Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
✝
Sveinn Eyjólf-
ur Tryggvason,
oftast kallaður
Eyfi, fæddist á
Sjúkrahúsi Pat-
reksfjarðar 26. maí
1972. Hann lést af
slysförum í Pat-
reksfirði 30. maí
2021.
Foreldrar hans
eru Erla Þorsteins-
dóttir, f. 8.8. 1945,
og Tryggvi Eyjólfsson, f. 19.9.
1927, d. 30.7. 2017. Systkini: 1)
Þorsteinn Gunnar, f. 21.5. 1971.
2) systir samfeðra, Guðrún Bar-
bara, f. 15.2. 1958, maður henn-
ar er Guðjón Sigurbjartsson,
dætur þeirra eru Sigrún Lilja, f.
19.12. 1981, og Dóra Björt, f.
19.6. 1988. 3) systir sammæðra,
Hrefna, f. 9.9. 1964, dóttir henn-
ar og fv. manns hennar Nedim
Duran er Erla Hezal Duran, f.
21.10. 1990.
Eftirlifandi eiginkona Sveins
er Margrét Brynjólfsdóttir frá
Stafholti í Borgarfirði, f. 19.6.
1970. Foreldrar hennar eru Ás-
laug Pálsdóttir, f. 1.5. 1940, og
Brynjólfur Gíslason, f. 26.12.
1938, d. 7.9. 2020. Systkini Mar-
grétar eru: 1) Ásta, f. 5.1. 1965,
maður hennar er Þorsteinn
Jónsson, þau eiga samtals fjögur
börn. 2) Guðný, f. 30.12. 1975,
maður hennar er Stefán Haukur
Erlingsson, þau eiga tvö börn. 3)
bróðir sammæðra, Páll Jökull
Pétursson, f. 18.12. 1959, kona
hann lauk árið 1998, stundaði
hann fullt nám til tæknistúd-
entsprófs.
Árið 1998 réðst hann til starfa
við fyrirtækið Rafskaut á Ísa-
firði og starfaði bæði þar og við
útibúið á Patreksfirði til 2003
þegar hann leysti til sín meist-
araréttindi. Hann vann áfram
fyrir Rafskaut í ýmsum verk-
efnum þar til hann stofnaði eigið
rafvirkja- og rafeindavirkjafyr-
irtæki, Eyfaraf ehf., 2005. Verk-
efnin voru margvísleg og sí-
stækkandi fyrirtækið þjónustaði
stórt svæði á sunnanverðum
Vestfjörðum. Fyrirtæki sitt rak
hann óslitið til dauðadags og við
það störfuðu þrír fastráðnir
starfsmenn þegar mest lét.
Eyjólfur var formaður björg-
unarsveitarinnar Bræðrabands-
ins í Rauðasandshreppi sl. 20 ár,
jafnframt því að vera virkur
liðsmaður i björgunarsveitinni
Blakk á Patreksfirði.
Hann var afar öflugur sig-
maður og stundaði eggjatöku í
Látrabjargi í tæp 30 ár, lengst-
um við hlið vinar síns Kristins
Guðmundssonar og fleiri, bæði
frá sjó og með sigi.
Eyjólfur var menntaður í
svæðisleiðsögn á Vestfjörðum
og eftirsóttur leiðsögumaður
um torfærar slóðir svæðisins
enda afar öruggur, fótviss,
sterkur leiðtogi og sagnamaður.
Þann 8.8. 2008 voru Eyjólfur
og Margrét gefin saman af sr.
Brynjólfi, föður Margrétar, í
Saurbæjarkirkju á Rauðasandi.
Þau stofnuðu heimili í Sigtúni 4
á Patreksfirði með börnum sín-
um sem urðu sjö.
Útför hans fer fram frá Pat-
reksfjarðarkirkju í dag, 12. júní
2021, klukkan 14.
hans er Auður I.
Ottesen, þau eiga
samtals fjögur
börn. Börn Eyjólfs
og Margrétar: 1)
Vilborg Líf, f. 8.10.
2005, 2) Tryggvi
Sveinn, f. 22.7.
