Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 16

Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 Karl Gauti Hjaltason, þing- maður Mið- flokksins í Suð- urkjördæmi, hefur tilkynnt um framboð í fyrsta sæti á lista flokksins í kjör- dæminu. Með því skorar hann á hólm þingmann- inn Birgi Þórarinsson sem leiddi lista flokksins í Suðurkjördæmi fyr- ir síðustu kosningar og sækist áfram eftir fyrsta sætinu. Karl Gauti var kjörinn á þing fyr- ir Flokk fólksins árið 2017 og var þá oddviti þess flokks í Suður- kjördæmi. Hann gekk til liðs við Miðflokkinn á kjörtímabilinu. Valið verður á lista Miðflokksins með uppstillingu á næstu vikum. Fimm manns skipa kjörnefnd, þrír voru kjörnir af kjördæmafundi og tveir af stjórn flokksins. „Ég tel að ég hafi mjög góðan hljómgrunn í kjördæminu og ég er búinn að vera mikið á ferðinni í kjördæminu allt kjörtímabilið,“ segir Karl Gauti. esther@mbl.is Barist um odd- vitasæti Miðflokks- ins í Suðurkjördæmi Karl Gauti Hjaltason Formannskjör verður á aðalfundi Landverndar sem fram fer í dag. Einn stjórnarmaður tilkynnti óvænt í gærmorgun um mót- framboð gegn sitjandi formanni. Tíu menn eru í stjórn Land- verndar. Á aðalfundinum í dag verður kosið um formann stjórnar til tveggja ára og fjóra stjórnar- menn til jafn langs tíma. Tryggvi Felixson sem verið hef- ur formaður Landverndar undan- farin tvö ár tilkynnti í febrúar að hann gæfi kost á sér til endur- kjörs. Í gærmorgun tilkynnti Páll Halldórsson líffræðingur, sem á sæti í stjórninni, að hann byði sig fram til formanns. Í raun geta allir kjörgengir félagsmenn boðið sig fram á fundinum. Aðalfundurinn verður í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6 í Reykjavík, og hefst klukkan 11. Formannskjör í Landvernd í dag Þjóðskjalasafnið fær í ágúst til af- nota 1.370 fermetra geymslu- húsnæði þar sem prentsmiðjan Oddi var áður til húsa. Til stendur að bæta úr brýnni húsnæðisþörf safns- ins á næstu árum. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Framkvæmda- sýslu ríkisins. Ríkiseignir og HB 5-7 ehf. hafa undirritað samning um leigu á hús- næði að Höfðabakka 7 í Reykjavík. Það verður notað fyrir skjala- geymslur Þjóðskjalasafns Íslands. Samningurinn er til fimm ára með framlengingarákvæði. Gera þarf nokkrar breytingar á húsnæðinu, en þær verða unnar af leigusala. Hús- næðið verður nýtt undir sívaxandi safnkost Þjóðskjalasafnsins og verð- ur fyrsti áfanginn í uppbyggingu nú- tímalegs geymsluhúsnæðis, að því er fram kemur í fréttinni. Framkvæmdasýslan hefur unnið að húsnæðismálum Þjóðskjalasafns undanfarin misseri og nú liggur fyr- ir frumathugun um framtíðar- húsnæðisskipan safnsins. Þjóðskjalasafnið er nú með tvö geymslurými á leigu, annars vegar í Brautarholti 6 og hins vegar við Laugarnesveg 91. Þar eru geymdir samtals um 12.000 hillumetrar gagna á 970 fermetrum. Húsnæðið í Brautarholti er sagt í slæmu ástandi og leigurýmið í Laug- arnesi er sömuleiðis óhentugt. Þá er það staðsett þannig að ganga þarf í gegnum mörg önnur rými til að komast að því. „Hvorug geymslan uppfyllir brunakröfur byggingareglugerðar eða lög og reglugerðir um varðveislu skjala,“ segir á vef Framkvæmda- sýslunnar. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjóðskjalasafnið fær inni hjá Odda Esther Hallsdóttir esthe@mbl.is Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 2,6 prósent á fyrsta fjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um rúm átta pró- sent á tímabilinu. Samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofunni vega þar þyngst auknar líf- eyrisgreiðslur, meðal annars vegna úttektar séreignarlífeyrissparnaðar, og félagslegar bætur sem skýrast helst af auknu atvinnuleysi og að- gerðum stjórnvalda vegna kórónu- veirufaraldurins. Samanlagt jukust þessar greiðslur um 23 prósent og námu 18 prósentum af heildartekjum heimilanna á tímabilinu. Þá jukust launatekjur heimilanna um 4,3 prósent og skýrist það helst af kjarasamningsbundnum launahækk- unum. Þetta kemur fram í gögnum Hagstofunnar. Skattar á laun jukust um 4,5 prósent og tryggingagjöld at- vinnurekenda og launafólks um þrjú prósent. Vaxtagjöld heimilanna juk- ust um 4 prósent. Jákvæðar tölur „Mín viðbrögð við þessum tölum eru að þetta séu ágætis fréttir, að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann sé stærð sem ekki fellur. Það er ljóst að sambland lífeyrisgreiðslna og félagslegra bóta er að halda uppi kaupmætti heimilanna. Það sýnir bæði að velferðarkerfið okkar og að- gerðir stjórnvalda hafi verið góðar. Það er það sem ég tek úr þessu,“ seg- ir Arnaldur Sölvi Kristjánsson, hag- fræðingur hjá ASÍ. Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, tekur undir að tölurnar séu já- kvæðar en varar við hættumerkjum. „Ástæðan fyrir þessari kaupmátt- araukningu er fyrst og fremst að miklar samningsbundnar hækkanir hafa gengið hér yfir. Á sama tíma hafa skattalækkanir, á lægstu laun, og vaxtalækkanir aukið ráðstöf- unartekjur margra heimila,“ segir Ásdís. „Það er jákvætt að tekist hafi að verja kaupmátt heimila í gegnum þennan faraldur. Það breytir því þó ekki að við teljum að þetta geti ekki verið sjálfbær staða til lengdar. Launahækkanirnar á undanförnum misserum eru algjörlega úr takti við aðrar stærðir í atvinnulífinu. Á síð- asta ári dróst landsframleiðsla saman um 6,6 prósent sem er mikill tekju- samdráttur í sögulegu samhengi. Fyrirtæki hafa þurft að bregðast við þessum launahækkunum með því að hagræða og segja upp starfsfólki. Í dag eru 17 þúsund manns enn án at- vinnu sem dæmi. Atvinnuleysi er þegar mikið og verðbólga að aukast og við því hefur Seðlabankinn brugðist með vaxta- hækkun. Til að verja kaupmátt heim- ila blasir við að hér verður að mælast mikill hagvöxtur til að atvinnulífið geti staðið undir þeim miklu launa- hækkunum sem framundan eru,“ segir Ásdís. Áhyggjur af atvinnuleysi „Það er verulegt áhyggjuefni að sjá hvernig nokkuð hátt atvinnuleysi virðist vera að festa sig í sessi,“ segir hún. „Forgangsverkefni fram á veg- inn er að skapa skilyrði svo fyrir- tækin geti vaxið út úr þessari kreppu þannig að unnt sé að vinna til baka framleiðslutapið og þau störf sem hafa glatast eins hratt og hægt er. Ísland er hálaunaríki í alþjóðlegum samanburði og ef við viljum áfram greiða há laun þarf verðmætasköpun og þar með tekjur þjóðarbúsins að aukast hraðar og meira. Að öðrum kosti munum við aðeins upplifa mikla verðbólgu, háa vexti og lakari lífs- kjör,“ segir hún. Aðspurður hvort hann hafi áhyggj- ur af því að launahækkanir á síðustu mánuðum muni þrýsta upp verðbólgu segir Arnaldur að tölurnar frá Hag- stofunni séu ekki til þess fallnar að draga slíkar ályktanir. „Þá þyrftirðu að skoða laun starfsfólks og verð- mætasköpun hjá starfsfólki, og þá þarftu væntanlega að skoða almenna markaðinn út fyrir opinbera mark- aðinn. Þarna ertu með allt í einum potti, þannig að mér finnst þessar töl- ur ekki gefa vísbendingar til túlkunar á þessa vegu,“ segir hann. „Ef þú skoðar launavísitöluna er dágóð hækkun bæði hjá hinu opin- bera og á almenna markaðnum en ef þú skoðar almenna markaðinn er náttúrlega launaskrið ofan á kjara- samningsbundnar hækkanir og ég sé ekki endilega að það sé hætta á að það auki verðbólgu mikið, en það er erfitt að spá um það,“ segir Arnaldur Sölvi. Kaupmáttur eykst milli ára - Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 2,6% á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra - Lífeyrisgreiðslur og bætur jukust um 23% Ráðstöfunartekjur og kaupmáttaraukning á mann* Frá 1. ársfj. 2015 til 1. ársfj. 2021 10% 8% 6% 4% 2% 0% 1.200 1.100 1.000 900 800 700 1. 2. 3. 4. 1. 2. 3. 4. 1. 2. 3. 4. 1. 2. 3. 4. 1. 2. 3. 4. 1. 2. 3. 4. 1.Ársfj: 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 *Bráðabirgðatölfræði um ráðstöfunar- tekjur heimilageirans samkvæmt aðferðafræði þjóðhagsreikninga á ársfjórðungsgrundvelli Ráðstöfunartekjur, þús. kr.Breyting á kaupmætti,% 2,6% 1.063 þús. kr. Hlutfallsleg breyting á kaupmætti ráðstöfunartekna á mann miðað við sama ársfj. árið á undan (%) Ráðstöfunartekjur á mann (þús. kr.) Heimild: Hagstofa Íslands Arnaldur Sölvi Kristjánsson Ásdís Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.