Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Blaðsíða 10
8
3. Árangur tilraunarinnar.
a. Áhrif fóðrunar á þunga ánna.
Tafla 4 sýnir meðalþunga ánna á fæti, þyngdarbreytingar þeirra á
tilraunaskeiðinu og þunga þeirra haustið eftir.
Tafla 4. Meðalþungi ánna á fæti og þyngdaraukning, kg.
Þyngdar-
aukning Haust-
Tala Meðalþungi, kg frá 29. des. þungi
ánna 29. des. 1. febr. 1. marz 1. apríl 1. maí til 1. maí 5. okt.
A-flokkur ...... 65 61.60 60.29 62.15 60.42 65.14 3.54 58.15
B-flokkur ...... 66 61.21 60.30 61.82 59.85 64.73 3.52 57.81
Mismunur A-^B - 0.39 0.01 0.33 0.57 0.41 0.02 0.34
Er tilraunin hófst 29. des., voru ærnar í A-flokki 0.39 kg þyngri en
ærnar í B-flokki. Orsakast það að mestu leyti af þeim ám, sem þurfti
að fella úr tilrauninni, og þeim, sem drápust. Þyngdaraukning á til-
raunaskeiðinu er sú sarna í báðum flokkum, um 3.5 kg. Ærnar í A-flokki
hafa því ekki þrifizt betur en ærnar í B-flokki, þótt þær fengju 50 g
af síldarmjöli rneira á dag allt tilraunaskeiðið. Ærnar í B-flokki virðast
því hafa bætt sér upp eggjahvítuvöntunina seinni hluta tilraunaskeiðs-
ins með beitinni, sjá töflu 3.
b. Afurðir ánna.
Tafla 5 sýnir meðalþunga lambanna 24. sept., þar sem þau eru
flokkuð í einlembinga og tvílembinga, hrúta og gimbrar.
Tafla 5. Meðalþungi lamba á fæti 24. sept., kg.
Einlembingar Tvílembingar
Hrútar Gimbrar Hrútar Gimbrar
Tala þungi Tala þungi Tala þungi Tala þungi
A-flokkur ...... 10 39.70 8 36.50 44 32.24 40 31.86
B-flokkur ...... 10 38.75 12 36.20 35 31.17 34 32.79
Mismunur A-f-B . - 0.95 ER - 0.30 - 1.07 ER - 4- 0.93 ER
(t — 0.50) (t = 1.63) (t = 0.54)
ER = mismunurinn ekki raunhæfur.
Mjög lítill þungamunur er á lömbunum í A- og B-flokki, og við
stærðfræðilegt mat er hann í engu tilfellinu nálægt því að vera raun-
hæfur, er sjá má af „t-tölunni“ í töflu 5, sem þarf að vera hærri en 2
til þess, að um raunhæfan mun sé að ræða.
Samandregið yfirlit.
1. Tilraunin var gerð með mismunandi magn af síldarmjöli handa
beitarám. Hún hófst 29. des., og henni lauk 23. maí. í tilrauninni