Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 44
44 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 2. deild kvenna Fjarð/Hött/Leiknir – Völsungur............. 7:0 KH – Fram................................................ 2:1 ÍR – Hamar............................................... 2:2 Staðan: FHL 5 5 0 0 24:6 15 KH 5 4 0 1 16:4 12 Völsungur 5 4 0 1 16:8 12 Fjölnir 4 3 0 1 25:6 9 Fram 4 3 0 1 10:6 9 Hamrarnir 4 2 0 2 14:8 6 Hamar 5 1 2 2 10:13 5 ÍR 4 1 1 2 8:11 4 Álftanes 3 1 0 2 6:7 3 Sindri 3 1 0 2 7:10 3 Einherji 4 0 1 3 2:10 1 SR 4 0 0 4 4:10 0 KM 4 0 0 4 0:43 0 2. deild karla Þróttur V. – Reynir S............................... 1:3 _ Þessi úrslit voru rangt skráð í blaðinu í gær. Reynir er í efsta sæti deildarinnar með 12 stig, KF er með 11, Njarðvík 10, KV 10, ÍR 10 og Þróttur V. 9 í næstu sætum þar á eftir. Vináttulandsleikir kvenna Ísland – Írland .......................................... 3:2 Bandaríkin – Portúgal ............................. 1:0 Kanada – Tékkland .................................. 0:0 Búlgaría – Bosnía ..................................... 0:1 Finnland – Pólland ................................... 2:2 Brasilía – Rússland .................................. 3:0 EM karla 2021 A-riðill: Tyrkland – Ítalía ...................................... 0:3 Staðan: Ítalía 1 1 0 0 3:0 3 Sviss 0 0 0 0 0:0 0 Wales 0 0 0 0 0:0 0 Tyrkland 1 0 0 1 0:3 0 Leikir um helgina: A: Wales – Sviss...................................... L13 B: Danmörk – Finnland ......................... L16 B: Belgía – Rússland .............................. L19 D: England – Króatía ............................. S13 C: Austurríki – N-Makedónía................ S16 C: Holland – Úkraína.............................. S19 Vináttulandsleikur karla Japan – Serbía .......................................... 1:0 >;(//24)3;( Úrslitakeppni karla Undanúrslit, seinni leikir: Haukar – Stjarnan ............................... 29:32 _ Haukar áfram, 57:55 samanlagt. Valur – ÍBV........................................... 27:29 _ Valur áfram, 55:54 samanlagt. E(;R&:=/D Umspil karla Fjórði úrslitaleikur: Vestri – Hamar ................................... 100:82 _ Vestri sigraði 3:1 og leikur í úrvalsdeild- inni 2021-2022. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit: Milwaukee – Brooklyn ......................... 86:83 _ Staðan er 2:1 fyrir Brooklyn. Vesturdeild, undanúrslit: Utah – LA Clippers.......................... 117:111 _ Staðan er 2:0 fyrir Utah. >73G,&:=/D FRJÁLSÍÞRÓTTIR Meistaramót Íslands er haldið á Þórsvell- inum á Akureyri um helgina og flest besta frjálsíþróttafólk landsins mætir þar til leiks. Keppni hefst kl. 11 í dag og síðasta grein er á dagskrá kl. 16.10. Á morgun er keppt frá kl. 10 og síðasta grein hefst kl. 14.30. KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, oddaleikur: IG-höllin: Þór Þ. – Stjarnan.............. L20.15 KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Kópavogsvöllur: Breiðablik – Fylkir .... L14 Víkingsvöllur: Víkingur R. – FH........... L17 Samsung-völlur: Stjarnan – Valur........ L17 1. deild karla, Lengjudeildin: Olísvöllur: Vestri – Afturelding............. L13 2. deild karla: Akraneshöll: Kári – Fjarðabyggð......... L14 Vodafonev.: Völsungur – Leiknir F ...... L14 3. deild karla: Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍH.............. L14 Nesfiskvöllur: Víðir – Höttur/Huginn .. L14 Sindravellir: Sindri – Ægir.................... L14 Týsvöllur: KFS – Augnablik .................. S14 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Víkingsvöllur: Víkingur R. – KR ........... S13 2. deild kvenna: KR-völlur: KM – Sindri ......................... L13 Vopnafjörður: Einherji – Hamrarnir ... L14 OnePlus-völlur: Álftanes – Fjölnir ....... L14 UM HELGINA! HANDBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Einar Þorsteinn Ólafsson tryggði Valsmönnum sæti í úrslitaeinvíginu gegn Haukum um Íslandsmeist- aratitil karla í handknattleik í dramatískum leik Vals og ÍBV á Hlíðarenda í gærkvöld. Valsmenn unnu fyrri leikinn í Eyjum, 28:25, en þeir voru undir, 27:29, og Eyjamenn með boltann í lokasókninni. Mark hefði komið ÍBV í úrslitaeinvígið en Einar Þor- steinn gerði sér lítið fyrir og komst inn í sendingu Eyjamanna og eyði- lagði fyrir þeim sóknina og mögu- leikann á að senda Valsmenn í sum- arfríið. Einar á ekki langt að sækja handboltahæfileikana en hann er sonur Ólafs Stefánssonar, besta handboltamanns Íslandssögunnar. Þar með eru það Valur og Hauk- ar sem leika til úrslita og fyrri úr- slitaleikurinn fer fram á Hlíðarenda á þriðjudaginn kemur en sá seinni, þar sem úrslitin ráðast, fer fram á Ásvöllum næsta föstudagskvöld. Eyjamenn virtust vera með pálmann í höndunum þegar þeir náðu boltanum á lokamínútunni. Endurtekið efni frá FH-hasarnum í átta liða úrslitunum virtist í upp- siglingu. En augnablikshik varð þeim að falli, Einar nýtti sér það, náði af þeim boltanum og skaut yfir allan völlinn – í stöngina og út. Það skipti ekki máli, Valsmenn stigu stríðsdans en Eyjamenn voru úr leik. _ Finnur Ingi Stefánsson skoraði 6 mörk fyrir Val, Róbert Aron Hos- tert 5 og Anton Rúnarsson 4. _ Hákon Daði Styrmisson skor- aði 10 mörk fyrir ÍBV, Kári Krist- ján Kristjánsson 6 og Theodór Sigurbjörnsson 4. Stjarnan vann upp forskotið Haukar lentu í miklu basli með Stjörnuna á Ásvöllum þrátt fyrir að mæta til leiks með fimm marka for- skot eftir sigur, 28:23, í fyrri leikn- um í Garðabæ. Stjörnumenn unnu forskotið upp fyrir hlé þegar þeir skoruðu sjö mörk í röð og komust í 15:10. Enn munaði fimm mörkum laust fyrir miðjan síðari hálfleik, 22:17, en Haukar náðu þá að jafna metin í 24:24. Stjarnan komst aftur þremur mörkum yfir en Haukar héldu sín- um hlut naumlega. _ Björgvin Páll Gústavsson varði 17 skot í marki Hauka. Brynjólfur Snær Brynjólfsson skoraði 6 mörk og þeir Darri Aronsson og Stefán Rafn Sigurmannsson 4 hvor. _ Tandri Már Konráðsson skor- aði 10 mörk fyrir Stjörnuna, Starri Friðriksson 6 og þeir Björgvin Þór Hólmgeirsson og Leó Snær Pét- ursson 4 hvor. Einar kom Val í lokaúrslitin - Stal boltanum á örlagastundu Morgunblaðið/Eggert Hetjan Einar Þorsteinn Ólafsson horfir á eftir Hákoni Daða Styrmissyni sem skoraði tíu mörk í leiknum á Hlíðarenda í gærkvöld. Tvö efstu liðin í úrvalsdeild karla í fótbolta, Valur og Víkingur, fá í dag tækifæri til að breikka enn frekar bilið á milli sín og annarra liða í deildinni. Þrír leikir í áttundu umferð fara fram í dag en hinir þrír á mánudag og miðvikudag. Topplið Vals, sem hefur ekki tapað leik, heimsækir Stjörnuna sem situr á botninum ásamt Keflavík og hefur ekki unnið leik og Víkingar taka á móti FH-ingum. Þriðja viðureignin er síðan á milli Breiðabliks og Fylk- is sem eru bæði um miðja deild sem stendur. Auka toppliðin forskot sitt? Morgunblaðið/Eggert Í dag Valsmenn fara í Garðabæ og Víkingar fá FH í heimsókn. Flest besta frjálsíþróttafólk lands- ins er mætt til Akureyrar þar sem Meistaramót Íslands verður haldið í dag og á morgun. Þar á meðal eru kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason, spretthlauparinn Guð- björg Jóna Bjarnadóttir, kúluvarp- arinn Erna Sóley Gunnarsdóttir, sleggjukastararnir