Fiskifréttir


Fiskifréttir - 17.12.1999, Side 35

Fiskifréttir - 17.12.1999, Side 35
FISKIFRÉTTIR 17. desember 1999 35 við þau áhrif sem hitinn virðist hafa á 282ja ára skeiðinu frá 1601- 1882. Samræmið er gott og þegar engar afbrigðilegar aðstæður koma til svarar þetta til þess að samhengi hitafars og þorskafla á þessari öld geti verið eins og þessi tafla sýnir: Hiti, °C Afli, þús. tonna 2,5 220 3,0 280 3,5 340 4,0 400 4,5 460 Reiknitilraun Hér verður nú gerð tilraun til þess að prófa þetta samhengi hita- fars og afla á tímabilinu frá því um 1960 og fram á síðustu ár. Til þess eru teiknuð þrjú línurit, öll í þúsundum tonna á ári: afli veiðistofn mögulegur afli samkvæmt hita Öll línuritin eru jöfn- uð nokkuð. Til þess er notuð svonefnd veldis- jöfnun, þannig að jafn- aða talan frá síðasta ári hefur þrefalt vægi á við tölu ársins þegar jöfnuð tala ársins er fundin. Veiðistofn er margfald- aður með tölunni 0,29 til þess að leitast við að áætla hvað hann geti gefið mikinn afla til lengdar. Auk þess er línuritið yfir afla sam- kvæmt hita fært áfram um 6 ár til þess að taka tillit til þess að veiði- stofninn lagar sig eftir nýjum aðstæðum, Um 1960 er að ljúka mjög afbrigðilegu afla- tímabili þegar miklar göngur frá Grænlandi höfðu stóraukið veiðina í mörg ár. Svo virðist sem þær göngur hafi ekki verið nýttar að fullu meðan á þeim stóð, því að veiðistofn- inn er svo miklu stærri en veiðin bendir til. Sér- staklega er þó áætlaður afli samkvæmt hita lægri því hann hefur ekki hugmynd um hvenær Grænlands- göngur koma, ef svo má að orði komast. En um leið og þessari hrotu lýkur um 1965 eru öll línuritin komin í jafnvægi og sam- ræmi fram undir 1970, þegar dálít- ið gætir Grænlandsgangna úr ár- göngunum frá 1961 og 1963. Þá fer afli samkvæmt hitanum að hrapa vegna áhrifa hafísáranna sem byrjuðu 1965, og það heldur áfram tií 1977. Veiðistofninn minnkar í góðu samræmi við þessi áhrif kuld- ans. Síðan hlýnar nokkuð fram undir 1984, og um 1980 gætir auk þess Grænlandsgangna úr árgöng- unum 1970 og 1973. En frá því eft- ir 1970 er aflinn meiri en bæði veiðistofninn og hitinn sýnast leyfa, og eftir 1984 er einkum farið að taka meira úr stofninum en hitafarinu svarar. Um 1989 verður nokkur aukning veiðinnar vegna Grænlandsgöngu úr 1984 árgangn- um, en síðan hafa þær ekki látið sjá sig þar sem algjör aflabrestur hefur verið við Grænland. Svo virðist sem þessi ofveiði hafi keðjuverkun svo að veiðistofninn gengur sífellt meira saman þó að farið sé að hlýna um 1990. Eftir að fiskveiði- takmarkanir byrjuðu um 1984 má líka búast við að afli hafi verið meiri en skýrslur sýna vegna auk- ins brottkasts og það hefur þá líka átt þátt í að ganga nærri stofninum. Það er freistandi að álykta að ef aflanum hefði verið haldið niðri í því marki sem hitafar sýndist vera forsenda fyrir, hefði veiðin getað farið að aukast fljótlega eftir 1990 og væri nú komin í 350 þúsund tonn eða meira. Einkum hefði ver- ið áhrifaríkt að þessi aflaskerðing hefði náð til þess hluta stofnsins sem er þýðingarmestur fyrir hrygn- inguna. ✓ Alyktanir Athugun á aflahlutum frá því um 1600 og langt fram undir 19. öld, ásamt fiskveiðum á Islands- miðum á 20. öld bendir til þess að loftslagið hafi mikil áhrif á veiði- þol