Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 31

Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 31
MESSUR 31á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarleg helgistund kl. 11. Fimm unglingar staðfesta skírnarheitið og fermast. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár organista. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. ÁSKIRKJA | Sumarferð Safnaðarfélags Áskirkju. Brottför kl 9. Messað í Stafholtskirkju kl 11. Sr. Anna Eiríksdóttir þjónar fyrir altari og sr. Sigurður Jónsson prédikar. Org- anistar Dóra Erna Ásbjörnsdóttir og Bjartur Logi Guðna- son. Lýðveldisdagurinn, 17. júní 2021: Hátíðarguðsþjónusta í Rósagarðinum í Laugardal kl. 11. Sr. Sigurður Jónsson þjónar. Bjartur Logi Guðnason stjórnar söng Kórs Ás- kirkju. Aðkoma frá Sunnuvegi um heimreið að Garðyrkju- stöðinni, eða frá bílastæði Vinagarðs eftir göngustíg í norður. ÁSTJARNARKIRKJA | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl. 11. Ástjarnarkirkja tekur þátt í þeim. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. Bergsstaðakirkja í Svartárdal | Fermingarmessa laug- ardaginn 12. júní kl. 13. Fermdir verða Egill Már Brynjólfs- son frá Brandsstöðum og Elías Már Víðisson frá Bark- arstöðum. Prestur Bryndís Valbjarnardóttir, organisti Hugrún Sif Hallgrímsdóttir. Söngur: Almennur safnaðar- söngur. BESSASTAÐASÓKN | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl. 11. Bessastaðasókn tekur þátt í Sum- armessunum. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa með sumarlegum blæ sunnudag kl. 20. Jónas Þórir og félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju annast tónlistina. Sr. Pálmi og Daníel Ágúst Gautason djákni annast þjónustu ásamt messu- þjónum. DIGRANESKIRKJA | Sunnudaginn 13. júní 2021, kl. 11. er guðsþjónusta í Hjallakirkju. DÓMKIRKJAN | Messa sunnudaginn 13. júní klukkan 11. Prestur séra Elínborg Sturludóttir, Dómkórinn, kór- stjóri og dómorganisti Kári Þormar. FELLA- og Hólakirkja | Göngumessa Breiðholtssafn- aðanna. Gengið verður frá Breiðholtskirkju kl. 10 yfir í Seljakirkju þar sem guðsþjónustan hefst kl. 11. Messu- kaffi og skemmtileg samfélag að guðsþjónustu lokinni. Njótum þess að vera samferða á sunnudaginn í kirkjuna. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta sunnudaginn 13. júní kl.14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safn- aðarprestur leiðir stundina. Sönghópurinn við Tjörnina og hljómsveitin Mantra leiða tónlistina undir stjórn Gunnars Gunnarssonar organista. GARÐAKIRKJA | Messa, sunnudagaskóli og hestamenn í heimsókn. Gönguferð frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 10., leiðsögn Egill Friðleifsson. Guðsþjónusta kl. 11. og sumarsunnudagaskóli á sama tíma á Króki. Messukaffi á eftir á Króki og hestamannafélagið Sóti býður börnum á hestbak. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyr- ir altari. Katalin Lörincz leikur á orgel og píanó, Katrin Heymann á þverflautu og Össur Ingi Jónsson á óbó. Guðsþjónustunni verður streymt á Facebook-síðunni Sum- armessur í Garðakirkju. GRAFARVOGSKIRKJA | Fermingarathafnir verða í Graf- arvogskirkju: Laugardaginn 12. júní kl. 10:30 og 12:00 og sunnudaginn 13. júní kl. 10:30, 12:00 og 13:30 Prestar safnaðarins þjóna. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Daníel Ágúst Gautason djákni og guðfræðinemi þjónar ásamt sr. Evu Björk Valdimarsdóttur. Organisti er Ásta Haraldsdóttir, félagar úr kór Grensáskirkju leiða almenn- an messusöng. Við minnum á síðustu kyrrðarstundina fyrir sumarfrí á þriðjudaginn kl. 12. GRINDAVÍKURKIRKJA | 17. júní kl.10. Hátíðarguðs- þjónusta. Kór Grindavíkurkirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur. Elínborg Gísladóttir sóknarprestur þjón- ar fyrir altari. Kaffiveitingar eftir messu. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fermingarguðsþjón- ustasunnudaginn 13.júní kl. 10:30. Prestur sr.Leifur Ragnar Jónsson og sr. Pétur Ragnhildarson þjóna og pre- dikar fyrir altari. Organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guð- ríðarkirkju syngur. Kirkjuvörður Lovisa Guðmundsdóttir, HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sumarmessur í Garða- kirkju, alla sunnudaga kl. 11. Hafnarfjarðarkirkja tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. Sunnudaginn 13. júní verður gengið frá Hafnarfjarðar- kirkju til messu og lagt af stað kl 10. HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messu- þjónar aðstoða. Sönghópur undir stjórn Magnúsar Ragn- arssonar syngur og leiðir söng. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.11. Félagar úr Kor- díu kór Háteigskirkju leiða sönginn. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudaginn 13. júní 2021, kl. 11. er guðsþjónusta í Hjallakirkju. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma kl. 20 með lofgjörð og fyrirbænum. Ágúst V. Ólafsson prédikar. Kaffi að samverustund liðinni. KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudagskvöldið 13. júní kl. 20 verður göngumessa í umhverfi Keflavíkurkirkju. Sr. Erla Guðmundsdóttir leiðir stundina. Arnór Vilbergsson organisti og félagar úr Kór Keflavíkurkirkju leiða söng. Endað verður í kaffi og heimabökuðu í bakgarði sókn- arprests á Brunnstíg. Í samstarfi við Reykjanesbæ er vakin athygli á hátíð- arguðsþjónustu á 17. júní í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl.12:30. Sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónar. Kórfélagar syngja undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund í Borgum, safnaðar- heimili Kópavogskirkju, klukkan 11. Laufey Brá Jóns- dóttir guðfræðinemi flytur hugvekju og þjónar ásamt sr. Sjöfn Jóhannesdóttur. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Elísabet Þórð- ardóttir organisti leiðir tónlistarflutning. Helga Aðalheiður Jónsdóttir leikur á blokkflautu. Boðið verður upp á kaffi í safnaðarheimilinu eftir stundina. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Kl. 11. Sunnudagaskóli. Sr. Guðni Már Harðarson leiðir stundina ásamt sunnu- dagaskólakennurum. Kl: 20. Guðsþjónusta. Félagar úr kór Lindakirkju leiða lofgjörð undir stjórn Óskars Ein- arssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar. MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta í Mosfellskirkju sunnudaginn 13. maí kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar organista. Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn þjónar fyrir altari. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | 13. júní Sum- armessa í Keflavíkurkirkja kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í sumarmessunum. Sjá Keflavíkurkirkja hér á síðunni. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Tvær messur verða um helgina í Óháða söfnuðinum , athugið breyttan messu- tíma, laugardaginn 12. júní kl. 9 verður helgistund í kirk., síðan farið í göngu um Ögmundarhraun og Húshólma. Ög- mundarhraun er hraunbreiða vestan Krýstuvíkur af Núps- hlíðarhálsi. Sunnudaginn 13. júní kl. 18, ath. breyttan messutíma, verður gúllasguðsþjónusta, eftir messuna verður boðið upp á gúllassúpu. Verð súpunnar er kr. 2.000. Séra Pétur þjónar og Kristján Hrannar sér um kór og tónlist. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sameiginleg gönguguðsþjónusta Breiðholtssafnaðanna, gengið frá Breiðholtskirkju kl. 10, Vigdís Pálsdóttir leiðir gönguna. Sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari, Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Egg- ertssonar, messukaffi að guðsþjónustu lokinni. Njótum þess að vera samferða í kirkjuna. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Jón Ásgeir Sigurvinsson héraðsprestur þjónar. Kristín Jó- hannesdóttir er organisti. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir leiðir almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Axel Árnason Njarðvík. Organisti Jón Bjarnason. VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl. 11. Vídalínskirkja tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garða- kirkja hér í síðunni. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl. 11. Víðistaðakirkja tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. YTRI-Njarðvíkurkirkja | 17. júní kl.12:30. Hátíðarguð- þjónusta í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Prestur: Sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir. Félagar úr kirkjukórnum syngja undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Morgunblaðið/Ómar Ólafsvíkurkirkja Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemmamorguns og lent í Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilegaHotel Skt. Petri í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu. Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn meðÁstu Stefánsdóttur leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega um sögu Kaupmannahafnar. Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften. Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið breytt í „Juleland“ á Aðventunni. Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavnmeðan hljómsveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vanalega ríkir mikil stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll síðdegis og flug til Íslands um kvöldið. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson Bókanir og nánari upplýsingareru hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301. Netfang : hotel@hotelbokanir.is. Ferðirnar eru ætlaðar eldri borgurum um land allt. AÐVENTUFERÐIR ELDRI BORGARA TIL KAUPMANNAHAFNAR 2021 Síðast seldust allar ferðirnar upp 1. ferð: 21.–24. nóvember 3. ferð: 5.- 8. desember 2. ferð: 28. nóv.–1. des Verð: 149.500 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald v/gistingar í einbýli er 29.500 kr. Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting, m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir, kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá. Farþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina og einnig er hægt að greiða hluta ferðar með punktum. Gist er á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri 5* sem er staðsett í miðborg Kaupmannahafnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.