Hilmar Örn Jónsson og Vigdís Jónsdóttir og millivegalengdahlauparinn Baldvin Þór Magnússon sem hefur sett þrjú Íslandsmet í ár og keppir á mótinu í fyrsta skipti. Mótið hefst á Þórsvell- inum klukkan 11. Frjálsíþróttahátíð á Akureyri Ljósmynd/University of Memphis Akureyri Vigdís Jónsdóttir keppir í sleggjukasti á Þórsvellinum í dag. GOLF Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Hin átján ára gamla Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir er einum leik frá því að komast inn á fjögur af stærstu golfmótum heims í kvennaflokki eftir ótrúlega frammistöðu á Opna breska áhugamannamótinu í Kilmarnock í Skotlandi. Jóhanna hafnaði í 53. sæti í högg- leik mótsins en hefur síðan farið á kostum í útsláttarkeppninni þar sem 64 bestu eftir tvo hringi tóku þátt og leika holukeppni. Hún fór í gegnum fyrstu þrjár umferðirnar á þriðjudag og miðvikudag og náði síðan há- punktinum í gær. Hún sigraði þá Kate Lanigan frá Írlandi í átta manna úrslitum og lagði síðan Shan- non McWilliam frá Skotlandi að velli í æsispennandi undanúrslitaleik í gær þar sem leika þurfti bráðabana því þær voru jafnar eftir 18 holur. Það sem meira var, McWilliam náði þriggja holu forskoti á seinni hringnum en Jóhönnu tókst að vinna það upp á síðustu fimm holunum og vinna síðan á fyrstu holu í bráðabana. Louise Duncan frá Skotlandi er mótherjinn í úrslitaleiknum og sig- urvegarinn á mótinu fær keppnisrétt á fjórum risamótum hjá atvinnukylf- ingum, AIG-mótinu, Opna banda- ríska meistaramótinu, Evian- meistaramótinu og Augusta Nation- al-meistaramótinu. Stúlkurnar eru örþreyttar „Við erum varla farin að átta okk- ur á þessu því þetta hefur verið lyg- inni líkast og frekar óraunverulegt allt saman,“ sagði Lúðvík Berg- vinsson faðir Jóhönnu við Morg- unblaðið í gær en hann er kylfu- sveinn hennar á mótinu í Kilmarnock. „Þegar komið er fram í svona langt mót reynir mikið á bæði and- legan og líkamlegan styrk og það hefur satt best að segja komið mér á óvart hve öflug hún hefur reynst á því sviði. Hún hefur haldið sínu striki og tekið öllu með stóískri ró og ein- beitt sér að því að taka eitt högg í einu og eitt skref í einu. Stúlkurnar eru meira og minna örþreyttar eftir gríðarlega erfitt mót, og svo eru fram undan tveir hringir á morgun því það verða leiknar 36 holur í úr- slitaleiknum,“ sagði Lúðvík en keppni hefst klukkan 8.30 að bresk- um tíma í dag, 7.30 að íslenskum tíma. „Við erum að sjálfsögðu spennt og það verður gaman að sjá hvernig þetta fer. Hún mætir mjög öflugum andstæðingi og það er mikið í húfi þótt við séum varla farin að gera okkur grein fyrir því enn þá.“ Þáttur Ólafíu og Valdísar „En það sem er að skila sér hjá Jó- hönnu á þessu móti er mikil vinna með frábæru fólki og þjálfurum í GR og öllum sem þar starfa. Hinar ís- lensku stúlkurnar sem tóku þátt í mótinu hafa líka staðið vel við bakið á henni og hvatt hana. Síðan endurspeglar þetta þá upp- sveiflu sem er í kvennagolfinu á Ís- landi og sérstaklega hjá yngri kyn- slóðinni. Þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jóns- dóttir eiga gríðarlega mikinn heiður skilinn. Þær hafa lyft kvennagolfinu upp á nýtt þrep og nú eru aðrar stúlkur byrjaðar að njóta ávaxtanna af þeirra vinnu,“ sagði Lúðvík Berg- vinsson. „Þetta er lyginni líkast“ - Jóhanna Lea spilar í dag um keppn- isrétt á fjórum risamótum í golfi Ljósmynd/Lúðvík Kilmarnock Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir við hlið Barassie-golfvallarins eftir að hafa tryggt sér sæti í úrslitaleik Opna breska áhugamannamótsins í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.