Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
PERFECTION
GLÆSILEG
HÁGÆÐA
GLASALÍNA
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Þekkingarfyrirtæki í byggingariðnaði frá 1986Eykt ehf. / Stórhöfða 34–40 / 110 Reykjavík / Sími 595 4400 / eykt.is
Vegnamikilla verkefna framundan vill Eykt ehf. ráða verkstjóra með reynslu
af uppsteypu til starfa við stjórnun framkvæmda á vegum félagsins.
Helstu verkefni:
• Dagleg verkstjórn og skipulag verkefna á byggingasvæðumEyktar
• Starfsmannahald og skipulag aðfanga í samráði við verkefnisstjóra
• Eftirfylgni með gæðakerfi Eyktar
Menntun og hæfni:
• Hæfni til samvinnu og jákvæðra samskipta
• Meistararéttindi í húsasmíði kostur
• Skipulag og agi í vinnubrögðum
Tekið er við umsóknummeð upplýsingum ummenntun
og starfsreynslu á skrifstofu Eyktar á Stórhöfða 34–40
eðameð tölvupósti á palld@eykt.is. Upplýsingar um
starfið veitir Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri,
á skrifstofu Eyktar.
Hlutverk Eyktar er að byggja vönduð mannvirki
sem umgjörð um daglegt líf og atvinnurekstur.
Uppsteypa
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Biðin eftir góðri aðstöðu hefur ver-
ið löng og því erum við himinlifandi
að hafa fengið húsið til afnota,“ seg-
ir Tryggvi Jóhann Heimisson, for-
maður Siglingaklúbbsins Nökkva,
en klúbburinn hefur fengið til um-
ráða nýtt og glæsilegt aðstöðuhús
við Pollinn á Akureyri. Hann segir
siglingafólk himinlifandi með húsið
og það muni verða algjör bylting
fyrir starfsemi klúbbsins sem nú
horfi fram á bjarta framtíð.
Húsið sem Nökkvi fær nú til um-
ráða er um 400 fermetrar að gólf-
leti. Stærstur hluti þess er bátaskýli
með góðri aðstöðu til viðhalds og
endurbóta á bátum. Einnig eru í
húsinu fyrsta flokks búningsklefar
með sturtum og þar er einnig að
finna þurrkherbergi fyrir blautbún-
inga.
Nýja húsið mun nýtast vel
Tryggvi segir að nýja húsið muni
nýtast vel og sé þá sama hvort horft
sé til aðstöðu fyrir starfsfólk
klúbbsins, til búningaskipta, fé-
lagsstarfs eða geymslu og viðgerða.
„Við erum að fara úr tæplega 100
fermetra húsnæði yfir í rúmlega 400
fermetra, sem fyrri áfangi þessa
verks er. Þessi umskipti gera okkur
kleift að geta loksins starfað á árs-
grundvelli, en slíkt hefur fram til
þessa ekki verið í boði,“ segir hann.
Nú verði hægt að sigla frá vori og
fram eftir hausti á kænum og kajak
og róðrarbrettafólk geti siglt árið
um kring. Viðhald færist yfir á vetr-
artíma þannig að þjálfarar og aðrir
starfsmenn geta einbeitt sér að sigl-
ingum yfir sumarið en þurftu áður
að sinna viðhaldi á vorin og fram á
sumar.
Tryggvi segir að mikill áhugi sé á
siglingum og sjósporti á Akureyri
og viðbúið að hann aukist enn frek-
ar á komandi árum í takt við bætta
aðstöðu. Barnanámskeið félagsins
hafa alltaf verið vel sótt, færri kom-
ist að en vilja fyrri hluta sumars.
Tryggvi segir að nú megi gera
ráð fyrir að ýmsir hópar siglinga-
manna sem hafi verið dreifðir um
fjörðinn setji upp bækistöð við nýja
Nökkvahúsið þar sem til boða
stendur alvöru aðstaða. Starfsemi
félagsins mun því án efa aukast og
einnig gæði starfsins.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Á leið í róður Frændsystkinin Theodór og Dagmey hafa gaman af sigl-
ingum og eru á leið í kajakróður full tilhlökkunar. Nýja húsið sést í baksýn.
Nökkvi fær nýtt hús
- Algjör bylting fyrir starfsemina