Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 12
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
S
ýningin Terra fyrir herra
verður opnuð á Iðnaðarsafn-
inu á Akureyri á þjóðhátíð-
ardaginn 17. júní. Terra fyrir
herra var slagorð fyrrum saumastofu
Gefjunnar, sem var ein af verk-
smiðjum Sambandsins á Akureyri.
Sýningin sem er inni í almennri sýn-
ingu safnsins er sett upp til að heiðra
minningu Jóns S. Arnþórssonar
frumkvöðuls og stofnanda Iðn-
aðarsafnsins. Síðar á þessu ári
verða 90 ár liðin frá fæðingu
Jóns. Hann lést árið 2011.
„Við ákváðum að
þema þessarar sýn-
ingar yrði tengt fram-
leiðsluvörum sauma-
stofunnar Gefjunar,
en fyrstu störf Jóns
fyrir Sambandið voru
einmitt þar,“ segir
Þorsteinn E. Arn-
órsson safnstjóri
Iðnaðarsafnsins. Á
sýningunni má sjá
karlmannafatnað,
jakkaföt, frakka og
fleira.
Jón gegndi síð-
ar ýmsum störfum
fyrir Sambandið, var
m.a. sölustjóri og
markaðsfulltrúi og
eins var hann fulltrúi for-
stjóra, deildarstjóra og verk-
smiðjustjóra. Hann var fram-
kvæmdastjóri iðnsýningar
samvinnumanna á
árunum 1957 til
1973 og sá um
verkefnið Hand-
verk heimilanna
sem síðar varð að
Hugmyndabank-
anum.
Útibú stofn-
að í Reykjavík
Á Gefjun var
framleitt fataefni og í þó
nokkuð stórum stíl þegar
umsvifin voru mest, en
bili. Okkur þótti upplagt að nota þetta
sem heiti sýningarinnar,“ segir Þor-
steinn.
Fékk fálkaorðuna
Jón var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu árið 2009
fyrir framlag til varðveislu íslenskrar
verkkunnáttu og safnamenningar.
Hann hóf markvisst að safna saman
munum sem tengdust verk-
smiðjurekstrinum árið 1993. Iðn-
aðarsafnið var stofnað fáum árum síð-
ar, á þjóðhátíðardaginn 17. júní árið
1998. Það var í fyrstu til húsa í fyrrum
fataverksmiðju Heklu á Gleráreyrum
en flutti síðar í Sjafnarhúsið við Aust-
ursíðu þar sem það hafði um 300 fer-
metra sýningar- og geymsluhúsnæði
til umráða. Jón og eiginkona hans, Gi-
sela Rabe-Stephan, báru lengi framan
af hita og þunga af rekstri safnsins og
ráku það á eigin vegum með styrkj-
um.
Núverandi húsnæði Iðnaðar-
safnsins er við Krókeyri 6 þar sem áð-
ur var áhaldahús umhverfisdeildar
Akureyrarbæjar. Þangað flutti safnið
árið 2004 og var um leið gert að sjálf-
eignarstofnun.
Terra fyrir herra í Iðnaðarsafninu
Sýningin Terra fyrir
herra verður opnuð á
Iðnaðarsafninu á Akur-
eyri á þjóðhátíðardaginn
17. júní og er þar vísað í
slagorð saumastofu Gefj-
unar sem framleiddi vin-
sælan herrafatnað á
sinni tíð.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
einnig teppi og allt band. Þorsteinn
segir að á saumastofunni hafi verið
saumuð herraföt, jakkaföt, frakkar og
stakar buxur.
„Þessi fatnaður naut mikilla vin-
sælda á sinni tíð, þeir voru ansi marg-
ir karlarnir sem klæddust þessum föt-
um“ segir hann, en sem dæmi um
vinsældir fatnaðarins má nefna að
útibú frá saumastofu Gefjunar á Ak-
ureyri var sett upp í Reykjavík.
Slagorðið Terra fyrir herra var
notað um tíma, „ekki mjög lengi, en
það má sjá þetta slagorð inni í flíkum
sem saumaðar voru á ákveðnu tíma-
Jakkar á allar kynslóðir Þorsteinn E. Arnórsson, safnstjóri Iðnaðarsafnsins, með jakka sem Elín Sigríður Axelsdóttir frá Ásláksstöðum í
Hörgársveit saumaði úr Gefjunarefni á son sinn, Þórð Ingimarsson, þegar hann var þriggja ára árið 1952. Sýningin Terra fyrir herra er
til heiðurs Jóni E. Arnþórssyni, sem hóf söfnun iðnminja á Akureyri árið 1993, en mynd af Jóni er á veggnum fyrir aftan Þorstein.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Hægindastóll
model 7227
Leður – Stærðir XS-XL
Verð frá 389.000,-
NJÓTTU
ÞESS AÐ SLAKA Á
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Um helgina lýkur Barnamenningar-
hátíð í Reykjavík með Ævintýrahöll,
menningardagskrá fyrir alla fjöl-
skylduna, á svæði Árbæjarsafns. Frítt
er inn fyrir fullorðna í fylgd með
börnum.
Fram kemur í tilkynningu, að á
dagskránni eru m.a. Leikhópurinn
Lotta, söngkonan Bríet, krakka-
karókí, sögustund, Æskusirkus,
Blaðrarinn, afródans, fuglasmiðja og
öll stemmingin sem Árbæjarsafn
býður upp á.
Í húsunum á svæðinu verður hand-
verk til sýnis og sölu og hægt að
gæða sér á heitum lummum. Er fólk
hvatt til að taka strætó, hjóla eða
ganga því bílastæði eru af skornum
skammti.
Hátíð í tæpa tvo mánuði
Barnamenningarhátíð var sett 20.
apríl með opnun myndlistarsýningar í
Listasafni Reykjavíkur.
Fram kemur á vef Reykjavíkur-
borgar, að vettvangur hátíðarinnar sé
borgin öll en fjölbreyttir viðburðir
hafa farið fram í grunnskólum, leik-
skólum, frístundamiðstöðvum og
listaskólum.
Árbæjarsafn
Lokadagar Barnamenningar-
hátíðar í Reykjavík um helgina
Morgunblaðið/Eggert
Barnamenning Lokadagar Barnamenningarhátíðar verða á Árbæjarsafni.