Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Kisa Blautur köttur töltir eftir girðingu í Indjánagili. Athyglisvert er að hann gapir en þegar kettir fá stíflað nef geta þeir neyðst til að anda í gegnum munninn.
Eggert
Ríkisstjórnin sem
nú situr hefur unnið
góðan varnarsigur við
erfiðar aðstæður. En
enn erum við í miðri á.
Við blasir að á næsta
kjörtímabili er end-
urreisn atvinnulífsins
og fjölgun atvinnu-
tækifæra mikilvæg-
asta verkefnið. Ég er
bjartsýn á að Íslend-
ingar geti hratt og örugglega sigr-
ast á þeim erfiðleikum sem gengið
hafa yfir. Engum flokki er betur
treystandi til þess að leiða þá vinnu
en Sjálfstæðisflokknum.
Það er því gríðarlega mikilvægt
að Sjálfstæðisflokkurinn verði
áfram í ríkisstjórn. Eina leiðin til
þess að það verði að veruleika er að
Sjálfstæðisflokkurinn fái gott
brautargengi í kosningunum í haust
og að ekki verði hægt að ganga
fram hjá honum við stjórn-
armyndun.
Útilokum vinstristjórn
Forsenda þess er þó sú að við
veljum framboðslista sem höfðar til
breiðs hóps kjósenda. Einungis
þannig getum við útilokað vinstri-
stjórn að loknum næstu kosningum.
Í dag fer fram val á framboðslista
sjálfstæðisfólks í Kraganum. Nú
geta kjósendur valið sigurstangleg-
an lista karla og kvenna, með ólíka
reynslu og breiðan
bakgrunn.
Ég gef kost á mér í
þriðja sæti listans og
heiti því að ég mun
leggja mig alla fram
fái ég til þess braut-
argengi að taka sæti á
þingi. Fjölbreytt
reynsla mín úr at-
vinnulífinu og góð
menntun mun nýtast
vel á Alþingi. Ég hef
mikinn metnað fyrir
land og þjóð og óska eftir þínum
stuðningi í þriðja sæti.
Ferskir vindar hafa blásið um
prófkjör XD undanfarnar vikur og
mikilvægt er að þeir haldi áfram að
veita okkur meðbyr inn í framtíð-
ina. Framtíðina þar sem við ætlum
að stilla upp öflugum hópi fólks og
sækja fram til sigurs.
Eftir Sigþrúði
Ármann
» Ferskir vindar hafa
blásið um prófkjör
XD undanfarnar vikur
og mikilvægt er að þeir
haldi áfram að veita
okkur meðbyr inn í
framtíðina.
Sigþrúður Ármann
Höfundur er lögfræðingur og fram-
kvæmdastjóri og sækist eftir 3. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suð-
vesturkjördæmi.
Sækjum fram
til sigurs
Í dag lýkur prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
Kjósendum gefst tæki-
færi til að nýta lýðræð-
islegan rétt sinn og
velja fólk til að skipa
sigurstranglegan
framboðslista í alþing-
iskosningunum nk.
haust.
Með framboði mínu
vil ég vekja athygli á nauðsyn þess
að Íslendingar virki það lýðræð-
islega afl sem í þeim býr og gerist
virkari þátttakendur í lýðræðislegri
umræðu. Með því móti styrkist hin
nauðsynlega gagnvirkni lýðræðis og
löggjafar.
Ein helsta áskorun Alþingis og ís-
lenskra stjórnmála nú er að snúa af
braut valdaframsals, þannig að ís-
lenskir kjósendur og kjörnir fulltrú-
ar þeirra á Alþingi ráði þeim lögum
sem hér gilda. Doði og andvaraleysi
má ekki verða til þess að staða Ís-
lands veikist í bráð og lengd. Láti
menn sig dreyma um einhvers kon-
ar sjálfvirkt stjórnarfar, þar sem lög
og réttur verða til sjálfkrafa og um-
ræðulaust, jafnvel með póstsend-
ingum að utan, verða menn að gera
sér grein fyrir því gjaldi sem slíkt
þátttöku- og gagnrýnisleysi hefur í
för með sér. Hér stöndum við
frammi fyrir alvarlegum álitaefnum:
Hvernig fer fyrir þjóð sem fær
litlu eða engu ráðið um hvernig mál-
um hennar er stjórnað? Hvers
vegna ætti slík þjóð að sýna stjórn-
málum og lýðræði
nokkurn áhuga?
Hvernig getur þjóð,
sem ekki stjórnar eigin
málum, tryggt það að
valdhafar svari til
ábyrgðar gagnvart
henni? Og hvernig get-
ur þjóð í þeirri stöðu
tryggt að lögin taki
jafnt til allra og að
menn séu ekki sviptir
mannréttindum ef þau
réttindi eru talin ógna
hagsmunum ráðandi
afla? Hvernig getur valdalaus þjóð
varið hagsmuni sína, tilveru og rétt-
indi?
Eins og málum er nú komið er
raunveruleg hætta á að Íslendingar
sogist inn í vítahring, þar sem inn-
takslaus ásýndarstjórnmál drepa
niður áhuga fólks á lýðræðinu og
stjórnmálunum.
Ég býð mig fram til að vinna
gegn slíkri öfugþróun, þ.m.t. að and-
æfa því að vald íslenskra kjósenda
sé í síauknum mæli framselt úr
landi til erlendra embættismanna
sem svara ekki til ábyrgðar gagn-
vart Íslendingum og hafa enga holl-
ustuskyldu gagnvart okkur sem hér
búum né nóga þekkingu á okkar
högum.
Hér þarf að leiða vitundarvakn-
ingu um þessi mál. Það verður ekki
gert nema með umbótum í mennta-
málum, þ.m.t. með því að styrkja
grundvallarfærni, s.s. lestur, skrif
og reikning, auk þess að hvetja fólk
til gagnrýninnar hugsunar. Gæfa Ís-
lands, nú sem fyrr, býr í dugmiklu,
vinnusömu og þrautgóðu fólki. Með
samtakamætti getum við sett okkur
raunhæf markmið í mennta-, heil-
brigðis- og atvinnumálum.
Allt stendur og fellur með því að
okkur takist sem samfélagi, for-
eldrum og vinum, að vinna að réttu
og heilnæmu marki. Fjölskyldan er
hornsteinn samfélagsins og grunn-
stoð í lífi sérhvers manns. Hlutverk
fjölskyldunnar er að móta, vernda
og uppfræða. Fjölskyldan grund-
vallast á gagnkvæmri skuldbind-
ingu. Þar lærum við að þekkja þá
ábyrgð sem fylgir því að vera frjáls
manneskja. Sem mæður og feður,
ömmur og afar, dætur og synir lif-
um við í tengslum við annað fólk.
Þessi tengsl leggja á herðar okkar
alls kyns skyldur og skuldbindingar,
sem þó eru einnig uppspretta okkar
dýrmætustu gleðistunda. Í þessu
felst að við lifum þannig að við leit-
umst við að blómstra og hjálpa öðr-
um til að blómstra. Innihaldsríkt líf í
þessum skilningi snýst um þjónustu
og verðug markmið. Ég býð mig
fram til þjónustu til að vinna að slík-
um – lýðræðislega ákvörðuðum –
markmiðum.
Eftir Arnar Þór
Jónsson » Allt stendur og fellur
með því að okkur
takist sem samfélagi,
foreldrum og vinum, að
vinna að réttu og heil-
næmu marki.
Arnar Þór Jónsson
Höfundur sækist eftir 2.-3. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í SV-
kjördæmi 10.-12. júní nk.
Til þjónustu