Fiskifréttir - 17.12.1999, Page 16
16
FISKIFRÉTTIR 17. desember 1999
íslenskir sjómenn erlendis
lfamdaÆ
króna og að því leyti megi fyllilega
bera stöðu bestu suður-afrísku
togaranna saman við stærri frysti-
togarana hérlendis.
Suður-afríska landhelgin
er sem óplægður akur
I síðustu veiðiferð fór Hlöðver
með Boronia um 400 sjómflna leið
austur í Indlandshaf og þar segist
hann víða hafa fengið mjög góðan
afla á áður óþekktum togslóðum.
Hlöðver þurfti að bregða sér í
stutta ferð til Islands vegna fráfalls
föður síns eftir þessa veiðiferð og
hann segir að þótt hann hafi aðeins
verið heima í eina viku þá hafi vart
liðið sá dagur að ekki hafi verið
hringt í hann frá útgerðinni og
hann spurður hvort hann kæmi
ekki örugglega fljótlega til baka.
— Stjórnendur útgerðarinnar
eru mjög spenntir fyrir veiðimögu-
leikunum í Indlandshafi og lýsing-
urinn sem við veiddum þar í kalda
botnsjónum lflcaði mjög vel. Gall-
inn er hins vegar sá að fyrirtækið
hefur enga aðra skipstjóra en mig
sem hafa tök á því að veiða á þess-
um slóðum. Þetta held ég að komi
til með að breytast smám saman.
Fyrirtækið er nýbúið að kaupa tvo
nýja og öfluga ísfisktogara frá
Spáni og nú er verið að leita að ný-
legum frystitogara á borð við
Boroniu. Það er vilji fyrir því að
nýta sérþekkingu Islendinga á
veiðarfærum og veiðitækni og ég
gekk t.d. frá kaupum á nýju Glor-
íutrolli frá Hampiðjunni á meðan
ég var hér heima. Ég er nokkuð
viss um að skipunum mun fækka
en þess í stað munu stjómendur
Irwin & Johnson leggja áherslu á
að fá stærri og öflugari skip til
veiðanna. Það segir sitt um ástand
mála að enginn hefur kannað tog-
slóðina fyrir neðan 400 faðma en
það er það dýpsta sem ég hef togað
á. Hafsvæðið á 400 til 800 faðma
dýpi hefur ekkert verið kannað og
ég held að landhelgi Suður-Afríku
sé best lýst með því að segja að
hún sé óplægður akur. Það veit
enginn hvað leynist þarna niður í
djúpinu. Veiðarnar í dag miðast við
lýsing og síðan eru stundaðar veið-
ar á hrossamakríl og svo smokk-
fiski í Indlandshafí auk hefðbund-
inna strandveiða á humri og fleiri
tegundum. Það er búið að loka öll-
um sóknarfærum í útgerð útlend-
inga í landhelgi Suður-Afríku
þannig að ég held að það þýði ekk-
ert fyrir Islendinga að hugsa um að
hasla sér völl á því sviði nema með
því þá að kaupa sig inn sem minni-
hlutaeigendur. Sóknarfærin fyrir
Islendinga eru hins vegar ótvíræð á
Mynd af lóðningu á dýptarmæli um borð í Boroniu. Lýsingurinn
heldur sig í góðri torfu skammt fyrir ofan botninn
Gott lýsingshol komið inn á dekk
LÖNPUN EHF.
Box 1517-121 Reykjavík
Sími: 552 9844 • Fax: 562 9840
svikum. Þá eru menn varkárir og
seinteknir hvað varðar nýjungar en
sá hugsunarháttur er sem óðum að
breytast. Ef rétt er haldið á málum
þá tel ég að mörg íslensk fyrirtæki
geti átt blómleg viðskipti við út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í
Suður-Afríku á komandi árum,
segir Hlöðver Haraldsson.
sviði veiðarfæra og sérfræðiþekk-
ingar hvað varðar veiðar, vinnslu
og markaðssetningu afurðanna.
Stjórnendur útgerðarfyrirtækja í
Suður-Afríku þekkja mæta vel til
fyrirtækja eins og Hampiðjunnar
og J. Hinrikssonar en ég held að til
þess að ná virkilegum árangri þá
þyrftu íslenskir veiðarfærafram-
leiðendur að bjóða suður-afrísku
útgerðunum upp á sérstök kynn-
ingarverð. Það verður að segjast
eins og er að heimamenn hafa ekk-
ert alltof góða reynslu af viðskipt-
um við útlendinga og það er búið
að spilla mörgum góðum við-
skiptamöguleikum með prangi og