2007, 3) Hekla Mar-
grét, f. 16.5. 2011,
og 4) Dalrós Ása
Erla, f. 25.2. 2014.
Börn Margrétar úr
fyrra hjónabandi: 5) Edda Sól, f.
2.7. 1997, 6) Saga, f. 28.1. 2000,
og 7) Halldór Jökull, f. 26.5.
2002.
Sveinn Eyjólfur ólst upp á
Lambavatni á Rauðasandi ásamt
foreldrum og systkinum. Að
loknu grunnskólanámi við
Heimavistarskólann í Örlygs-
höfn árið 1987 nam hann við
Héraðsskólann í Reykholti árin
1987-́89. Þá tók við búfræðinám
við Bændaskólann á Hvanneyri
1989-́91 og síðar nám við grunn-
deild rafiðna 1991-́92 við Iðn-
skólann á Ísafirði. Hann lauk
burtfararprófi í rafvirkjun við
framhaldsdeild rafvirkja í Iðn-
skóla Reykjavíkur árið 1994 og
hlaut viðurkenningu fyrir frá-
bæran námsárangur. Árin 1995-́
97 starfaði hann meðfram námi
við Iðnskólann í Reykjavík við
hlið læriföður síns, Leifs Sig-
urðssonar rafvirkjameistara.
Sveinsprófi í rafvirkjun lauk
hann í júní 1997. Samhliða iðn-
meistaranámi í rafvirkjun, sem
Maí er mánuðurinn þar sem
fegurð lífsins verður svo undurtær
á Lambavatni.
Sóleyjar og fíflar spretta upp úr
jörð um leið og kartöflur fara í
mold. Lömbin trítla um tún í fylgd
mæðra sinna, og kunnugleg hljóð
kríu, lóms og æðarfugls eru kær-
komin sönnun þess að vorið sé
komið með birtu og yl.
Og maí er líka mánuðurinn þar
sem fyrir hálfri öld fæddust tveir
langþráðir ættarlaukar á Lamba-
vatni. Þessir áþekku og samrýndu
glókollar eru þó ekki tvíburar eins
og sumir halda. Á milli Lamba-
vatnsbræðranna Steina og Eyfa
eru nefnilega heilir 370 dagar.
Atorkusamir ungir bræður fara
hratt yfir og hafa strax ýmsu að
sinna. Jafnvel helst til of mörgu
finnst eldri systur þeirra sem má
hafa sig alla við að elta uppi sína
fótfráu bræður sem þykja snemma
með kraftmestu smábörnum sveit-
arinnar. Náttúran, skepnurnar,
fuglarnir og vélarnar fanga fljótt
alla athygli. Það þarf að máta sig
við öll bústörf þótt ekki séu pilt-
arnir háir í loftinu.
Eftir því sem árin líða fer
Sveinn Eyjólfur, sá yngri, að auka
hraðann og finna þörf til að taka
forystuna án þess þó að vilja stinga
fólkið sitt af. Ekki er annað hægt
en fylgja honum eftir, smitast af
einlægum áhuganum á öllu sem
fyrir augu og eyru ber og læra að
sjá ljósið. Strax pínulítill má hann
til með að sýna öðrum það fallega
sem hann hefur uppgötvað svo
fleiri megi njóta. Ljósmynd í litlum
ramma af svipmiklu sveinbarni í
síðum skírnarkjól með einstaklega
breitt bros stendur í hillu með öðr-
um ljósmyndum. Þegar sól skín
skært á suðurglugga tekur þriggja
ára snáðinn myndina af sjálfum
sér úr hillunni og setur í glugga-
kistuna. „Af hverju ertu að fara
með myndina af sjálfum þér út í
glugga Eyfi minn?“ spyr mamma.
„Af því ég vil að litla barnið sjái sól-
ina“.
