Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 20
að tjalda til einnar nætur á stað sem
hefur svona mikla sögulega skír-
skotun fyrir marga Íslendinga. Það
er kannski meginástæðan. Hin
ástæðan var ákall í samfélaginu um
að ekki yrði farið of geyst við þessar
breytingar. Ekki mætti glata sögu-
legri tengingu við svæðið. Því ákalli
var svarað. Til dæmis var Nasa-
salurinn endurbyggður í uppruna-
legri mynd og Landssímahúsið fært
í upprunalegt horf. Það hefði verið
einfaldara og ódýrara að láta for-
smíða handrið en við létum steypa
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Borgarbúar hafa tekið eftir því að
framhlið Landssímahússins, sem
hefur verið fært í upprunalegt horf,
svipar orðið mikið til framhliðar
Hótels Borgar. Bæði húsin voru
teiknuð af Guð-
jóni Samúelssyni,
húsameistara rík-
isins, á fyrri hluta
síðustu aldar.
Á Landssíma-
reitnum eru níu
nýjar og endur-
gerðar byggingar
sem snúa að
Kirkjustræti í
suðri, Aðalstræti
í vestri, Vallar-
stræti í norðri og Austurvelli/
Pósthússtræti í austri.
Félagið Lindarvatn fer með fram-
kvæmdirnar en reiturinn verður
leigður Icelandair Hótelum undir
allt að 163 herbergja hótel.
Meðvituð ákvörðun
Jóhannes Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Lindarvatns, segir
líkindin með húsunum enga tilviljun.
Landssímahúsið hafi verið endur-
gert með Hótel Borg í huga.
„Já, það var meðvituð ákvörðun.
Sömuleiðis sú ákvörðun að láta ný-
byggingarnar í Kirkjustrætinu kall-
ast á við skrifstofubyggingar Al-
þingis hér hinum megin við götuna,“
segir Jóhannes og bendir til suðurs.
„Þetta svæði hefur mikla sögulega
þýðingu fyrir Íslendinga og þessi
hús hafa öll sína sögu og þetta er
vandmeðfarið. Það þarf að vanda til
verka þegar menn byggja á svona
svæðum. Ég tala nú ekki um á stað
sem liggur við mikilvægasta al-
menningstorg Íslendinga, Austur-
völl, við hlið þinghússins og í hjarta
borgarinnar. Þannig að við vorum
allan tímann meðvituð um að þarna
þyrfti að taka réttar ákvarðanir um
hönnunina. Varðandi hönnunarferlið
er gaman að segja frá því að Lands-
símahúsið var á sínum tíma múrað
en ekki málað. Síðan var sett á það
steining sem var á því þegar við hóf-
umst handa við framkvæmdirnar.
Við ákváðum að fara aftur til for-
tíðar og fjarlægja steininguna af
húsinu. Svo létum við mála húsið svo
það kallist vel á við Hótel Borg sem
stendur beint á móti við Austurvöll.“
Skírskotar til Hótel Borgar
„Sama má segja um Mansard-
þakið á Landssímahúsinu, en byggð
var ný hæð ofan á húsið sem er undir
súð og með kvistum, en það er aug-
ljós skírskotun og speglun við Hótel
Borg. Þannig að okkur þykir þetta
hafa heppnast vel og við höfum feng-
ið mjög jákvæð viðbrögð við þessari
hönnun,“ segir Jóhannes.
Nýju svalirnar á Landssímahús-
inu séu sömuleiðis endurgerðar til
að endurspegla svalirnar á Hótel
Borg. En hvers vegna var gengið
svona langt til að halda í söguna?
„Það eru kannski tvær megin-
ástæður. Í fyrsta lagi kemur ekkert
annað til greina en að vanda til
verka þegar svona kennileiti er
byggt í Reykjavík. Það er ekki hægt
handrið í sama formi og upphaflega
handriðið. Síðan létum við setja nýja
glugga í húsið sem eru í sama formi
og upphaflegir gluggar,“ segir Jó-
hannes um þessa viðleitni.
Meiri reisn yfir húsinu
THG arkitektar teiknuðu bygg-
ingarnar á Landssímareitnum.
Freyr Frostason, arkitekt hjá
THG arkitektum, segir að þakið á
Landssímahúsinu hafi verið í ein-
faldara lagi miðað við aðrar bygg-
ingar Guðjóns Samúelssonar. M.a.
með það það í huga hafi þakið verið
hækkað til samræmis við Borgina.
„Með þessu verður að mínu mati
meiri reisn yfir húsinu,“ segir Freyr.
Af ljósmyndum að dæma hafi húsið
verið steingrátt í upphafi. Þegar
gamla pússningin hafi verið endur-
vakin hafi það hins vegar verið mál-
að hvítt í stíl við Hótel Borg.
Spurður hvort til greina hafi kom-
ið að gera turn, líkt og á Hótel Borg,
segir Freyr að slíkar breytingar
hefðu hvorki samræmst útliti húss-
ins né deiliskipulagi á reitnum.
Sígilt Eins og sjá má eru líkindi með Landssímahúsinu og Hótel Borg. Munurinn liggur ekki síst í turnhúsi og bogadregnum gluggum Hótels Borgar.
Endurgert í stíl Hótels Borgar
- Landssímahúsið er orðið sem spegilmynd af Hótel Borg eftir að það var fært í upprunalegt horf
- Framkvæmdastjóri Lindarvatns segir það meðvitaða ákvörðun að líkja eftir gamla hótelinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við Austurvöll Landssímahúsið var hvítmálað og byggð ofan á það hæð með Mansard-þaki og kvistum til að líkja eftir útliti Hótels Borgar.
Jóhannes
Stefánsson
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
MAZDA - CX-3 OPTIMA SKYACTIV – RN. 340496.
Nýskráður 5/2017, ekinn 50 þ.km., bensín,
rauður, sjálfskiptur, stöðugleikakerfi, bluethooth,
bakkmyndavél, hiti í stýri, led aðalljós, filmur.
Verð 2.690.000 kr.
NISSAN - PULSAR ACENTA – RN. 331456.
Nýskráður 3/2018, ekinn 56 þ.km., bensín,
brúnn, beinskipting, stöðugleikakerfi, bluetooth,
bakkmyndavél, usb/ipod tengi, litað gler.
Verð 2.490.000 kr.
VW - GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT
RN. 331250. Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, hraðastillir,
360° nálgunarvarar, akreinavari, bluetooth, HDMI.
Aukadekk á álfelgum. Verð 4.890.000 kr.
PEUGEOT - 3008 ACTIVE – RN. 331401.
Nýskráður 3/2017, ekinn 84 þ.km., bensín,
dökkgrænn, beinskiptur, fjarlægðarskynjarar,
regnskynjari, litað gler, bluetooth.
Verð 2.690.000 kr.