Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 20
að tjalda til einnar nætur á stað sem hefur svona mikla sögulega skír- skotun fyrir marga Íslendinga. Það er kannski meginástæðan. Hin ástæðan var ákall í samfélaginu um að ekki yrði farið of geyst við þessar breytingar. Ekki mætti glata sögu- legri tengingu við svæðið. Því ákalli var svarað. Til dæmis var Nasa- salurinn endurbyggður í uppruna- legri mynd og Landssímahúsið fært í upprunalegt horf. Það hefði verið einfaldara og ódýrara að láta for- smíða handrið en við létum steypa BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Borgarbúar hafa tekið eftir því að framhlið Landssímahússins, sem hefur verið fært í upprunalegt horf, svipar orðið mikið til framhliðar Hótels Borgar. Bæði húsin voru teiknuð af Guð- jóni Samúelssyni, húsameistara rík- isins, á fyrri hluta síðustu aldar. Á Landssíma- reitnum eru níu nýjar og endur- gerðar byggingar sem snúa að Kirkjustræti í suðri, Aðalstræti í vestri, Vallar- stræti í norðri og Austurvelli/ Pósthússtræti í austri. Félagið Lindarvatn fer með fram- kvæmdirnar en reiturinn verður leigður Icelandair Hótelum undir allt að 163 herbergja hótel. Meðvituð ákvörðun Jóhannes Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Lindarvatns, segir líkindin með húsunum enga tilviljun. Landssímahúsið hafi verið endur- gert með Hótel Borg í huga. „Já, það var meðvituð ákvörðun. Sömuleiðis sú ákvörðun að láta ný- byggingarnar í Kirkjustrætinu kall- ast á við skrifstofubyggingar Al- þingis hér hinum megin við götuna,“ segir Jóhannes og bendir til suðurs. „Þetta svæði hefur mikla sögulega þýðingu fyrir Íslendinga og þessi hús hafa öll sína sögu og þetta er vandmeðfarið. Það þarf að vanda til verka þegar menn byggja á svona svæðum. Ég tala nú ekki um á stað sem liggur við mikilvægasta al- menningstorg Íslendinga, Austur- völl, við hlið þinghússins og í hjarta borgarinnar. Þannig að við vorum allan tímann meðvituð um að þarna þyrfti að taka réttar ákvarðanir um hönnunina. Varðandi hönnunarferlið er gaman að segja frá því að Lands- símahúsið var á sínum tíma múrað en ekki málað. Síðan var sett á það steining sem var á því þegar við hóf- umst handa við framkvæmdirnar. Við ákváðum að fara aftur til for- tíðar og fjarlægja steininguna af húsinu. Svo létum við mála húsið svo það kallist vel á við Hótel Borg sem stendur beint á móti við Austurvöll.“ Skírskotar til Hótel Borgar „Sama má segja um Mansard- þakið á Landssímahúsinu, en byggð var ný hæð ofan á húsið sem er undir súð og með kvistum, en það er aug- ljós skírskotun og speglun við Hótel Borg. Þannig að okkur þykir þetta hafa heppnast vel og við höfum feng- ið mjög jákvæð viðbrögð við þessari hönnun,“ segir Jóhannes. Nýju svalirnar á Landssímahús- inu séu sömuleiðis endurgerðar til að endurspegla svalirnar á Hótel Borg. En hvers vegna var gengið svona langt til að halda í söguna? „Það eru kannski tvær megin- ástæður. Í fyrsta lagi kemur ekkert annað til greina en að vanda til verka þegar svona kennileiti er byggt í Reykjavík. Það er ekki hægt handrið í sama formi og upphaflega handriðið. Síðan létum við setja nýja glugga í húsið sem eru í sama formi og upphaflegir gluggar,“ segir Jó- hannes um þessa viðleitni. Meiri reisn yfir húsinu THG arkitektar teiknuðu bygg- ingarnar á Landssímareitnum. Freyr Frostason, arkitekt hjá THG arkitektum, segir að þakið á Landssímahúsinu hafi verið í ein- faldara lagi miðað við aðrar bygg- ingar Guðjóns Samúelssonar. M.a. með það það í huga hafi þakið verið hækkað til samræmis við Borgina. „Með þessu verður að mínu mati meiri reisn yfir húsinu,“ segir Freyr. Af ljósmyndum að dæma hafi húsið verið steingrátt í upphafi. Þegar gamla pússningin hafi verið endur- vakin hafi það hins vegar verið mál- að hvítt í stíl við Hótel Borg. Spurður hvort til greina hafi kom- ið að gera turn, líkt og á Hótel Borg, segir Freyr að slíkar breytingar hefðu hvorki samræmst útliti húss- ins né deiliskipulagi á reitnum. Sígilt Eins og sjá má eru líkindi með Landssímahúsinu og Hótel Borg. Munurinn liggur ekki síst í turnhúsi og bogadregnum gluggum Hótels Borgar. Endurgert í stíl Hótels Borgar - Landssímahúsið er orðið sem spegilmynd af Hótel Borg eftir að það var fært í upprunalegt horf - Framkvæmdastjóri Lindarvatns segir það meðvitaða ákvörðun að líkja eftir gamla hótelinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Við Austurvöll Landssímahúsið var hvítmálað og byggð ofan á það hæð með Mansard-þaki og kvistum til að líkja eftir útliti Hótels Borgar. Jóhannes Stefánsson 20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is MAZDA - CX-3 OPTIMA SKYACTIV – RN. 340496. Nýskráður 5/2017, ekinn 50 þ.km., bensín, rauður, sjálfskiptur, stöðugleikakerfi, bluethooth, bakkmyndavél, hiti í stýri, led aðalljós, filmur. Verð 2.690.000 kr. NISSAN - PULSAR ACENTA – RN. 331456. Nýskráður 3/2018, ekinn 56 þ.km., bensín, brúnn, beinskipting, stöðugleikakerfi, bluetooth, bakkmyndavél, usb/ipod tengi, litað gler. Verð 2.490.000 kr. VW - GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT RN. 331250. Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km., bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, hraðastillir, 360° nálgunarvarar, akreinavari, bluetooth, HDMI. Aukadekk á álfelgum. Verð 4.890.000 kr. PEUGEOT - 3008 ACTIVE – RN. 331401. Nýskráður 3/2017, ekinn 84 þ.km., bensín, dökkgrænn, beinskiptur, fjarlægðarskynjarar, regnskynjari, litað gler, bluetooth. Verð 2.690.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.