Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
borgarstjóra um að hús með sölum
fyrir dans, fimleika og aðra íþrótta-
starfsemi verði staðsett í hverfis-
miðjunni við Austurberg, sam-
kvæmt tillögum að nýju
hverfisskipulagi fyrir Efra-
Breiðholt.
Umhverfis- og skipulagssviði og
ÍTR var falið að vinna að þarfa-
greiningu fyrir dans- og fimleikahús
í Efra-Breiðholti í samráði við fim-
leikadeild ÍR, dansskóla með starf-
semi í hverfinu, félög dansara og
íbúaráð Breiðholts. Þá taki skrif-
stofa borgarstjóra og borgarritara
upp viðræður við Fjölbrautaskólann
í Breiðholti varðandi möguleika á að
skólinn verði með danstengt nám
sem nýti sér dans- og fimleikahúsið.
Ákjósanleg staðsetning fyrir nýja
húsið er talin vera á horni Austur-
bergs og Gerðubergs á lóðinni
Gerðubergi 1. Staðsetning Dans- og
fimleikahússins á þessari lóð, sem er
í eigu borgarinnar, þykir styrkja
menningar-, mennta- og íþrótta-
miðju hverfisins við borgargötuna
Austurberg.
Þar eru fyrir menningarmiðstöðin
Gerðuberg, frístundamiðstöðin Mið-
berg, tónlistarskóli, Fjölbrautaskól-
inn í Breiðholti og sundlaugin,
ásamt fleiri íþróttamannvirkjum,
sem og hverfistorgi, sem á að
styrkja enn frekar. Jafnframt er
áformað að Breiðholtsleggur borg-
arlínu fari þarna um í framtíðinni.
„Horft er til þess að allar teg-
undir af dansi fái að njóta sín í
Dans- og fimleikahúsinu, sem á að
þjóna bæði íbúum í Breiðholti og
borginni allri. Með áherslu á fjöl-
breytta dansiðkun getur slíkt hús
styrkt enn frekar hið fjölþjóðlega
samfélag í borginni og opnað alls
kyns ný samskipti og samskipta-
möguleika,“ segir í greinargerð
borgarstjóra, sem kynnt var á fundi
borgarráðs. sisi@mbl.is
Danshöll rísi í
Efra-Breiðholti
- Á að nýtast öllum íbúum borgarinnar
Morgunblaðið/Hari
Dansinn Hin nýja miðstöð á að nýt-
ast öllum iðkendum dans í borginni.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vogabyggð við Elliðaárvog hefur
verið að byggjast upp undanfarið
en fullbyggt mun hverfið telja allt
að 1.900 íbúðir. Á þessu svæði
stóðu áður gömul og úr sér gengin
atvinnuhús sem smám saman hafa
vikið fyrir nýjum íbúðablokkum.
Til dæmis þurftu átta byggingar,
sem stóðu á Gelgjutanga, að víkja
fyrir íbúðabyggð, svokallaðri Voga-
byggð 1. Gelgjutangi er smánes
sem skagar út í Elliðaárvog á móts
við Grafarvog.
Nú er komið að þeim tímapunkti
að huga þarf að uppbyggingu skóla-
mannvirkja og því hefur borgarráð
samþykkt að efna til opinnar hönn-
unar- og framkvæmdasamkeppni
um samþættan leik- og grunnskóla
með aðstöðu fyrir starfsemi frí-
stundaheimilis og félagsmiðstöðvar.
Gert er ráð fyrir áfangaskiptingu
byggingarinnar eftir því sem íbúum
í Vogabyggð fjölgar. Samkeppnin
mun ennfremur ná til nýrrar
göngu- og hjólabrúar í Vogabyggð.
Samkeppnin verður haldin í sam-
starfi við Arkitektafélag Íslands.
Gert er ráð fyrir að samkeppnin
verði tveggja þrepa. Skipuð verður
dómnefnd sem semur samkeppnis-
lýsingu, annast yfirferð tillagna og
skilar niðurstöðum sínum til
Reykjavíkurborgar. Áætlað er að
niðurstaða samkeppninnar geti leg-
ið fyrir í byrjun árs 2022.