Og þetta fallega guðsbarn átti
svo sannarlega eftir að sjá sólina
og endurvarpa birtu hennar á allt
og alla. Í maí er fegurð lífsins svo
undurtær á Lambavatni þegar
náttúran vaknar eftir veturinn og
lífið fer á stjá. Aldrei fyrr hefur
myrkur hellst yfir í maí og sólin
horfið eins snöggt og nú. Við
stöndum máttvana í þessu þykka
myrkri og syrgjum einstakan son
og bróður sem var hrifsaður frá
okkur á einu augabragði. Það eina
sem við getum gert er að þakka
fyrir að hafa átt þennan dásamlega
dreng í 49 ár og mega fylgjast með
honum lifa áfram í fallegu vel
gerðu börnunum sínum sem sann-
arlega áttu „besta pabba í öllum
heimi“ eins og þau segja sjálf.
Hjartans Eyfi okkar hvílir nú í
bjartasta ljósi allra ljósa. Megi það
umvefja hann um alla eilífð og lýsa
okkur leið út úr myrkrinu svarta
svo öll börnin stór og smá geti aft-
ur séð sólina.
Mamma, Hrefna og
Þorsteinn (Steini).
Ég hitti Svein Eyjólf „Eyfa“ í
fyrsta sinn 1983 þegar við Guðrún
Barbara Tryggvadóttir, konan
mín og hálfsystir hans, komum í
fyrsta sinn saman að Lambavatni
á Rauðasandi með Sigrúnu Lilju
dóttur okkar tveggja ára að heim-
sækja Tryggva pabba Guðrúnar,
Erlu, Hrefnu, Þorstein og Eyjólf
hálfbræður Guðrúnar. Eyfi var þá
11 ára. Það var gott, áhugavert og
skemmtilegt að koma að Lamba-
vatni enda tengslin sterk, heimilis-
fólkið fjölfrótt, náttúran fögur og
margt hægt að gera og upplifa,
enda urðu heimsóknirnar reglu-
legar næstu árin.
Það leyndi sér ekki að Eyfi var
jákvæður, bjartsýnn, kraftmikill,
óhræddur og næm mannvera sem
lagði ævinlega gott til málanna og
sleppti því neikvæða, eiginleikar
sem nýtast vel í flestum aðstæðum
og það gerðu þeir svo sannarlega
kringum Eyfa.
Eftir grunnskóla í sveitinni fóru
þeir Eyfi og Steini í Búnaðarskól-
ann á Hvanneyri. Síðar fór Eyfi í
rafvirkjanám til Reykjavíkur. Að
námi loknu réð Eyfi sig sem raf-
virkja á Patreksfirði. Meðfram
vinnunni stundaði Eyfi skokk með
félögum á Patreksfirði. Það var að
vonum því hann var eins og fleiri
Vestfirðingar léttur á sér og ein-
staklega úthaldsgóður í langhlaup-
um.
Skokkið á Patreksfirði var ekki
bara gott líkamlega og andlega,
það varð afdrifaríkt fyrir Eyfa.
Meðal driffjaðra í hópnum var
nefnilega verðandi konan hans hún
Margrét Brynjólfsdóttir sjúkra-
þjálfari. Þau vissu það ekki þá, en
urðu fljótt góðir kunningjar. Síðar
þegar aðstæður höfðu breyst í lífi
beggja þurfti Magga á þjónustu
rafvirkja að halda og leitaði eðli-
lega til Eyfa sem veitti hana glað-
ur, fúslega eins og ævinlega.
Eftir nánari kynni fóru þau
saman í ævintýraferð til Egypta-
lands. Hápunktur ferðarinnar var
trúlofun þeirra í heillandi fornum
pýramída!
Trúlofunin var heillaskref fyrir
þau bæði. Margrét átti fyrir þrjú
mannvænleg börn, Eddu, Sögu og
Halldór. Á næstu árum komu
börnin þeirra frábæru, Vilborg,
Tryggvi, Hekla og Dalrós, hvert
öðru myndarlegra og efnilegra.
Foreldrarnir gátu ekki verið
heppnari með börn og börnin gátu
ekki verið heppnari með foreldra.
Eyfa farnaðist vel atvinnulega
enda duglegur og ósérhlífinn. Eftir
nokkurra ára vinnu hjá öðrum
stofnaði hann „Eyfaraf“ sem dafn-
aði vel næstu árin með góðu sam-
starfsfólki og nægri eftirspurn
enda uppgangur á Vestfjörðum.
