Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Side 15
13
Tafla 9 sýnix- meðalfallþunga lambanna, flokkaðra á sama hátt
og í töflu 8. Fallþungi nokkurra gimbranna, sem látnar voru lifa, er
þó áætlaður eftir kjötprósentu þeirra, sem slátrað var. Taflan sýnir
einnig, að munur á fallþunga einlembinganna í A- og B-flokki er næstum
því enginn og hlutfallslega mun minni en munur á þunga þeirra á fæti,
sem orsakast af því, að kjöt'prósenta einlembinganna er lægri í B-flokki
en A-flokki. Hins vegar eru meðalföll tvílembingshrúta 1.08 kg þyngri
í A-flokki, og er sá þungamunur raunhæfur i 95% tilfella. Tvílembings-
gimbarnar hafa aðeins 0.52 kg þyngri meðalföll í A-flokki, og er sá
þungamunur ekki raunhæfur. Einlemburnar í A-flokki hafa því ekki
skilað auknum afurðum fyrir það viðbótarfóður, 7.31 F.E., sem þær
fengu fram yfir ærnar í B-flokki. Aftur á móti skiluðu tvílemburnar
meiri afurðum í A-flolcki en í B-flokki. Nemur sá afurðamunur á hverja
tvílembu 1.53 kg í kjöti. Sé þessi afurðaaukning metin til verðs á kr.
15.00 pr. kg, nemur hún kr. 22.95. Síldarmjölið komið heim til bænda
má reikna til verðs á kr. 2.70 pr. kg. Viðbótai’fóðrið, sem æmar í A-
flokki fengu frarn yfir æi’nar í B-flokki, að meðaltali 7.31 F.E. eða
5.48 kg af síldarmjöli á dag, kostar því kr. 14.80 á hvei-ja á. Hagnaður
nemur því kr. 8.15 á hverja tvílembu. Einnig má gera ráð fyiúr, að tví-
lemban í A-flokki skili hlutfallslega jafnmiklu meiri verðmætum í
mör og gæru. Hins vegar skiluðu einlemburnar engu meiri afurð-
um í A-flokki en B-flokki, eins og áður er sagt. Þessar niðurstöður benda
því til þess, að ekki sé ráðlegt að gefa ám mikið umfram 50 g af sildar-
rnjöli á dag, nema nokkurn veginn sé víst, að meira en helmingurinn
af þeim verði tvílembdar, eða þegar lítið sem ekkert hey er gefið xneð
beitinni.
Niðurstöður þessarar tilraunar falla í sömu átt og' niðurstöður þeirra
tilrauna, sem gerðar voru í Steinsholti í Gnúpverjahreppi á vegurn Til-
raunaráðs búfjárræktar á árunum 1947 til 1950 (Pétur Gunnarsson,
1953).
Samandregið yfirlit.
1. Tilraunin var gerð með mismunandi magn af síldarmjöli handa
beitarám. Hún hófst 3. febrúar, og henni lauk 23. maí. í tilraun-
inni voru 112 ær, sem skipt.var í tvo jafna flokka, A- og B-flokk.
Ærnar í A-flokki fengu 100 g af síldarmjöli á dag að meðaltali
hver ær, en í B-flokki 50 g. Að öðru leyti fengu ærnar í báðum
flokkum sama fóður og jafna beit.
2. Ærnar voru vegnar fjórum sinnum á tilraunaskeiðinu og einnig
haustið eftir. Lömb þeirra voru vegin á fæti 23. sept., og fall vegið
sér af hverju sláturlambi 26. sept.
3. Lagt var stærðfræðilegt mat á árangur tilraunarinnar.
4. Tilraunin sýndi, að ærnar í A-flokki þyngdust meira það tímabil,
sem minnst var gefið af heyi yfir veturinn, og einnig eftir að fóstrið