Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ÆTLA RÉTT AÐ VONA AÐ ÞETTA SÉ
EKKI GLASIÐ SEM ÞÚ GEYMIR TENNURNAR
Í Á NÆTURNAR!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fagna samverunni.
ÞAÐ ER SAGT AÐ ALLT SÉ
ÞEGAR ÞRENNT ER. JÆJA,
ÞAÐ ER MÁNUDAGUR …
ÞAÐ ER
KALT…
ÞAÐ ER BARA TIL
KOFFEINLAUST
KAFFI
OG ÞAR
KOM ÞAÐ
ÞAÐ ÚTSKÝRIR EKKI
HANA ÖMMU ÞÍNA!
PABBI, HÉR STENDUR AÐ VÍKINGAR
SÉU FALLEGTOG GOTT FÓLK SEM
GUÐINNÓÐINN SKAPAÐI
ER ÞAÐ
SATT?
JÁ, EN …
JÆJA, HVAR ER KVIKNAÐ Í?
ÞESSI ÖKUFERÐ ÁTTI EFTIR AÐ KOSTA
BIRGI.
ÉG BORÐAÐI
TAÍLENSKAN
hjá sýslumanninum á Ísafirði og
síðar í Reykjavík, dóttir Jóns Jóns-
sonar, leigubílstjóra frá Hunku-
bökkum á Síðu, f. 9.11. 1896, d.
21.3. 1965, og eiginkonu hans Ás-
bjargar Gestsdóttur, húsmóður og
starfsstúlku, f. 10.2. 1909, d. 16.9.
1980. Börn Péturs og Gretu eru 1)
Lára Pétursdóttir, f. 31.1. 1968,
verslunarmaður í Reykjavík. Hún
er gift Burkna Aðalsteinssyni
prentara. Þau búa í Reykjavík. Þau
eiga hvort um sig tvö börn frá fyrri
hjónaböndum. 2) Bjarni Pétursson,
f. 26.11. 1969, rafiðnfræðingur hjá
Orkubúi Vestfjarða. Hann bý í Bol-
ungarvík og á þrjú börn. Barnabörn
Péturs og Gretu eru fimm og
barnabarnabörnin þrjú.
Systkini Péturs eru Halldóra,
bóndi á Kvígindisfelli í Tálknafirði,
f. 16.6. 1935, d. 27.4. 2012, og
Birna Jónsdóttir, bóndi á Sveins-
eyri í Tálknafirði, f. 3.1. 1949.
Foreldrar Péturs eru Bjarni Pét-
ursson, sjómaður á Bíldudal, f. 27.1.
1909, d. 17.2. 1943, og eiginkona
hans, Hólmfríður Jónsdóttir, hús-
móðir og verkakona á Bíldudal og í
Tálknafirði, f. 3.2. 1911, d. 19.1.
2010. Stjúpfaðir Péturs er Jón
Guðmundsson, smiður, sjómaður
og bóndi á Sveinseyri, f. 14.4. 1905,
d. 13.7. 1994.
Pétur
Bjarnason
Halla Ingveldur
Þorkelsdóttir
húsfreyja á Kvígindisfelli í
Tálknafirði
Magnús Gíslason
bóndi á Kvígindisfelli í
Tálknafirði
Halldóra Bjarney Magnúsdóttir
verkakona og húsfreyja á Bíldudal
Níels Jón Sigurðsson
verslunarmaður og verkstjóri hjá
P.J. Thorsteinsson á Bíldudal
Hólmfríður Jónsdóttir
húsfreyja og verkakona á
Bíldudal og á Sveinseyri í
Tálknafirði
Guðrún Níelsdóttir
húsfreyja á Hofsstöðum í
Gufudal
Sigurður Jónsson
bóndi á Hofsstöðum í
Gufudal, síðar á Bíldudal
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Ísafirði, síðar á
Bíldudal
Kristján Kristjánsson
skipasmiður og hagyrðingur
á Ísafirði, síðar á Bíldudal
Valgerður Kristjánsdóttir
húsfreyja á Bíldudal
Pétur Bjarnason
skipstjóri á Bíldudal
Ólína Ólafsdóttir
húsfreyja á Hærra-Vaðli á
Barðaströnd og Dufansdal
Bjarni Pétursson
bóndi á Brjánslæk og Hærra-Vaðli
á Barðaströnd og í Dufansdal
Úr frændgarði Péturs Bjarnasonar
Bjarni Pétursson
sjómaður á Bíldudal
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Vopn í hendi vera kann.
Vel í eldstó logar hann.
Eldur líka er með sann.
Ástir við menn kenndu þann.
Eysteinn Pétursson svarar:
Njáll víst aldrei brandi brá.
Ég brand í arni loga sá.
Brandur eldur er með sann.
Ástar-Brand ég nefna kann.
Guðrún B. á þessa lausn:
Brandur sverð er svakalegt.
Sviðinn brandur lá í stó.
Bergþóra lést í brandi tregt.
Brandur Ástar gjarnan hló.
Bergur Torfason frá Felli leysir
gátuna svona:
Brandur í hendi bana vann,
brandur í eldstó loga kann,
brandur er eldur og með sann,
Ástarbrand, þekktan Dalamann.
Þá er það lausnin frá Helga R.
Einarssyni:
Brugðu kappar bröndum hér.
Brand í arininn ég lét.
Brandur nafn á eldi er.
Ástar-Brandur var og hét. (Guðbrandur)
Þessi er skýring Guðmundar á
gátunni:
Biturt vopn er brandurinn.
Brandur glæða loga kann.
Orðið brand um eld svo finn.
Ástar-Brand menn nefndu þann.
Þá er limra:
Fótfimi rómuð hans Refs er,
en raunar mér stórum til efs er,
að framar hann standi
Stuðlakots-Brandi,
sem stekkur oft upp á nef sér.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Tíminn líður furðu fljótt,
fyrr en varir kemur nótt,
hvort góður dagur gefist mér,
gáta sú mér hulin er:
x
Siðleysingja hýsir hann.
Hringsnúast oft sé ég þann.
Nafni þessu nefni mann.
Nánast óður vera kann.
Gömul vísa í lokin:
Þó mig treginn þjái síst
þess ég feginn beiði
að sjórinn deyi og verði víst
Vestmanneyja leiði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Brandur af brandi brennur