Meðfram tók Eyfi þátt í bú-
skapnum á Lambavatni. Stundum
urðu dagarnir langir og lítið sofið
sumar nætur. Eyfi var svefnléttur
og gerði allt með bros á vör.
Eyfi var öflugur félagi í Slysa-
varnadeildinni Bræðrabandinu og
seig oft með sveitinni í Látrabjarg.
Þá leiðsagði Eyfi gönguhópum um
hinn fagra Rauðasand og ná-
grenni, meðal annars Látrabjarg,
Sjöundaá, Skor og surtarbrands-
námuna undir Stálfjalli.
Við Guðrún Barbara og fjöl-
skylda þökkum góða samfylgd og
vottum Margréti og börnunum,
stórfjölskyldunni allri og þeim fjöl-
mörgu sem tengdust Eyfa, djúpa
samúð við fráfall frábærs manns.
Hans verður sárt saknað en minn-
ingin lifir.
Guðjón Sigurbjartsson og
Guðrún Barbara
Tryggvadóttir.
„Erla, viltu koma og fá lýsi?“
Með þessum orðum vakti Eyfi litla
úfna systurdóttur sína hvern
morgun í mörg ár. Á meðan
mamman svaf aðeins lengur skott-
uðust þau tvö fram í eldhús og
fengu sér lýsi eins og það væri helg
athöfn. Þegar morgunverkum var
lokið fékk sú úfna far með frænda
sínum í gula bílnum alla leið úr
Vesturbæ Reykjavíkur á leikskól-
ann í Laugardal. Stundum voru
þau komin á undan starfsfólki og
það var eiginlega skemmtilegast.
Þá biðu þau í bílnum og bjuggu sér
til litla og ófyrirsjáanlega spennu-
sögu. Þótt vetur væri slökktu þau á
vélinni í bílnum líkt og stóð að ætti
að gera á skilti fyrir framan leik-
skólann. Svo byrjaði samtalið milli
blíða brosmilda frændans og leik-
skólastelpunnar: „Hvenær koma
þær? Hver skyldi mæta fyrst?
Ætli þær verði ekki undrandi að
sjá að við erum komin á undan?“
Þetta voru stuttar spennusögur,
því svo opnaði leikskólinn og þau
tvö héldu hvort í sína áttina. Mikið
ósköp leit sú stutta upp til Eyfa
frænda síns. Hún fékk að potast
með honum í gula bílnum hingað
og þangað meðan hann var í námi
og vinnu í borginni og aldrei nokk-
urn tímann leið henni öðruvísi en
að hún ætti fullt erindi með honum
hvert sem hann fór. Á sumrin
dvaldi hún í sveitinni hjá ömmu og
afa þar sem Eyfi var alla tíð með
annan fótinn. Þegar hann kom yfir
fjallið var líkt og sólin kæmi upp.
Hann var nefnilega sem sól í lífi
allra sem kynntust honum og
breiddi gleði yfir þá sem á vegi
hans urðu. Gleðin var honum
áreynslulaus og einlæg. Það var
bara ekki hægt að vera lengi í
vondu skapi ef hann var nálægt,
því þessi Eyfagleði var svo einstök.
Hann hafði lag á að sjá hið góða í
fólki og gera gott úr erfiðum að-
stæðum. Það var líka sama hvert
verkið var, það varð skemmtilegra
og áhugaverðara með Eyfa. Um
leið var hann vísindalega þenkj-
andi, vildi þekkja staðreyndir áður
en hann myndaði sér skoðun og
kaus að gaspra ekki um mál sem
hann þekkti ekki vel til.
Að ætla að lýsa Eyfa í fáum orð-
um, þessu sterka og mótandi nátt-
úruafli, er ekki vinnandi vegur.
