Fiskifréttir


Fiskifréttir - 17.12.1999, Side 18

Fiskifréttir - 17.12.1999, Side 18
18 FISKIFRETTIR 17. desember 1999 Verferðir He/ma sitja meyjar og mæöast af sorgum Allt frá upphafi fslandsbyggðar og fram á tuttugustu öld tíðkuðust miklir „þjóðflutningaru ár hvert á fslandi. Flestir verkfærir karlmenn yfirgáfu þá sveitirnar og héldu í verið. Ferðir þeirra í og úr veri voru oft harðsóttar, enda farnar um veg- leysur um hávetur. En yfir þeim var einnig ævintýraljómi og þjóðsögur um ferðahrakninga vermanna og samskipti þeirra við útilegumenn, álfa og tröll, jafnt sem byggðamenn, eru fjölmargar. En raunveruleik- inn var líka stundum öllum þjóðsögum magnaðri. Nálægð við gjöful mið réð mestu um útróðrarstaði. Alls staðar þurftu menn að glíma við hafnleysi og treysta á guð og lukkuna um hvort land- taka væri fær að loknum róðri. Myndin er úr bókinni Sjósókn og sjávarfang og er af skipinu Sigursæli sem var í eigu Guðjóns Jónssonar í Hallgeirsey. Þótt íslenskt samfélag hafi verið talið bændasamfélag allt frá upp- hafi Islandsbyggðar og fram undir miðja tuttugustu öldina er ljóst að allt frá fyrstu tíð hafa Islendingar mjög verið háðir sjósókn og sjávar- fangi. Þeir landnámsmanna sem hingað komu frá Noregi voru flest- ir frá héruðum þar sem menn kunnu vel til fiskveiða og fiskur var meginhluti daglegrar fæðu. Eins má ætla að þeir sem hingað komu frá Bretlandseyjum hafi ver- ið frá strandhéruðum þar sem fisk- veiðar voru mikilvæg atvinnu- grein. Islenskt bændasamfélag þróaðist snemma á þann veg sem stóð um aldir. Byggð var mest og þéttust þar sem landnytjar voru bestar en þegar fólki fjölgaði færðist byggð- in meira inn til dala og jafnvel upp til heiða þar sem möguleikar til bú- skapar voru harla takmarkaðir og fólk bjó við svo þröngan kost að ekkert mátti út af bera til þess að ekki færi illa. Þegar á landnámsöld hafa komið hallærisár og orðið mannfellir. Vert er þó að gefa því gaum að þá virðist hallærið ekki hafa orsakast af kuldatíð, eldgos- um eða annarrri slíkri óáran heldur fyrst og fremst vegna þess að sjáv- arafli brást. Þannig getur Grettis saga slíks hallæristíma er sjávarafli og reki brugðust og „stóð svo yfir í mörg ár,“ segir þar. I íslenskum fornritum er víða fjallað um fiskveiðar og er ekki fráleitt að landið hafi fullbyggst á svo skömmum tíma sem raun ber vitni af þeirri ástæðu að sjávarafli var mikill og stutt að sækja. Höfðu menn vart kynnst öðru eins og veiðihugurinn verið mikill. Þannig segir t.d. Landnáma frá fyrri ferð Flóka Vilgerðarsonar er hann hafði vetursetu í Vatnsfirði að „þá var fjörðurinn fullr af veiðiskap, ok gáðu þeir eigi fyrir veiðum at fá heyjanna, ok dó allt kvikfé þeirra um veturinn." Talað er um Island sem „veiðistöð" á fleiri en einum stað og þess sérstaklega getið að þar sé veiði að hafa allan ársins hring. I Laxdælu segir t.d. frá því er Björn og Helgi, synir Ketils flat- nefs, voru að reyna að fá föður sinn með sér til Islands þá gátu þeir um að þar væri „fiskastöð öllum miss- erurn". Ekki varð Ketill upprifinn af þessum fréttum og sagði að í þá veiðistöð kæmi hann aldrei á gam- als aldri. Fyrsti sægreifinn? Margt bendir til þess að þeir landnámsmenn sem fyrstir komu til landsins hafi valið sér búsetu með tilliti til þess hvaðan var styst og best að sækja á miðin. Þeir sem á eftir komu urðu því að gera sér að góðu staði þar sem rýrari kostur var til sjávarróðra eða þá að sækja til þeirra er komið höfðu sér fyrir og róa með þeim. Er ekkert efamál að mjög snemma hafa orðið til út- róðrarstaðir og vísir að ver- mennsku þótt raunar sé ekki mikið um það fjallað í fornum sögum. I Bandamanna sögu er þess þó getið að Oddur Ofeigsson á Reykjum í Miðfirði yfirgaf föðurhús þegar hann var tólf vetra. Tók hann með sér „vað af þili og öll veiðarfæri“ og hélt út á Vatnsnes þar sem hann komst í skipsrúm og var þar í þrjá vetur og þrjú sumur. Að þeim tíma loknum hafði hann efnast svo að hann gat keypt sér hlut í ferju sem gekk milli Vatnsness og Stranda „og flytr farma norðan, viðu ok hvali ok fiska.“ Er Oddur Ófeigs- son raunar fyrsti íslendingurinn sem sögur fara af að hafi efnast vel á fiskveiðum og útvegi. Þegar kemur fram á þjóðveldis- öld hafa lifnaðarhættir Islendinga sjálfsagt færst í nokkuð fastar skorður. Búskapur eða hefðbund- inn landbúnaður, kvikfjárrækt, var undirstaðan en sjávarútvegurinn og það sem hann gaf af sér voru ekki síður mikilvægt lifibrauð lands- manna. títróðrarstaðir urðu til, staðir, sem menn tóku að sækja víða að, á ákveðnum árstímum til þess að afla sér og sínum viðurvær- is. Þótt ekki fari miklum sögum af því hvar þessir staðir voru í önd- verðu má ætla að þeir hafi verið þar sem síðar urðu mikilvægar og fjöl- sóttar verstöðvar. Dæmi um slfkt eru Vestmannaeyjar en Landnáma segir frá því að Herjólfur, sonur Bárðar Bárekssonar, hafi fyrstur byggt þær og bjó hann í Herjólfs- dal. „Ok átti einn allar eyjarnar. Þær liggja fyrir Eyjasandi, en áður var þar veiðistöð ok engra manna vetrseta.“ Útvegurinn kemst í fastar skorður í fyrstu mun útgerð frá ver- eða veiðistöðvum hafa verið ferns kon- ar. í fyrsta lagi var um að ræða svokölluð heimaver, en þau voru við þá bæi þar sem skammt var á miðin og róðrarmenn dvöldu heima hjá sér að næturlagi. í öðru lagi voru útver sem voru skilgreind þannig í máldaga frá miðri fjórt- ándu öld að þau væru þar sem menn kæmu til róðra og færu ekki heim að kvöldi og voru menn sem stunduðu róðra þaðan kallaðir út- róðrarmenn. í þriðja lagi var svo um að ræða svokölluð viðleguver, en það voru þeir útgerðarstaðir þar sem aðkomumenn reru frá á ákveðnum árstímum og fengu inni á heimilum bænda á vertíðinni. Smátt og smátt mun útgerð frá við- leguverunum hafa orðið svo um- fangsmikil að þeir sem þaðan reru tóku að reisa sér tjöld eða skýli á

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.