Áður lítt þekkt örnefni
Örnefni sem fáum hafa verið
kunn koma nú til sögunnar. Þau
eru tengd sjónum og útgerð. Nýr
skóli verður á tanga í Elliðaárósum
sem kallaður er Fleyvangur (Voga-
byggð 5). Ný göngu- og hjólabrú
yfir Ketilbjarnarsíki mun tengja
börn og aðra íbúa Vogabyggðar við
nýja byggingu, útivistarsvæðið á
Fleyvangi og aðra borgarhluta. Á
Fleyvangi verður útbúið nýtt torg,
Vörputorg.
Brúin verður helsta samgöngu-
leiðin og jafnframt nýtt kennileiti í
borgarlandslaginu. Staðsetningin á
nýjum mannvirkjum er einstök í
borginni með sjávarströnd til
beggja hliða, nálægð við smábáta-
höfnina, Elliðaárnar og útivistar-
svæði Elliðaárósa og Elliðaárdals,
segir í greinargerð um samkeppn-
ina.
Í gildi er deiliskipulag, Voga-
byggð svæði 5, samþykkt í borgar-
ráði 10. janúar 2019. Hugsanlegar
breytingar á deiliskipulagi munu
taka mið af niðurstöðu samkeppn-
innar. Byggingarnar verða um-
hverfisvottaðar og í samræmi við
áherslur Græna plansins.
Gert er ráð fyrir því að ný sam-
þætt bygging fyrir leik- og grunn-
skóla með aðstöðu fyrir starfsemi
frístundaheimilis og félagsmið-
stöðvar verði byggð í þremur
áföngum. Heildarfjöldi nemenda á
leik- og grunnskólastigi er nú áætl-
aður allt að 600 nemendur. Áhersla
er lögð á sveigjanleika bygging-
arinnar þannig að möguleiki verði á
frekari stækkun skólans m.t.t. hug-
mynda um frekari uppbyggingu
íbúða á svæðinu. Áætluð heildar-
stærð byggingarinnar er um 7.200
fermetrar. Í byggingunni verður
íþróttasalur fyrir nemendur skól-
ans.
Nýlega eru hafnar viðræður við
íþróttafélög í nágrenni Vogabyggð-
ar um að hasla sér völl í hinu nýja
hverfi. Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur samþykkti
að Þrótti, Fjölni, Ármanni, Fylki og
Víkingi yrði gefið tækifæri til að
kynna hugmyndir sínar varðandi
íþróttastarf í nýju hverfunum
Vogabyggð og Ártúnshöfða. Meðal
annars verði litið til óska félaganna
um innviðauppbyggingu í hinum
nýju hverfum og samnýtingu með
þeim svæðum þar sem þau starfa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vogabyggðin Hinn nýi skóli mun rísa á Fleyvangi skammt frá Snarfarahöfninni, sem sést neðst á myndinni. Fyrir miðri mynd er Ketilbjarnarsíkið, en það verður brúað í tengslum við skólann.
Samkeppni um skóla á Fleyvangi
- Skóli fyrir hina nýju Vogabyggð undirbúinn - Einnig verður byggð brú yfir Ketilbjarnarsíki
Götur í Vogabyggð draga nafn
af bátum, svo sem Kugguvogur,
Arkarvogur, Bátavogur og svo
framvegis. Sama má segja um
Fleyvang. Vörputorg vísar til
veiðarfæris.
Ketilbjarnarsíki vísar til Ket-
ilbjarnar gamla Ketilssonar sem
var landnámsmaður sem kom til
Íslands frá Noregi. Í Landnáma-
bók segir að Ketilbjörn hafi
komið til landsins þegar land
var víða byggt með sjó og lent
skipi sínu, Elliða, í ósum þeirra
áa sem síðan heita Elliðaár og
allir þekkja.
Síkið er við
hann kennt
KETILBJÖRN GAMLI
Íbúðir sem uppfylla
skilyrði um
hlutdeildarlán
Berjateigur 33-39, 250 Garði
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Nýjar fullbúnar og vandaðar 3ja herbergja íbúðir í raðhúsi á einni
hæð, með sólpalli. Frábært útsýni yfir Snæfellsjökul o.fl.
Afhending í september 2021
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Berjateigur 33 82,9 m2 Seld
Berjateigur 35 81,9 m2 36.400.000.-
Berjateigur 37 81,9 m2 Seld
Berjateigur 39 82,9 m2 Seld