstök í vörn- inni. Þjálfarinn brosti vingjarnlega og út- skýrði að markahæsta landsliðskonan þyrfti ekki að vera best í varnarleiknum. Það dygði liðinu að enginn skoraði fleiri mörk en hún. Hvert lið þarf að vera samansett af ólíkum einstaklingum með mis- munandi hæfileika. Þingflokkur sjálfstæðismanna er þar ekki und- anskilinn. Í honum þurfa að vera þeir sem eru góðir í vörn og aðrir sem eru frábærir í sókn. Í honum þurfa að vera einstaklingar sem eru hoknir af reynslu og aðrir sem bera með sér ferska strauma. Í honum þurfa að vera einstaklingar sem hafa reynslu af pólitik og aðr- ir sem skynja púlsinn í atvinnulíf- inu. Ég fagna því að Sigþrúður Ár- mann gefur kost á sér í þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Hún er kraft- mikil og bjartsýn. Hugmyndarík og já- kvæð. Hún er hörku- duglegur nagli sem gustar af. Vel menntuð og með umfangsmikla reynslu úr atvinnulíf- inu. En umfram allt er Sigþrúður góður liðs- maður. Stálheiðarleg og falleg sál sem gam- an er að vinna með. Fram undan er tímabil uppbyggingar í íslensku samfélagi þar sem mikilvægast er er draga úr at- vinnuleysi. Til að koma hjólum at- vinnulífsins aftur í gang er mik- ilvægt að spila sóknarleik. Sækja óhrædd fram. Sigþrúður Ármann er mikilvægur hlekkur í liðinu sem á að leiða þá sókn. Ég styð hana í þriðja sæti í prófkjörinu og hvet alla þá sem taka þátt til að gera það líka. Stillum upp sóknarliði Þór Sigfússon Þór Sigfússon » Sigþrúður Ármann er kraftmikil og bjartsýn. Hugmyndarík og jákvæð. Hún er hörkuduglegur nagli sem gustar af. Höfundur er stofnandi Sjávarklasans. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.