Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Blaðsíða 26
24
Á öllu tilraunaskeiðinu fengu ærnar í A-flokki nokkru meira af
eggjahvítu en þær þurftu til viðhalds og fósturmyndunar. Ærnar í B-
flokki fengu einnig næga eggjahvítu í fóðrinu fram að apríl, en í
april og maí vantar um 15% af eggjahvítu í dagsfóðrið, sjá töflu 18.
Það, sem vantaði í fóðrið af eggjahvítu, virðast ærnar hafa fengið með
beitinni, því að þrif þeirra á þessu tímabili eru ekki lakari en ánna í
A-flokki, sjá töflu 19.
Þegar tilrauninni lauk, var hætt að gefa ánum síldarmjöl. Vorið var
afburðagott, enginn fóðurbætir var gefinn á sauðburði, en aðeins 3.2
F.E. af töðu að meðaltali á dag hvorum flokki.
3. Árangur tilraunarinnar.
a. Áhrif fóðrunar á þunga ánna.
Tafla 19 sýnir meðalþunga ánna á fæti, er tilraunin hófst, þyngdar-
breytingar þeirra á tilraunaskeiðinu og þunga þeirra haustið eftir.
Tafla 19. Meðalþungi ánna á fæti og þyngdaraukning, kg.
Tala ánna 14. des. Mcðalþungi, kg 1. marz 1. maí Þyngdaraukning frá 14. des. til 1. maí Haust- þungi 15. okt.
A-flokkur .. 42 56.57 65.90 70.38 13.81 58.56
B-flokkur .. 40 55.85 64.92 69.50 13.65 58.25
Mismunur A+B .. - 0.72 0.98 0.88 0.16 0.31
Er tilraunin hófst 14. des., voru ærnar í A-flokki 0.72 kg þyngri en
ærnar í B-flokki. Orsakaðist það að nokkru leyti af þeim ám í B-flokki,
sem urðu geldar og voru felldar úr tilrauninni við uppgjör. Til 1. marz
þyngjast ærnar í A-flokki aðeins meira en ærnar í B-flokki, enda minnst
gefið af heyi í desember og febrúar, sjá töflu 18. Aftur á móti á tímabil-
inu frá 1. marz til 1. mai þyngjast ærnar í B-flokki aðeins meira. Eru
það hliðstæðar niðurstöður og komu fram í tilraununum, sem sagt er frá
í köflum II og IV hér að framan. Þyngdaraukning ánna i A-flokki er
aðeins 0.16 kg meiri en ánna í B-flokki á tilraunaskeiðinu. Þessi litli
munur getur allur hafa orsakazt af því, að í A-flokki gengu 78.27% af
ánum með tvö fóstur en í B-flokki ekki nema 66.67%. Eins og áður
er sagt frá, hófst þessi tilraun 14. desember. Byrjað var að fara
með hrút til ánna 21. des. Viðbótargjöfin af síldarmjölinu, sem ærnar
í A-flokki fengu fram yfir ærnar í B-flokki, virðist hafa haft áhrif á
frjósemina, því að 78.27% af ánum í A-flokki verða tvílembdar, en
66.67% af ánum i B-flokki. Að öðru leyti virðist viðbótargjöfin af
síldarmjölinu ekki hafa haft áhrif á fóðrun ánna, því að þær þrifust
jafnvel á tilraunaskeiðinu í báðum flokkum, sjá töflu 19.