Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 35

Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 ✝ Elís Gunnar Kristjánsson fæddist 8. maí 1926. Hann lést 25. maí 2021. Elís var jarð- sunginn 10. júní 2021. Elsku afi minn. Ég á erfitt með að skilja að þú sért far- inn. Mér finnst skrítið að skrifa til þín í stað þess að hringja í þig eða kíkja í heimsókn. Mikið á ég eftir að sakna þess að geta heimsótt þig, spilað og spjallað. Þú varst alltaf svo hlýr og góður og vildir allt fyrir mig gera. Nú er gott að geta hugsað til baka og yljað sér við góðar minningar. Ég mun sakna þín afi. Þín Þórhildur Anna. Við eigum minningar um brosið bjarta, lífsgleði og marga góða stund, um mann sem átti gott og göfugt hjarta sem gengið hefur á guðs síns fund. Hann afi lifa mun um eilífð alla til æðri heima stíga þetta spor. Og eins og blómin fljótt að frosti falla þau fögur lifna aftur næsta vor. (Guðrún Vagnsdóttir) Elsku afi okkar, takk fyrir allt og allt, þínar, Róbert Elís, Sandra Dís og Thelma Rós. Elís, nafni minn og afi, lést þriðjudaginn 25. maí, nýlega orð- inn 95 ára. Ég á góðar minningar af honum alla tíð, hann var auðvit- að hluti af ótal sumarbústaðar- ferðum, sunnudagskvöldum og jólaboðum. Verkefni mitt eitt sumarið var að mæta til afa og slá hjá honum blettinn. Þá bauð hann mér í kex og te eftir á, síðan þá heimsótti ég hann reglulega. Við áttum margar gæðastundir saman þar sem við spjölluðum um söguna, skóla, borgarpólitík, búskap, bækur, lífið og tilveruna og allt þar á milli. Svo var yfirleitt spilað, kom í ljós að marg- faldur Bridge-meist- ari átti ekki erfitt með Olsen og Rommí en ég stóð betur að velli í póker upp á gamlar mynt- ir. Ég var alltaf vel- kominn til hans og hann var alltaf til staðar fyrir okkur. Afi var sönn fyr- irmynd, þakklátur og örlátur fólk- inu í kringum sig. Hann var eld- klár, umhyggjusamur og leit alltaf björtum augum á lífið. Takk fyrir samfylgdina, elsku afi minn. Nafni þinn, Elís Þór Traustason. Elsku afi, það sem kemur efst í hugann þegar ég hugsa til þín eru öll skiptin þegar þú komst til okk- ar í mat og við spjölluðum saman um boltann. Við ræddum hvernig gengi hjá mér í boltanum og svo auðvitað hvernig þínum uppá- haldsleikmanni, Ronaldo, gengi. Undantekningalaust fórum við niður í sjónvarpsherbergi að horfa á íþróttafréttir og alltaf var það bæði á RÚV og Stöð 2. Í gamla daga var miðvikudagur alltaf minn uppáhaldsdagur, það var vegna þess að við fórum til þín í mat. Þá fengum við krakkarnir að hitta þig og spila. Á hverjum einasta miðvikudegi komum við til þín þangað til við fórum að vera á æfingum á sama tíma en þá breyttum við um takt og þú komst oftar til okkar. Þessari hefð héld- um við þar til undir það síðasta og var alltaf tilhlökkun að sjá þig. Ég gleymi því aldrei hvað þú varst stoltur af mér þegar ég sagði þér að ég hafði spilað minn fyrsta leik með meistaraflokki, ég mun alltaf lifa fyrir þá minningu og ég vona að ég get gert þig svona stoltan aftur í framtíðinni. Ég elska þig, afi. Þinn, Óliver Elís. Að eiga afa í rúmlega fjörutíu ár eru forréttindi. Í dag kveð ég afa Ella með söknuði en þó fyrst og fremst miklu þakklæti og hlýju. Afi var fæddur í torfbæ á Arn- arnúpi í Dýrafirði og ólst þar upp ásamt foreldrum sínum og 8 systkinum fram að fermingaraldri er fjölskyldan flutti í glænýtt steinsteypt hús á jörðinni. Frá- sagnir afa af æskuárunum fyrir vestan voru magnaðar. Hvernig lífið snerist um að færa björg í bú við ysta haf – sjósókn við erfið skil- yrði á veturna og búskap í iðandi náttúru á sumrin. Afi tók virkan þátt í heimilislífinu og var ekki gamall þegar hann fór sinn fyrsta róður á sjó eða sinnti bústörfum á Arnarnúpi. Afi dásamaði Dýra- fjörð. Uppvaxtarár afa á Vestfjörðum hafa án efa mótað hann, enda átti hann síðar eftir að búa fjölskyldu sinni öruggt skjól í fjölmörgum húsum sem hann byggði flest frá grunni. Afi var húsasmíðameistari og löngu eftir að hann lagði ham- arinn