þorsksins. Þegar á allt er litið sýnist mér að áhrif hitafarsins hafi hér síst verið ofmetin. Það er jafn- vel vafasamt að nægilegt tillit sé tekið til Grænlandsgangnanna þeg- ar hlýindi eru hvað mest á þessu loftslagssvæði, því að þær eru líka afleiðing hitafarsins, þó að þær komi með óreglulegu millibili og hver um sig tengist ekki beinlínis hitanum á sama árabili. En svo vikið sé að veðurfarinu framundan er ekki hægt að segja annað en að horfur séu góðar. Það hefur sýnt sig á liðinni öld að lofts- lagið norður í höfum, nánar tiltek- ið nálægt Spitzbergen, hefur tekið langvinnum breytingum til kólnun- ar og hlýnunar og miklu meiri en víðast annars staðar á jörðinni. Saga síðustu fjögurra alda virðist líka staðfesta þessar loftslagssveiflur eins og fjallað var um fyrr í þessari grein, og þær breytast líka í ískjörnum frá Grænlandsjökli. Minni loftslagsbreyting- ar hafa svo í hvert sinn fylgt eftir annars staðar eins og bergmál á næstu 5-10 árum, einkum á norðlægum slóðum, en jafnvel einnig á suður- hveli. Um það vitna ég til viðtals í Morgunblað- inu 3. október 1999. Eins og sakir standa eru hlýindi góð norður í hafi og líklegt að af þeim sökum verði næstu árin mild á landinu og í haf- inu. Til viðbótar þeim breytingum og óháð þeim er nokkuð Ijóst að veðurfar fer hlýnandi á jörðinni vegna gróður- húsaáhrifa, og yfirleitt gætir þeirra mest við heimskautin. Engin reynsla styður kenning- ar um að hlýnandi lofts- lag dragi úr Golfstraumnum, hvað sem síðar verður. Og svo má árétta að jafnvel eftir að farið er að kólna gætir enn áhrifa hlý- skeiðsins á fiskistofnana í allmörg ár. Eg tel að spár af því tagi geti ver- ið mikilsverðar þegar ákvarðanir eru teknar um sjávarútveginn og þjóðarbúskapinn. Ef vel er að verki staðið er ekki óraunhæft markmið að koma þorskveiðinni upp í 400 þúsund tonn á ári á Is- landsmiðum án þess að misbjóða fiskistofnunum í hafinu. Þó veltur það vafalaust nokkuð á viðgangi annarra sjávardýra sem þorskurinn er háður. Ekki er heldur ólíklegt að hlýnandi sjór við Grænland skapi skilyrði þar fyrir góðan þorskstofn sem kann að senda okkur stöku sinnum ríflega viðbót við aflann á íslandsmiðum og endist okkur í hvert sinn í mörg ár. En hvernig sem allt veltist er ekki vænlegur kostur að streitast á móti lögmáli náttúrunnar um samhengi lífsins og umhverflsins í sjónum. Höfundur er veðurfræðingur og fyrrum veðurstofustjóri. 2. mynd. Keðjubundin 9 ára meðaltöl hita í Stykkis- hólmi (rautt línurit) og keðjubundin 9 ára meðaltöl þorskafla í þúsundum tonna (grænt línurit). 3. mynd. Framvinda þorskafla á íslandsmiðum er sýnd í þúsundum tonna (grænt línurit), en 29% af veiðistofni eru sýnd í sama mælikvarða (blátt línurit) og áætlaður afli eftir hitafari er einnig sýndur í þúsundum tonna (rautt línurit). G ásamt ártali táknar veiði úr Græn- landsgöngu úr viðkomandi árgangi. Öll línuritin eru byggð á veldisjöfnuðum meðaltölum, þannig að í með- altalinu fyrir hvert ár vegur það ár mest, en vægi ár- anna á undan minnkar um 25% með hverju ári aftur í tímann. INSTRUMENT Hitaðir uindhn Stærð 405 x 210 mm Leitið upplýsinga hjá okkur! Sími: 894 8400 Áskríft 515 5555 Grandagarði 5*101 Reykjavík S: 562 2950 • F: 562 3760

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.