Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Litirnir eru fjölmargir
og hægt að fá
sérblandaða hjá okkur.
HÁGÆÐA
VIÐARVÖRN FRÁ
SLIPPFÉLAGINU
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Allra síðasta veiðiferðin, framhaldsmynd hinnar vinsælu gamanmyndar
Síðasta veiðiferðin, er nú í tökum í Laxá í Aðaldal og gengur mikið á, eins
og sjá má af meðfylgjandi ljósmyndum.
Leikstjórar myndarinnar, líkt og þeirrar fyrri, eru Örn Marinó Arnar-
son og Þorkell Harðarson sem framleiða hana einnig og skrifuðu hand-
ritið og kvikmyndatökustjóri er Bergsteinn Björgúlfsson, jafnan kallaður
Besti.
Með aðalhlutverk fara Þorsteinn Bachmann, Sigurður Sigurjónsson,
Hilmir Snær Guðnason, Halldór Gylfason, Þröstur Leó Gunnarsson, Sig-
urður Þór Óskarsson, Jóhann Sigurðarson, Gunnar Helgason, Halldóra
Geirharðsdóttir, Ylfa Marin Haraldsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir
og eru aðalleikarar því að mestu leyti þeir sömu og í fyrri mynd.
Hamagangur Hilmir Snær Guðnason kemur út úr partíbílnum með látum. Bergsteinn Björgúlfs-
son kvikmyndatökustjóri myndar hamaganginn og ekki annað að sjá en að hann hafi gaman af.
Flugnager Bergsteinn (lengst til hægri) leiðbeinir sínu fólki við tökur í vikunni. Greinarnar á
höfði fólks eru til að losna við flugurnar sem mikið var af þennan dag í Aðaldal.
Allra síðasta veiði-
ferðin? Líklega ekki
- Tökur hafnar við Laxá í Aðaldal á
framhaldi Síðustu veiðiferðarinnar
Ljósmyndir/Ólafur Jónasson
Einbeittir Leikararnir Halldór Gylfason, Hilmir Snær Guðnason og Gunnar Helgason hlusta í andakt á Bergstein
Björgúlfsson kvikmyndatökustjóra. Ekki fylgir sögunni um hvað Bergsteinn var að tala en mögulega var það lax.
Drekkutími Sigurður Sigurjónsson, Hilmir, Halldór, Þor-
steinn Bachmann og Jóhann Sigurðarson fá sér hressingu.
Vangaveltur Guðmundur Garðarsson, Örn Marinó Arnarson,
Þorkell Harðarson og Bergsteinn íhuga stöðu mála.
Læti Hilmir Snær, Halldór Gylfason og Þröstur Leó Gunn-
arsson í einhvers konar átökum, að því er virðist.
Sýning skáldsins og myndlistar-
mannsins Evu Schram, Orta III,
verður opnuð í Ramskram Gallery
að Njálsgötu 49 í Reykjavík í dag.
Verður þar flutt þriðja og síðasta
erindi sjónljóðsins Ortu, eins og
segir í tilkynningu. Fyrsta erindi
sjónljóðsins var flutt í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur sem útskriftar-
verk Evu frá Ljósmyndaskólanum
og annað erindið á einkasýningu
hennar í Núllinu Gallery undir
Bankastræti. Þriðja erindið sam-
anstendur af níu myndum og einnig
vídeóverki.
„Í Ortu dvelur Eva á mörkum
ljóð- og myndlistar. Hún er skuld-
bundin tveimur listformum sem
eiga dulúðina sameiginlega. Feg-
urð ljóðsins felst í hinu óorðaða og
óútskýrða og hið sama gildir um
myndlistina. Orta er persónulegt
verk sem segir sögu án þess styðja
sig við línulega frásögn. Efniviður-
inn er ekki síst samband Evu við
föður sinn. Bæði standa feðginin á
tímamótum. Eva kveður föður sinn
sem er að glata minninu og hverfa
inn í eigin huga en sjálfur kveður
hann lífið sem hann áður þekkti og
skildi,“ segir í tilkynningu og að
samtímis séu Evu hugleikin tengsl-
in milli kynslóða, hvað flétti þær
saman og hvað togi þær í sundur.
„Hvernig mætast þær og hvernig
kveðjast þær. Það er ekki hægt að
fyllilega skilja tengslin eða útskýra
tímamótin, en það er hægt að
skynja þau. Skynjunin kemur á
undan skilningnum, og skynjunin
lifir skilninginn. Verkið er leit eftir
því að sættast við missinn og um-
komuleysið sem felst í nándinni og
ástinni. Við varðveitum tilfinningar
okkar ekki með því að skilgreina
þær, heldur með því að finna fyrir
þeim. Öll sem elska þurfa að standa
á tímamótum, og þurfa einhvern
tímann að vera í kafaldsbyl og
þoku. Það er áttleysið sem gerir
hlutskipti manneskjunnar ljóðrænt.
Hver einasta manneskja er ljóð,“
segir í tilkynningunni og að Eva
sæki innblástur í kveðskap Steins
Steinars.
Opnunin verður í dag kl. 17.
Eva Schram sýnir loka-
erindi Ortu í Ramskram
Í Ramskram Eva Schram sýnir
lokaerindi sjónljóðsins Ortu.