á hilluna var hann stórfjöl- skyldunni ráðunautur þegar kom að framkvæmdum. Afi var fag- maður fram í fingurgóma. Fornistekkur og hverfið þar í kring voru athafnasvæði okkar systkinanna þegar við vorum í pössun hjá ömmu Önnu og afa Ella sem krakkar. Sundferðirnar með afa í Breiðholtslaug eru ljós- lifandi í minningunni ásamt öllum skiptunum sem maður fékk að fylgja ömmu í vinnuna á leikskól- ann Bakkaborg í Breiðholti. Þá eru leiðangrar í Breiðholtskjör, bíltúrar í jeppanum hans afa, boltaleikir í garðinum og kassa- bílasmíði fallegar minningar um barnæsku í Breiðholtinu hjá afa og ömmu. Minningar sem ylja og gleðja. Á fullorðinsárum mínum und- um við afi okkur jafnan best við að ræða um stjórnmál. Þá var iðulega farið vítt og breitt yfir hið pólitíska landslag – í fortíð og nútíð. Ég á hægri ásnum en afi á miðjunni – trúr samvinnuhreyfingunni og Framsóknarflokknum. Áratuga- langt samstarf Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins við ríkisstjórnarborðið hefur oftar en ekki verið gæfuríkt, en samband okkar afa við eldhúsborðið í Fit- jasmára var alltaf sveipað gleði og gæfu. Allt fram á síðasta dag fylgdist sá gamli ótrúlega vel með því sem var að gerast í stjórnmál- um og Alþingisrásin oftar en ekki í gangi þegar ég kom við í heim- sókn. Afi var alla tíð duglegur að fylgjast með því sem á dagana dreif hjá mér í leik og starfi. Hann var áhugasamur og lagði alltaf gott eitt til þegar til hans var leit- að. Í ófá skiptin fékk ég að geyma hluti í bílskúrnum í Fitjasmára, en eins og segir einhvers staðar: „Þar sem er hjartarúm, þar er ávallt húsrúm.“ Það átti svo sannarlega við um afa, enda faðmurinn og bíl- skúrinn ávallt opinn. Fyrir rúmum 70 árum felldu afi og amma hugi saman á Reykja- lundi þar sem þau háðu baráttu við berkla. Þau höfðu bæði betur í þeirri baráttu og áttu alla tíð fal- legt hjónaband. Afi missti mikið þegar amma féll frá árið 2003, en það er gott til þess að hugsa að þau sameinist nú aftur á betri stað. Elsku afi minn – hjartans þakk- ir fyrir samfylgdina, samtölin og innilegu faðmlögin. Hvíldu í friði. Þinn Skapti Örn. Stirðnuð er fífilsins brosmilda brá og brostinn er lífsins strengur. Helkaldan grætur hjartað ná því horfinn er góður drengur. Sorgmædd sit við mynd af þér og sárt þig ákaft trega. Herrann helgur gefur mér huggun náðarvega. Tekinn var litríkur fífill frá mér og ferðast einn um sinn. Í kærleiksljósi leita að þér og leyndardóminn finn. Kyrrum klökkum tregarómi kveð nú vininn hljóða. Af sálarþunga úr sorgartómi signi drenginn góða. Farinn ert á friðarströnd frjáls af lífsins þrautum. Styrkir Drottins helga hönd hal á ljóssins brautum. Englar bjartir lýsi leið lúnum ferðalangi. Hefst nú eilíft æviskeið ofar sólargangi. Vonarkraftur vermir trú og viðjar sárar brýtur. Ótrúleg er elska sú sem eilífðinni lýtur. Í Gjafarans milda gæskuhjúpi gróa öll mín sár. Með sólargeisla úr sorgardjúpi sendi þér kveðjutár. (Jóna Rúna Kvaran) Sendi Óla, Önnu Björgu, Atla Þór, Hlyni, Trausta og öllum öðr- um ástvinum Elísar innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Elísar Gunnars Kristjánssonar. Jóhanna B. Magnúsdóttir. Elís Gunnar Kristjánsson ✝ Hans Joensen í Líðini var fæddur í Vági á Suðuroy í Fær- eyjum 19. janúar 1955. Hans lést í Kaupmannahöfn 6. júní 2021. Hann lauk skip- stjórnarprófi frá Föroya Sjó- mannaskúla árið 1979 og var eftir það skipstjóri á færeyskum og grænlenskum togurum fram yfir aldamót. Þegar hann síðan fer í land árið 2003 stofnar hann og gerist fram- kvæmdastjóri fyrir- tækisins Rock Trawldoors í Vági. Hans var mjög virk- ur í félagsmálum í Vági og kom að fjölda framfara- mála byggðarlags- ins. Eftirlifandi eig- inkona hans er Margrét Joensen í Líðini frá Norðfirði. Þau eignuðust dæturnar Karinu, Guðrúnu og Thildu. Útför hans fer fram í Vági á morgun, sunnu- daginn 13. júní 2021. Lítil byggð í Færeyjum, Vágur á Suðuroy, er harmi slegin. Einn besti sonur byggðarinnar er horf- inn á