Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.12.1961, Side 23
22
Grunnaburður: 70 kg N - 90 kg KgQ d ha.
LÍNURIT 4. Línurit þetta birtist í desemberhefti „Freys“ 1959. (bls. 365).
Explanations: Units on abscissa are kg P2.O5 applied annually to a hectare. Units on ord-
inate are hectokilos hay, with 15% moisture, pr. hectare. Basic dressing: 70 kg N + 90 kg K^O
pr. hectare. The numbers are average values for 8 consecutive years.
á að vorinu („fosfórjafnvægið“ er 115 til 145%). Þegar fosfórskammturinn
er tvöfaldaður (í 26.2 kg P eða 60 kg P2O5 á ha) hrapar „fosfórjafnvægið“
niður í tæp 70 til 80%. Þessi mikla fosfórupptaka grasanna miðað við áborið
magn er bæði nokkuð óvænt og gleðileg. Það er óvænt, að jarðvegur, sem
nýbrotinn til ræktunar er svo fosfórsnauður, að þar þrífst sjaldnast nokkur
jurt án fosfóráburðar, skuli reynast svo nægjusamur og skila jafn miklum
fosfór til grasanna eftir að landinu hefur verið breytt í tún.
Tvær spurningar eru veigamestar varðandi fosfórþörf túna:
(1) Hve mikinn fosfór þarf að bera á, til þess að hörgull þessa jurtanær-
ingarefnis takmarki ekki sprettu?
(2) Er fosfórmagn grasanna, við þann lágmarksskammt er hér um ræðir,
nægilega mikið frá fóðurfræðilegu sjónarmiði?
Þessi atriði eru rakin í grein er birtist í desemberhefti „Freys“ 1959 (Björn
Jóhannesson, 1959). Línurit 4 er eitt af fjórum, sem fylgja þessari grein. Þetta
línurit gefur til kynna, að tiltölulega lítill árlegur fosfórskammtur, eða ná-