Hann veitti frænku sinni öryggis-
kennd í hvert sinn sem hún leitaði
ráða hjá honum. Og þau skiptin
hafa aldeilis verið ófá þau síðast-
liðin þrjú ár sem úfna systurdótt-
irin hefur búið á Lambavatni. Allt-
af hægt að leita til Eyfa sem kom
út í sveit þegar á þurfti að halda
eða veitti ígrundaða símaráðgjöf á
meðan mátti heyra hann vinna af
kappi í sínum störfum. Hann hafði
svar við öllu, lausnamiðaður og ör-
látur á tíma sinn og visku, ósérhlíf-
inn, umhyggjusamur og virkilega
fyndinn. Eftir situr lítil úfin stelpa
sem saknar frænda síns meira en
orð fá lýst og veit að hún mun aldr-
ei kynnast manneskju eins og
Eyfa.
Á bernskuárunum sló Eyfi tón-
inn fyrir daginn svo meira að segja
ein skeið af lýsi varð spennandi.
Nú er komið að okkur sem eftir
stöndum að breiða út þessa lífssýn.
Ég skal gera mitt besta við að leið-
beina litla syni mínum og öðru
samferðarfólki við að lifa í ljósinu
eins og elsku Eyfi minn.
Erla Hezal.
Elsku Eyfi okkar, dásamlegi,
fallegi og góði frændi okkar er far-
inn frá okkur allt allt of fljótt.
Skarðið sem Eyfi skilur eftir sig
ristir djúpt. Þetta er harmur fyrir
samfélagið allt, fyrir vini, fjölskyld-
una. Sérstaklega þó fyrir elsku
Möggu okkar og börnin sjö. Fyrir
mömmu okkar og systkinin sem
missa yndislegan bróður sinn.
Áfallið er mikið og skrefin þung.
Því ná engin orð almennilega utan
um hve mikill missir þetta er. Eftir
situr tómleiki og margar spurning-
ar.
Stundum er sagt að fallegustu
sálirnar hafi stærri erindagjörðum
að sinna handan okkar tilveru og á
stundu sem þessari yljar það.
Hann Eyfi var jú algjörlega ein-
stök mannvera. Tær og björt sál
sem lýsti upp hversdag okkar
hinna. Hlýr og einlægur með hlát-
ur og bros sem gat hreyft við jafn-
vel köldustu hjörtum. Ævintýra-
gjarn, skemmtilegur, sagnamaður
mikill eins og afi. Hjálpsamur með
eindæmum, góður við alla, vinur
vina sinna. Kannski var verkefn-
unum bara lokið hér. Búið að koma
glæsilegum og dásamlegum börn-
um á legg, byggja brýr milli fólks.
Skapa svo margt gott og ekki síst
margar yndislegar stundir. Eyfi
lifði lífinu sannarlega lifandi og af
fullum krafti. Fulla ferð áfram,
ekkert stopp!
Í heimsókn einni á Patreksfjörð
fannst honum það ágætisráðstöfun
á tíma að fara, þegar gengið var
fram yfir miðnætti, með gesti sín-
um frænku sinni niður á höfn til að
horfa á skipin landa fengnum, jafn-
vel eftir langan vinnudag og mikið
fjölskylduumstang. Það væri jú
svo skemmtilegt að verða vitni að
öllum þessum fisktegundum og
skoða mismunandi útlit þeirra og
munstur, stærð og gerð. Fá jafnvel
eins og eina löngu og gera svo að
henni í eldhúsinu þegar langt var
liðið á nóttina. Fjörið og upplifunin
í fyrirrúmi. Ekkert nema núið.
Minningin birtir áfram upp
skammdegið. Eyfi er enn með okk-
ur. Í hjörtum okkar, allt í kringum
okkur í afrekum sínum og anda.
Það verður skrítið að heim-
sækja ættaróðalið á Rauðasandi og
hafa engan Eyfa og engan afa
heim að sækja. En við eigum hvort
annað sem eftir lifum til að halla
okkur upp að. Hlæja saman, gráta
saman. Segja sögur af þínu ævin-
týralega lífi þótt allt of stutt hafi
verið, elsku Eyfi. Þú ert okkur öll-
um innblástur. Nýtum tímann sem
við höfum vel, lifum eins vel og þú.
Elsku Margrét okkar og öll fal-
legu börnin ykkar sjö, megi allir
heimsins og jarðarinnar góðu
straumar og vættir styrkja ykkur
á þessum óbærilegu tímum.