braut. Hans í Líðini var kletturinn í hafinu, allt í öllu í að byggja upp og skapa. Eftir far- sælan skipstjóraferil þar sem hann sótti sjóinn við Færeyjar, Ísland, Grænland og Kanada, vel þekktur af sjómönnum þessara landa, hefst ótrúlegur ferill hans í Vági árið 2003. Í heimi togara um víða veröld eru færeysku Rock- toghlerarnar þekktir (f. Rock trollemmar). Allir sem hafa slak- að Rock-hlerum í hafið vita að á bak við þá stendur nafnið Hans í Líðini, maðurinn sem vissi hvað toghlerar eru mikilvæg tæki til að tryggja að allt annað virki. Þess vegna treysta skipstjórar í fimm heimsálfum Rock-hlerum fram- leiddum í 1.400 manna byggð á syðstu eyju Færeyja. Þó að þetta eitt nægði til að halda nafni Hans í Líðini á lofti fór því víðs fjarri að hann léti það nægja. Hann var virkur þátttak- andi í að gera heilnæmt vatn Suð- uroyar að útflutningsvöru, ein af driffjöðrum þess að byggja í Vági sundhöll sem er ótrúlegt mann- virki og jafnast á við þær bestu á öllum Norðurlöndum byggt fyrir þriðjung af áætluðu kostnaðar- verði með mikilli sjálfboðavinnu og örlátum framlögum margra. Lionsmenn í Lionsklúbbi Suð- uroyar þekkja vel hvernig Hans í Líðini hafði forystu um að um- breyta verðlitlu kjöti í milljóna verðmæti sem gerði klúbbnum kleift að vera sú hjálpandi hönd sem honum er ætlað. Að gera djásn úr skútunni Jóhönnu TG 326, byggðri á Englandi árið 1884, var eitt af verkum hans og mikið stolt. Önnur áhugamál hans voru listmálun, söngur í kór- um og ekki síst sú aldagamla hefð þjóðarinnar að eiga kindur í túni. Það voru okkar forréttindi að fá að kynnast Hans í Líðini. Hann sýndi okkur, eins og íslenskum sjómönnum áður, fram á að þegar Íslendingar og Færeyingar ræða saman þá talar hvor sitt tungu- mál og það „gengur fínt“ eins og hann orðaði það. Að leiðarlokum viljum við þakka þá ógleymanlegu gestrisni sem við nutum á fallegu heimili hans og Margrétar, hans indælu íslensku eiginkonu frá Norðfirði, er við heimsóttum Suðuroy á af- mælishátíð Lionsklúbbs Suður- oyar. Við sendum Margréti, dætrum þeirra Karinu, Guðrúnu og Thildu og öðru venslafólki innilegar samúðarkveðjur. Þeirra missir er mestur en sam- félagið allt í Vági og á Suðuroy syrgir þennan góða dreng. Megi góður Guð varðveita minningu allra þeirra verka sem Hans í Líðini skilur eftir. Ólafur Bjarni Halldórsson og Salbjörg Jósepsdóttir. Hans Joensen í Líðini Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, áður Skólabraut 3, andaðist mánudaginn 7. júní á hjúkrunarheimilinu Seltjörn Seltjarnanesi. Útförin verður auglýst síðar. Blóm og kransar afþakkað. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Barnaspítala Hringsins. Ása Jónsdóttir Guðmundur Hannesson Óli Hilmar Briem Jónsson Kristín Salóme Jónsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR SIGVALDADÓTTIR, Mánatúni 9, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 8. júní. Útför verður gerð frá Háteigskirkju þriðjudaginn 22. júní klukkan 13. Gunnar Heiðar Guðjónsson Anna Guðbjörg Gunnarsd. Daði Björnsson Guðmundur Ingi Gunnarsson Patrizia Cipriani Elín Heiður Gunnarsdóttir Davíð Jens Guðlaugsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBERG ELLERT HARALDSSON, Árskógum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 22. júní klukkan 13. Regína Birkis, Páll Guðbergsson og aðrir aðstandendur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN Á. HJÖRLEIFSSON rafvirki, Garðatorgi 17, Garðabæ, lést á Landspítalanum 10. júní. Útför verður auglýst síðar. Lilja Jónsdóttir Halldóra Jónsdóttir Hjörleifur Már Jónsson Þóra Hafsteinsdóttir Jóna Margrét Jónsdóttir Viktor Sighvatsson Guðbjartur Jónsson Erla Einarsdóttir Kolbrún Jónsdóttir Kristbjörg Lilja Jónsdóttir Helgi Harðarson barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar end- urgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargrein- um til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfar- ardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.