Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Qupperneq 23
21
Tafla 16. Meðalþungi lamba á fæti 22. sept., kg.
Einlembingar Tvílembingar
Hrútar Gimbrar Hrútar Gimbrar
Tala þungi Tala þungl Tala þungi Tala þungi
A-flokkur . 5 44.40 12 42.42 33 40.21 13 38.54
B-flokkur . 8 43.13 6 42.50 28 40.28 24 36.79
Mismunur A=B . - 1.27 ER - -r- 0.08 - -f- 0.07 - 1.75 ER
(t = 0.507) (t = 1.367)
ER = mismunurinn ekki raunhæfur.
Enn fremur sýnir tafla 16, að enginn þungamunur er á einlembings-
gimbrum annars vegar og tvílembingshrútum hins vegar í A- og B-
flokki. Aftur á móti eru einlembingshrútar og tvílembingsgimbrar nokkru
þyngri í A-flokki. Sá þungamunur er þó óraunhæfur.
Tafla 17 sýnir meðalfallþunga lambanna, flokkaðra á sarna hátt og
i töflu 16.
Tafla 17. Meðalfallþungi lamba 23. sept., kg.
Einlembingar Tvílembingar
Hrútar Gimbrar Hrútar Gimbrar
Tala þungi Tala þungi Tala þungi Tala þungi
A-flokkur . 5 18.10 12 18.08 33 15.74 13 15.23
B-flokkur . 8 17.81 6 17.75 28 15.53 24 14.18
Mismunur A-fB - 0.29 - 0.35 - 0.21 - 1.05 ER
(t = 1.663)
ER = mismunurinn ekki raunhæfur.
f töflunni er fallþungi líflamba reiknaður á sama hátt og sagt er
frá í kafla II.
Tafla 17 sýnir, að lömbin úr báðum flokkum leggja sig næstum
jafnmikið. Mestur munur er á tvílembingsgimbrum, sem hafa 1.05 kg
þyngra fall í A-flokki en í B-flokki. Sá munur er þó ekki raunhæfur.
Afurðamunur tvílembdu ánna í flokkunum er ekki nema 0.89 kg af
kjöti eða kr. 13.35, reiknað á sama hátt og í kafla II. Viðbótarfóðrið,
sem ærnar í A-flokki fengu fram yfir ærnar í B-flokki, að meðaltali
9.57 F.E. eða 7.17 kg af sídarmjöli á dag, kostar því kr. 19.36, reiknað
á kr. 2.70 pr. kg. Það vantar því kr. 6.01, að tvílembdu ærnar í A-flokki
borgi í auknum afurðum viðbótargjöfina af síldarmjölinu. Tilraunin
sýnir því, að ærnar í A-flokki skila ekki í auknum afurðum verðmæti
á móti því síldarmjölsmagni 7.17 kg, sem þær fengu fram yfir ærnar
í B-flokki.
Samandregið yfirlit.
1. Tilraunin var gerð með mismunandi magn af síldarmjöli handa ám
með beit. Hún hófst 24. desember, og henni lauk 16 maí. I tilrauninni
voru 84 ær, sem skipt var í tvo jafna flokka, A- og B-flokk, er til-
raunin hófst. Ánum i A-flokki var gefið 100 g af síldarmjöli, en án-