Elsku Eyfi okkar. Ljósið þitt
mun ávallt vera með okkur. Minn-
ingin lifir í hjörtum okkar og allt
um kring. Knúsaðu afa fyrir okkur.
Sigrún Lilja Guðjóns-
dóttir og Dóra Björt Guð-
jónsdóttir.
Lítill drengur ljós og fagur
kemur hlaupandi á móti mér þegar
ég kem í heimsókn á Lambavatn.
Það er bara ár á milli þeirra
bræðranna og þegar þeir voru litlir
var oft líf í tuskunum. Eitt sinn
leiddist þeim hvað frænka svaf
lengi svo þeir gripu til sinna ráða,
skutluðu í mig nokkrum pullum úr
sófanum og hlógu dátt.
Eyfi frændi minn var glókollur
og alltaf brosandi og glaður. Brosið
átti eftir að fylgja honum alla tíð.
Bræðurnir uxu úr grasi og voru
dugnaðardrengir. Seinna völdu
þeir hvor sitt fagið, Eyfi fór í raf-
virkjun en Steini tók vélvirkjun.
Eyfi frændi stofnaði seinna sitt
eigið fyrirtæki á Patró, Eyfaraf,
sem blómstraði og dafnaði enda
eftirsóttur og allir vildu fá hann í
verkið.
Eitt sinn man ég að Erla systir
sagði mér frá bónda á Barðaströnd
sem vildi fá Eyfa en þá var hann
upptekinn. Erla sagði geturðu ekki
fengið einhvern annan? Þá sagði
bóndinn: Ef ég fæ ekki hann Eyfa
þá vil ég engan.
Eyfi hitti ástina sína líka á Pat-
reksfirði hana Möggu og var það
mikil gæfa og eignuðust þau 4
mjög mannvænleg börn. Þau eru
öll bráðefnileg, spila á hljóðfæri og
stunda íþróttir af kappi. Það hefur
verið svo yndislegt að fá að fylgjast
með þeim þroskast og dafna og hef
ég oft hugsað hvað það er yndis-
legt þegar lífið brosir við manni.
Eyfi var mikið náttúrubarn og
fór oft í ferðir með ferðamenn um
þekktar þjóðleiðir milli byggða
fyrir vestan. Hann seig líka í björg
og var óhræddur að takast á við
erfiðar áskoranir. Það var svo gott
að vera í návist Eyfa, hann fann
svör við öllu og hvatti mann áfram.
Hann trúði á hið góða og tók að sér
hvert verkefnið sem lífið bar hon-
um. Börnum sínum var hann ein-
stakur faðir og sinnti þeim af alúð
og nærgætni.
Eyfi hafði líka áhuga á því sem
maður var að fást við og vildi fá að
vita hvernig gengi.
Man eftir yndislegum stundum
úr fermingunni hennar Vilborgar
Lífar, þá fór ég vestur og Eyfi fékk
gistingu fyrir mig á Patró. Hugsaði
fyrir öllu og mundi eftir öllum.
Þessi stund lifir í minningunni,
Eyfi og Magga svo stolt af dótt-
urinni og kirkjan full af prúðbún-
um veislugestum. Gleði og ham-
ingja.
Þessi stund verður geymd í
minningunni og óskandi að þær
hefðu verið fleiri.
Það eru fáir sem eru jafnfjöl-
hæfir og hann Eyfi frændi minn.
Hann gat lagt rafmagn hvort sem
er í hús eða skip. Gerði við alls kon-
ar tæki og smíðaði hús. Leysti
hvers manns vanda með bros á
vör.
Hittumst síðast þegar Eyfi kom
með Erlu systur suður í smá heim-
sókn og daginn eftir var farið að
skoða gosið.
Sveinn Eyjólfur
Tryggvason
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRA GUÐRÚN ÓSKARSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík
31. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Hjartnæmar þakkir frá fjölskyldunni fær starfsfólk Sóltúns fyrir
innilega alúð og umhyggju.
Einar Baldvinsson
Óskar Einarsson
Baldvin Einarsson Lóa Steinunn Kristjánsdóttir
Reynir Einarsson Brynja Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn