Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
LANDSBANKINN. IS
Komum
hlutunum
á hreyfingu
Við bjóðum hagstæðar leiðir
til að fjármagna ný og notuð
atvinnutæki og bíla sem henta
rekstrinum þínum.
fiskurinn er að koma inn – smálaxinn
er ekkert farinn að sýna sig sem heit-
ir,“ sagði Einar Sigfússon við Norð-
urá. Þar hafa innan við tuttugu laxar
verið færðir til bókar frá opnun fyrir
viku.
„Það hefur tapast talsvert af fisk-
um, tökurnar eru grannar og ég held
að meginskýringin á þessari hægu
byrjun sé hvað vorið var kalt og vatnið
er enn kalt. Laxinn gengur síður í árn-
ar í mjög köldu vatni – það eru ekki ný
sannindi. Ég á von á því að strax þeg-
ar hlýnar eflist göngur.“
Einar er því bjartsýnn. „Ég er
sannfærður um að þetta geti orðið
ágætis veiðisumar. Ég bíð spenntur
og ætla að vera bjartsýnn.“
Veiði hefst á næstunni í hverri lax-
veiðiánni á fætur annarri og víða hef-
ur sést til laxa, meðal annars í Langá
á Mýrum og í Elliðaánum þar sem
þeir fyrstu hafa farið gegnum telj-
arann.
Silungsveiðin víða fín
Silungsveiðimenn hafa víða veitt
ágætlega síðustu daga. Vorveiðin var
frábær í Hlíðarvatni í Selvogi og sem
dæmi hafa frá opnun 1. maí um 530
bleikjur þegar veiðst á þær tvær
stangir sem veiðifélagið Árblik er með
en það nálgast algenga sumarveiði þar
á bæ. Fimm veiðifélög hafa stangir í
vatninu og hjá öðru, Ármönnum, voru
um 500 bleikjur færðar til bókar í maí
en „venjulega“ er sú tala nær 300.
Bleikjan er farin að taka fyrir landi
þjóðgarðsins á Þingvöllum og þá hafa
sumir sem hafa spreytt sig í vatninu í
Hraunsfirði á Snæfellsnesi síðustu
daga fengið stórar og fallegar sjó-
bleikjur. Svo beinast augu margra að
veiðinni á silungasvæðunum efst í
Laxá í Aðaldal, sem kennd eru við Mý-
vatnssveit og Laxárdal, en hún hófst
að vanda fyrir mánaðamótin. Venju-
lega veiðast fleiri fiskar á Mývatns-
svæðinu en stærri og færri í dalnum.
Það mátti sjá á opnunarhollunum þeg-
ar 212 urriðar veiddust á eftra svæð-
inu en 68 í dalnum.
„Það hefur gengið frekar vel, urr-
iðinn er feitur og þungur og menn
ánægðir með þá fiska sem þeir fá,“
sagði Björn Gunnarsson, staðarhald-
ari í veiðihúsinu Rauðhólum í Lax-
árdal í gær. „Við erum með tvær veiði-
bækur, fyrir austur- og vestur-
bakkann, og það er nákvæmlega sama
tala í þeim núna, 78 fiskar í hvorri. 156
í allt komnir í land. Og 116 af fiskunum
eru 60 cm og lengri.“
Skylduslepping er á urriðanum,
fara þeir nú sífellt stækkandi?
„Mér sýnist það,“ svaraði Björn.
„Fimm af fiskunum sem hafa veiðst
eru 70 cm og stærri og sá minnsti 50
cm – fyrir utan einn 38 cm titt. Það er
gaman að sjá þessa stóru, þetta eru
þykkir, feitir, þungir gæjar.“
Fyrstu hollin veiddu um helming
fiskanna á straumflugur, hina á púpur,
en nú síðustu daga veiddist aðallega á
púpur. Þrír hafa veiðst á þurrflugu.
Erlendir fluguveiðimenn dásama
urriðasvæðin í Laxá og eftir 23. júní
taka þeir Laxárdal yfir í rúman mán-
uð. Björn á eftir að segja þeim mörg-
um til og spáir góðri veiði.
„Þykkir, feitir, þungir gæjar“
- Laxveiðin fer ró-
lega af stað - „Það
eru engin læti“
- Stórir í Laxárdal
Ljósmynd/Ingólfur Ásgeirsson
Sumarkoma Þórarinn Sigþórsson tannlæknir með 84 cm lax sem hann veiddi á fyrsta veiðidegi í Kjarrá.
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta hefur verið býsna rólegt hér í
Blöndu eftir kalt vor og svo bjuggust
menn nú ekki við miklu af stórlaxi eft-
ir lélegt smálaxasumarið í fyrra. Við
fylgjumst spennt með því hvað stóri
straumurinn núna færir okkur,“ sagði
Erik Koberling, staðarhaldari við
ána, en í gær höfðu veiðimenn aðeins
fært þrjá laxa til bókar síðan veiðin
hófst fyrir sex dögum. Í byrjun er
veitt þar á fjórar stangir. Augu jafnt
starfsmanna við veiðiárnar sem
áhugasamra veiðimanna eru á stóra
straumnum sem var í gær og allir
vona að hann fleyti laxagöngum í árn-
ar. Erik sagði veiðimenn hafa séð
fiska í gær sem þeir töldu nýgengna
en byrjunin hafi vissulega verið róleg.
Svipaðar sögur mátti heyra frá
Þverá-Kjarrá; veiðar hófust fyrst á
neðra svæðinu í Þverá og hafa veiðst
þar nokkrir vænir tveggja ára laxar
og þegar veiðimenn byrjuðu í Kjarrá
á miðvikudag var þremur landað.
Eins og oft áður var Þórarinn Sig-
þórsson tannlæknir veiðnari en aðrir.
Landaði hann tveimur laxanna, í Efri-
Johnson og Réttarhyl, en sá þriðji
veiddist á „fjallinu“, í þeim dulúðuga
veiðistað Efra-Rauðabergi.
„Það eru engin læti en tveggja ára