Morgunblaðið - 12.06.2021, Page 22

Morgunblaðið - 12.06.2021, Page 22
Skatturinn flytur í skrifstofuturn Katrínartún 6 Byggingin er sú síðasta sem rís á Höfðatorgi í Reykjavík. Teikning/PK arkitektar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ríkiseignir, fyrir hönd fjármála- ráðuneytisins, og Íþaka fasteignir hafa undirritað samning um leigu á skrifstofuhúsnæði í Katrínartúni 6 á Höfðatorgi. Samningurinn er til 30 ára og með framlengingarákvæði en húsnæðið er rúmlega 11.700 fermetrar. Um er að ræða húsnæði ætlað Skattinum og Fjársýslu ríkisins. Uppbygging kallar á niðurrif Katrínartún 6 er síðasta bygging- in sem rís á Höfðatorgi. Flugfélagið WOW air var með höfuðstöðvar í byggingu á sömu lóð en það hús var rifið síðastliðið vor. Undir Katrínar- túni 6 verður bílakjallari sem verður samtengdur bílakjallaranum undir Höfðatorgi en þó lægri, eftir því sem hann stallast upp í hlíðinni. Þær upplýsingar fengust hjá Íþöku fasteignum að Ríkiseignir leigi alla bygginguna, að frádregnum hluta kjallarans. Jarðhæðin fellur þar með undir leigusamninginn en jarðhæðirnar í öðrum byggingum Höfðatorgs eru með atvinnurýmum, svo sem veitingarýmum og hár- greiðslustofum. En Skatturinn er með afgreiðslu á jarðhæð í núver- andi höfuðstöðvum á Laugavegi 166. Afhent í árslok 2022 Áformað er að afhenda Katrínar- tún 6 í desember 2022. Þær upplýsingar fengust frá Íþöku að endanlegum frágangi á heildarlóð Höfðatorgs kunni að ljúka haustið 2022 eða sumarið 2023. Fram kom á vef Fjársýslu ríkisins að með flutningunum sameinist starfsemi í eitt hús sem nú sé dreifð í þrjár byggingar á höfuðborgar- svæðinu. - Ríkiseignir gera 30 ára leigusamning 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 12. júní 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.62 Sterlingspund 170.14 Kanadadalur 99.62 Dönsk króna 19.745 Norsk króna 14.521 Sænsk króna 14.58 Svissn. franki 134.57 Japanskt jen 1.1012 SDR 173.97 Evra 146.83 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.1401 Hrávöruverð Gull 1882.0 ($/únsa) Ál 2459.0 ($/tonn) LME Hráolía 72.03 ($/fatið) Brent « Landsbankinn hefur fyrstur ís- lenskra fjármála- fyrirtækja mælt kolefnislosun frá lánasafni sínu. Þetta kemur fram í tilkynningu. „Þetta er risa- stórt skref í sjálf- bærnivinnu okkar. Bankar, líkt og önn- ur fyrirtæki, þurfa að leggja sitt af mörkum til að ná markmiðum Par- ísarsamkomulagsins,“ segir Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri í tilkynning- unni. Landsbankinn mælir losun lánasafnsins Lilja Björk Einarsdóttir STUTT blaðið að 2,3 milljónir manna noti vafrann í hverjum mánuði í yfir 200 löndum. Þeir eru stærstir í Banda- ríkjunum, Japan og Evrópu. „Við jukum notendafjöldann um 70% í fyrra og við vonumst til að vaxa meira á þessu ári,“ segir Jón. Hann segir fyrirtækið ekki skila BAKSVIÐ Logi Sigurðarson logis@mbl.is Ný uppfærsla á Vivaldi-vafranum gerir fólki kleift að horfa á YouTube- myndbönd án þess að safnað sé upp- lýsingum um það á meðan. Uppfærslan sem kom út á dögun- um, frá íslenska hugbúnaðarfyrir- tækinu Vivaldi, er sú stærsta frá upp- hafi og heitir uppfærði vafrinn Vivaldi 4.0. Vafrinn er í beinni sam- keppni við risafyrirtæki líkt og Go- ogle og Microsoft. Nýja uppfærslan felur í sér innbyggt dagatal, tölvu- póstkerfi og þýðingar á vefsíðum í vafranum sjálfum. Vivaldi leggur mikið upp úr því að vernda friðhelgi notenda og er því með innbyggða rakninga- og auglýsingavörn í vafr- anum, eins og kemur fram í tilkynn- ingu fyrirtækisins. Jón von Tetzchner, stofnandi fyrir- tækisins, segir í samtali við Morgun- hagnaði en telur að það muni ná hagnaði þegar notendafjöldinn nær fimm milljónum. „Við erum að þéna rétt undir einn Bandaríkjadal á mann á ári. Við vorum komin yfir einn dal, en svo kom Covid og það lækkaði tekjurnar á mann. Við þénum meira á notendum í ríkari löndum.“ Hindrar YouTube í söfnun notendagagna Vivaldi /teikning Vafri Ný uppfærsla Vivaldi-vafrans er sú stærsta frá upphafi. Vafrinn hefur um 2,3 milljónir notenda mánaðarlega. - Vivaldi í samkeppni við stórfyrirtæki á borð við Google Samstæða og móðurfélag 1912 högn- uðust um 429 milljónir króna á síðasta ári og jókst hagnaðurinn um 54% milli ára en hann var 278 milljónir árið 2019. Eins og fram kemur í ársreikningi félagsins annast 1912 ehf. lagerhald, skrifstofuhald og fjármálastjórn fyrir dótturfélög sín, Nathan og Olsen og Ekruna auk Emmessíss. Starfsemi dótturfélaganna felst í innflutningi og sölu til smávöruverslana og stóreld- húsa auk framleiðslu og sölu á ís. Eignir 3,2 milljarðar Eignir samstæðunnar námu í lok ársins tæplega 3,2 milljörðum króna og jukust þær lítillega milli ára, en þær voru 3,1 milljarður árið á undan. Eigið fé samstæðunnar er nú 902 milljónir króna og jókst töluvert milli ára. Það var 623 milljónir árið 2019. Eiginfjárhlutfall félagsins er 28%. Rekstrartekjur samstæðu 1912 á síðasta ári námu 10,3 milljörðum króna og jukust um 10% milli ára, en tekjurnar voru 9,4 milljarðar árið 2019. Rekstrartekjur móðurfélagsins námu 828 milljónum króna á árinu. Í ársreikningnum kemur fram að áhrif Covid-19-faraldursins á starfsemi samstæðunnar hafi verið óveruleg á árinu 2020. Stjórn félagsins leggur til að greidd- ar verði 545 milljónir króna í arð til hluthafa á árinu 2020 vegna ársins 2021. tobj@mbl.is 1912 hagnaðist um 429 m.kr. - Covid-19 hafði óveruleg áhrif á starfsemina 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is HEILDARLAUSNIR FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS Hafðu samband í síma 580 3900. Sölufólk okkar aðstoðar þig við að finna réttu lausnina fyrir þinn rekstur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.