Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira VIÐ GERUM VIÐ allar tegundir síma, spjaldtölva, tölva og dróna Körfur frá 25.000 kr. Startpakkar frá 5.500 kr. og margt fleira Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is Allt fyrir frisbígolf Töskur frá 3.990 kr. Diskar frá 2.500 kr. Fjarlægðarmælir 24.990 kr. Sigurður Halldórsson, arkitekt hjá Glámu Kím, segir að við endurgerð gamla Héðinshússins hafi hin merka iðnsaga hússins verið höfð í heiðri. CenterHótel Grandi var opnað í Héðinshúsinu í byrjun mánaðar. Þar eru 195 herbergi og veitingahús. Gláma Kím Arkitektar eru aðal- hönnuðir verkefnisins en breska hönnunarstofan I am London hann- aði innréttingar í veitingahúsið Héðinn Kitchen & Bar. „Við lögðum áherslu á að varð- veita stóru rýmin á jarðhæð en þar voru verksmiðjusalir Héðins. Við reyndum að halda lofthæð og eins mörgum upprunalegum hlutum og kostur var og gefa gestum þannig tilfinningu fyrir því sem var iðn- aðarhúsnæði stórfyrirtækis á ís- lenskan mælikvarða.“ Flísarnar fá að njóta sín Sigurður rifjar svo upp að Héðinn hafi haft umboð fyrir flísar frá Hauganesi í Svíþjóð og þær hafi verið áberandi í gömlu byggingunni. Með það í huga hafi málning verið hreinsuð af flísum á stigagöngum og móttöku svo aftur sjáist í flísarnar. Varðandi efnisval segir Sigurður að tekið hafi verið mið af ljós- myndum af virðulegum skrifstofum Héðins á 20. öld. Hnota hafi orðið fyrir valinu og eru innréttingar smíðaðar af fyrirtækinu YABIMO og húsgögnin keypt af 366 Consept. Þá er appelsínuguli liturinn í við- vörunarskiltum gömlu verksmiðj- unnar notaður í lagnabakka, í línur yfir veggfóðri á göngum og í her- bergjum. Þá eru loftræstirör og ann- ar kerfisbúnaður sýnilegur til sam- ræmis við hrátt útlitið í smiðjunni. Látúnið setur svip á salinn Veitingahúsið er í gamla véla- salnum og vitna burðarsúlur um hið forna hlutverk. Lofthæð er óvenju- mikil og setur gríðarstór ljósakróna úr látúni mikinn svip á staðinn. Að sögn Sigurðar verða munir fengnir að láni frá vélsmiðjunni Héðni og hafðir til sýnis. Útkoman vitni um tækifærin sem felist í umbreytingu og endurnýtingu eldri húsa. Í gamla vélasalnum Horft yfir barinn og veitingasalinn á Héðinn Kitchen & Bar. Setustofa við móttökuna Húsgögnin voru smíðuð úr hnotu út frá gamalli pólskri hönnun. Nýja hótelið ber merki smiðjunnar - Yfirhönnuður CenterHótel Granda segir hótelið skírskota til smiðjunnar Morgunblaðið/Eggert Barinn Breska hönnunarstofan I am London hannaði innréttingar á veitingahúsi. Ljósakrónan er úr látúni. Í stíl Letrið á herbergjanúmerunum skírskotar til gamallar iðnhönnunar. Móttakan við Seljaveg Gerður verður inngarður með heilsulind.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.