Fiskifréttir - 17.12.1999, Qupperneq 2
2
FISKIFRETTIR 17. desember 1999
Fiskmarkaðir
Umferöarmiðstöö
fyrir fisk utan
af landi
— Við sáum um sölu á alls rúm-
lega 4000 tonnum af fiski fyrstu 11
mánuði ársins og á sama tíma tókum
við á móti um 8500 tonnum af fiski
frá mörkuðum innan Reiknistofu
fiskmarkaðanna úti á landi. Þessum
fiski komum við til skila til kaupenda
á höfuöborgarsvæðinu og í næsta ná-
grenni, segir Ragnar Kristjánsson
hjá Fiskmarkaðnum í Hafnarfirði.
Það má eiginlega segja að Hafnar-
fjarðarmarkaðurinn sé orðinn nokkurs
konar umferðarstöð fyrir fiskkör því
Umbúðamiðlun er staðsett í húsnæði
markaðarins og segir Ragnar að morg-
unverkin á markaðnum séu yfirleitt
fólgin í því að afferma bíla og koma
fiski utan af landi til kaupenda og sjá
um að körin skili sér til baka. Það er
misjafnt hve mikið einstakir kaupendur
eiga í farminum á flutningabílunum en
það getur verið allt frá fimm kílóa lúðu
og upp í 20 til 30 kör með fiski. Stund-
um eru allt að 20 til 30 kaupendur um
farminn þannig að ljóst má vera að það
getur verið töluvert verk að dreifa afl-
anum eftir að hann hefur borist til
Hafnarfjarðar.
Ragnar segir að frekar rólegt hafi
verið yftr fiskuppboðum hjá markaðn-
um síðustu dagana. Tíðarfarið hefur
hamlað veiðiferðum smábáta og aðeins
einn stór bátur hefur landað reglulega á
markaðnum. Það er Hamrasvanur SH
sem fengið hefur ágætan afla.
AHir íslenskir markaðir Vikuna 5.-11. des. 1999 Hæsta Lægsta Meðal- Tegund verð verð verð Magn kr./kg kr./kg kr./kg kg
Annar afli 270,00 70,00 98,78 8.058
Bland. 35,00 35,00 35,00 288
Blálanga 81,00 50,00 72,45 1.645
Gellur 375.000 300,00 332,14 491
Grálúða 185,00 155,00 171,20 108
Grásleppa 60,00 50,00 53,09 68
Hlýri 179,00 105,00 134,11 22.114
Hrogn 115,00 35,00 46,64 274
Háfur 20,00 20,00 20,00 105
Karfi 116,00 10,00 63,30 43.722
Keila 80,00 10,00 65,53 30.822
Kinnar 150,00 90,00 120,00 146
Langa 145,00 20,00 109,40 20.217
Langlúra 106,00 50,00 79,22 7.967
Litli karfi 2,00 1,00 1,95 279
Lúða 855,00 66,00 395,55 3.344
Lýsa 76,00 10,00 61,13 3.941
Steinb./hlýri 164,00 75,00 140,07 359
Sandkoli 89,00 60,00 80,94 14.983
Skarkoli 259,00 110,00 183,39 19.683
Skata 210,00 175,00 187,03 197
Skrápflúra 80,00 30,00 69,05 7.152
Skötuselur 380,00 70,00 303,93 4.043
Smokkfiskur 82,00 82,00 82,00 1.140
Steinbítur 180,00 60,00 137,60 64.553
Stórkjafta 66,60 10,00 47,70 320
Sólkoli 500,00 100,00 296,93 1.120
Tindaskata 10,00 5,00 7,76 6.410
Ufsi 76,00 15,00 65,02 96.910
Undmfis. 247,00 50,00 159,71 74.145
Svartfugl 75,00 40,00 70,11 339
Ýsa 197,00 65,00 146,94 256.290
Þorskalifur 200,00 20,00 42,18 505
Þorskur 236,00 70,00 157,22 296.327
Magn 989.430
Verðmæti 132. 538.430
— Ég tók við þessum báti
um miðjan september en
þar áður var ég með Viking
800 bát með sama nafni frá
því í lok síðasta árs. Sá bát-
ur var seldur til Grímseyj-
ar. Við höfum róið frá
Ólafsvík allt þetta ár og afl-
inn nú í vetur hefur verið
með hreinum ólíkindum.
