Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Síða 16
14
fór að vaxa ört. Tvílemburnar í A-flokki gáfu meiri afurðir, 1.53
kg af kjöti, en tvílemburnar í B-flokki. Hins vegar gáfu einlemb-
urnar í báðum flokkum næstum því alveg jafnmiklar afurðir.
III. KAFLI
Tilraun í Miðtúni veturinn 1953—1954.
1. Tilhögun og framkvæmd.
Tilraun þessi er endurtekning á þeim tilraunum, sem sagt er frá
í köflum I og II hér að framan.
Tilraunin hófst 8. febrúar, og henni lauk 21. maí. í tilrauninni voru
120 ær, sem skipt var í tvo jafna flokka, A- og B-flokk, er tilraunin hófst.
Ánum í A-flokki voru gefin 100 g af síldarmjöli, en ánum í B-flokki
50 g að meðaltali hvern dag á tilraunaskeiðinu. Að öðru leyti fengu
ærnar í báðum flokkum sama fóður og jafna beit. Til 1. apríl fengu ærnar
engan annan fóðurbæti en síldarmjölið, en þá var byrjað að gefa kúa-
fóðurblöndu, fyrst 10 g að meðaltali á kind á dag, sem var smáaukið í
50 g til 10. apríl, og það magn gefið til loka tilraunaskeiðsins 21. maí.
Á tilraunaskeiðinu voru ærnar vegnar þrisvar sinnum og einnig haustið
eftir. öll lömb tilraunaánna voru vegin á fæti 24. september og fall
vegið sér af hverju sláturlambi 27. september.
Á tilraunaskeiðinu drapst ein ær úr A-flokki, og ein varð geld.
I B-flokki urðu fimm ær geldar. Þessar ær eru felldar úr við uppgjör
tilraunarinnar, og koma því til uppgjörs 58 ær i A-flokki og 55 í
B-flokki.
2. Fóðureyðsla á tilraunaskeiðinu.
Tafla 10 sýnir daglega fóðureyðslu ánna i báðum flokkum hvern
mánuð og' hve mörg g meltanlegrar hreineggjahvítu voru í dagsfóðrinu,
enn fremur heildarfóðureyðslu í báðum flokkum.
Einnig sýnir tafla 10 fjölda innistöðudaga og hve margar klukku-
stundir ærnar bitu í fjöru og á jörð hvern mánuð á tilraunaskeiðinu.
Innistöðudagar urðu aðeins 6, þar af 5 í marz. Jörð var ágæt allan
tímann, sem tilraunin stóð yfir, en hins vegar var lítill þari allan vet-
urinn. Fóðrið, sem ánum var gefið, var ekki efnagreint, en við út-
reikning á fóðurgildi þess í töflu 10 er gengið út frá því, að það hafi
haft meðalfóðurgildi og innihaldi meðalmagn af meltanlegri hreineggja-
hvítu sömu fóðurtegunda. Ærnar í A-flokki fengu 6.83 F.E. eða 5.12 kg af
síldarmjöli meira en ærnar í B-flokki að meðaltali á tilraunaskeiðinu,
sjá töflu 10. Ærnar í A-flokki fengu nokkru meira af meltanlegri hrein-
eggjahvítu í fóðrinu en þær þurftu til viðhalds og fósturmyndunar á öllu
tilraunaskeiðinu, en ærnar í B-flokki aðeins minna en þær þurftu
í apríl.