Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Blaðsíða 24

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Blaðsíða 24
22 um í B-flokki 50 g að meðaltali á dag hverri á. Að öðru leyti fengu ærnar í báðum flokkum sama fóður og jafna beit. 2. Ærnar voru vegnar fimm sinnum á tilraunaskeiðinu og einnig haustið eftir. Lömb þeirra voru öll vegin á fæti um haustið, og fall vegið sér af hverju sláturlambi. 3. Lagt var stærðfræðilegt mat á árangur tilraunarinnar. 4. Tilraunin sýndi, að þegar minnst var gefið af heyi, 0.170 til 0.195 F.E. á dag, þyngjast ærnar meira, sem fengu 100 g af síldarmjöli á dag, en þær, sem fengu aðeins 50 g. Aftur á móti, er leið á til- raunaskeiðið og heygjöfin var aukin, þyngdust ærnar, sem fengu minna ef síldarmjölinu, aðeins meira en hinar, og þyngdaraukning á öllu tilraunaskeiðinu var ekki nema 0.82 kg meiri í A-flokki en B-flokki. Ekki var raunhæfur munur á vænleika lamba tilrauna- ánna. Þegar viðbótargjöfin af síldarmjölinu og afurðaaukningin í A-flokki var metin til verðs, vantaði kr. 6.01 á, að tvílembdu ærnar í A-flokki borguðu viðbótargjöfina, 7.17 kg af síldarmjöli. V. IÍAFLI Tilraun í Klifshaga veturinn 1953—1954. 1. Tilhögun og framkvæmd. Tilraunin var endurtekning á tilraun, sem gerð var i Klifshaga veturinn 1952—1953 og sagt er frá í kafla IV hér að framan. Tilraunin hófst 14. desember, og henni lauk 15. maí. í henni voru 84 ær, sem skipt var í tvo jafna flokka, A- og B-flokk, er tilraunin hófst. Ánum í A-flokki var gefið 100 g, en ánum í B-flokki 50 g af síldarmjöli að meðaltali hvern dag á tilraunaskeiðinu. Að öðru leyti fengu ærnar í báðum flokkum sama fóður og jafna beit. Ærnar voru vegnar þrisvar sinnum á tilraunaslceiðinu og auk þess haustið eftir. Lömb þeirra voru öll vegin á fæti um haustið, og fall vegið sér af hverju sláturlambi. Síðast í desember fór að bera á lungnaveiki í ánum, og af þeim sökum var þeim gefið meira inni á tilraunaskeiðinu en þurft hefði vegna tíðarfars. Tvær ær urðu geldar í B-flokki. Þeim var sleppt úr við uppgjör tilraunarinnar, og koma því 40 ær í þeim flokki til uppgjörs. 2. Fóðureyðsla á tilraunaskeiðinu. Hvorki heyið né síldarmjölið var efnagreint, en er metið í fóður- einingum í töflu 18 á sama hátt og í kafla II. Tafla 18 sýnir daglega fóðurgjöf ánna í báðum flokkum hvern mánuð og hve mörg g af meltanlegri hreineggjahvítu voru í dagsfóðrinu og enn fremur heildarfóðureyðsluna í báðum flokkum.

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.