Við fengum tæp 70 tonn af
þorski í níu róðrum í síð-
asta mánuði og aflaverð-
mætið var rétt tæpar átta
milljónir króna. Við erum
þrír á bátnum og hluturinn
var 800 þúsund krónur eft-
ir mánuðinn eða tæpar 100
þúsund krón-
ur á úthalds-
dag. Menn
gera það ekki
betra á frysti-
togurunum
eða öðrum
fiskiskipum í
íslenska flot-
anum, segir
Arnar Þór
Ragnarsson, skipstjóri á
smábátnum Hópsnesi GK
77, í samtali við Fiskifréttir
en Arnar og félagar hans
hafa fískað ótrúlega á lín-
una nú í vetur.
Hópsnes GK er sex brúttórúm-
lesta plastbátur og er hann í eigu
Stakkavíkur í Grindavík. Að sögn
Arnars fór hann í fyrsta róðurinn á
þessum báti 17. september sl. og
hann segir aflann frá því í haust
vera alls um 100 tonn af þorski,
25 tonn af ýsu og smávegis af
keilu og löngu.
— Við löndum þorskinum
óslægðum á fiskmarkað í Olafs-
vík og meðalverðið fyrir þorskinn
var 124 kr/kg hjá okkur í nóvem-
ber. Besti róðurinn okkar var 2.
nóvember sl. en þá fengum við
rúm 11,6 tonn af hreinum þorski í
lögninni. Aflaverðmætið var 1700
þúsund krónur. Við róum með 36
bala þannig að þessi afli samsvar-
ar vel á fjórða hundrað kílóum af
þorski á balann. Þennan afla feng-
um við austan við hólfið á Flákan-
um en þar er engu líkara en hægt
sé að ganga að þorskinum vísum.
Við fengum 10,7 tonn af þorski á
þessum stað 17. nóvember sl. og
ferðinni er heitið þangað á morg-
un. Það er pottþétt að við fáum
ekki undir átta til níu tonnum af
þorski í þeim róðri. Það klikkar
ekki, segir Arnar en þess má geta
að rætt var við hann sl. mánudag.
Ýsan lætur bíða eftir sér
Að sögn Arnars er Hópsnesið á
Arnar Þór
Ragnarsson
skipstjóri
á Hópsnesi GK
Hópsnes GK (Mynd: Jón Sigurðsson)
800 þúsund króna
hlutur fyrlr níu daga
á s/ó í nóvember
svokölluðu þorskaflahámarki og
þorskkvóti bátsins er um 300 tonn.
Aðrar tegundir s.s. ýsa og steinbít-
ur eru utan kvóta og því er mikil-
vægt að reyna að veiða sem allra
mest af aukategundunum með
þorskinum.
— Við erum alltaf á höttum eftir
ýsu en hún hefur látið bíða eftir sér
það sem af er vetri. Við vorum að
fá mjög góðan ýsuafla í nóvember
og desember í fyrra en það er eins
og að hlýi sjórinn hér í Breiðafirð-
inum hafi seinkað ýsunni. Við bíð-
um eftir henni og eftir áramótin
byrjun við fljótlega að svipast um
eftir steinbítnum, segir Arnar en
þess má geta að til þess að auka
möguleikana á ýsuveiði þá eru
20% línunnar beitt með sandsíli á
móti um 80% af smokki.
Arnar segir þorskinn hafa verið
mjög góðan í vetur. Uppistaðan í
aflanum er fimm til sex kílóa
þorskur en hins vegar hafi þorskur-
inn verið mun blandaðri af stærð
þegar aflinn var hvað mestur. Þá
hafi verið töluvert um tveggja og
hálfs til þriggja kílóa þorsk.
Allir á netaveiðar ef
aukategundir með þorsk-
inum verða settar í kvóta
Það kemur fram í spjallinu við
Arnar að ein af ástæðunum fyrir
því hve aflabrögðin hafí verið góð
sé sú að margir bátar við Breiða-
fjörð hafi ekki nægan þorskkvóta
til þess að geta farið með veiðar-
færi á svæði þar sem vitað er að
uppistaðan í aflanum er þorskur.
— Það má segja að við höfum
eiginlega verið einir um hituna.
Samt höfum við reynt að treina
kvótann og hvíla veiðisvæðið og
það er engin spurning að það hefur
mikið að segja. Við höfum komið
að þessi svæði
ósærðu og það
vantar ekki mik-
ið upp á að hægt
sé að skammta
sér aflann. Tíðar-
farið er það eina
sem við ráðum
ekki við en það
hefur verið leið-
inlegt í vetur,
segir Arnar en
honum líst ekki vel á það að
þorskaflahámarksbátarnir þurfi
frá og með næsta fiskveiðiári að
leggja til kvóta á móti öllum
kvótabundnum aukategundum
sem veiddar eru með þorskinum.
— Mér líst illa á þessa ákvörð-
un. Þetta mun leiða til mikillar
fækkunar smábáta og þeir, sem
eftir verða, munu krefjast þess að
fá að veiða kvóta sinn í net í stað
þess að stunda kostnaðarsamar
línuveiðar. Það er miklu ódýrara
að stunda netaveiðar. Fyrir vikið
munum við allir fara að veiða
stóra þorskinn og allur aflinn mun
fara til vinnslu hjá Stakkavík í
Grindavík. Saltfiskverkunarfyrir-
tækin vilja helst bara þorsk sem
er átta kíló eða þyngri og það
verður því sótt í hann af enn meiri
krafti en nú er gert. Þá held ég að
menn hafi ekki hugsað þetta mál
til enda hvað varðar landsbyggð-
ina. Þessir litlu línubátar skapa
gríðarlega atvinnu út um allt land.
Við erum þrír á þessum báti og
það eru fimm manns í vinnu við
að beita fyrir okkur í landi. Það
eru því átta manns sem byggja af-
komu sína af útgerð þessa eina
báts og þá tel ég ekki með þau
störf sem vinnsla aflans og þjón-
usta við bátinn skapar í landi, seg-
ir Arnar Þór Ragnarsson en er
Fiskifréttir náðu tali af honum þá
var hann að veiðum í Kolluálnum
og samsvaraði aflinn um 150
kflóum af fiski á balann. Hlutfall
ýsu í aflanum var komið upp í
30% og sagðist Amar vera bjart-
sýnn á að ýsan væri loksins að
skila sér.
FRETTIR
Utgefandi: Fróði hf.
Héðinshúsinu, Seljavegi 2,
101 Reykjavík
Pósthólf 1120, 121 Reykjavík
Sími 515 5500
Netútgáfa Fiskifrétta:
www.fiskifrettir.is
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Guðjón Einarsson
fiskifrettir@frodi.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Eiríkur St. Eiríksson
eirikur@frodi.is
Ljósmyndarar:
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Auglýsingastjóri:
Hertha Árnadóttir
hertha@frodi.is
Ritstjórn:
Sími 515 5610
Telefax 515 5599
fiskifrettir@frodi.is
Auglýsingar:
Sími 515 5558
Telefax 515 5599
Áskrift og innheimta:
Sími 515 5555
Telefax 515 5599
Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri:
Steinar J. Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Grafík hf
Askriftarverð fyrir hvert tölublað:
Greitt m. greiðslukorti: 299 kr/m.vsk
Greitt m. gíróseðli: 339 kr/m.vsk
Lausasöluverð: 399 kr/m.vsk
Handbókin SJAVARFRETTIR fylgir
áskrift að Fiskifréttum, en hún kemur
út í byrjun september ár hvert.